Lesa frétt
30.7.2010

Þorgrímur og Arnór í Slóvakíu

Sælir ÍR-ingar
Þorgrímur og Arnór heilsa ykkur frá Slóvakíu. Sumir hugsa kannski hvað við séum að gera hér, en við erum að taka þátt í Evrópumóti handbolta hjá 20 ára strákum og yngri. Við félagarnir ætlum að reyna koma með smá pakka af því sem er a gerast hér hverju sinni.

Ferðin hófst klukkan 1:00 aðfaranótt miðvikudagsins, tókum flug til Danmerkur og þaðan svo til Austurríkis, enduðum á að taka klukkutíma rútuferð til Bratislava. Fínasta veður, 20 gráður plús. Kom okkur svolítið á óvart hvað kynni okkar við borgina Bratislava voru öðruvísi en við bjuggumst við. Við höfum heyrt um fátækt og fleira, en við vorum ekki varir við hana í miðri Bratislava borg. Hótelið sem við erum á heitir Hotel Nivy ágætis 3 stjörnu hótel með internet tengingum inn herbergjum, sturtu, sjónvarpi og 3 uppábúnum rúmum.

Ekki er langt í hallirnar sem við spilum í, 5 mín. ganga. Umhverfið hér er  ágætt, Supermarkaðir, Kringlur og ágætis guggur. Þegar við komu hingað duttum við á  Mc Donalds þar sem undirritaðir fengu sér ljúffenga hamborgara, fleiri en einn. Við áttum svo fyrsta leik í gær (fimmtudag), mótherjarnir þessu sinni voru gestgjafarnir sjálfir Slóvakar, leikurinn byrjaði 20.00 á staðartíma(18.00 íslenskum). Líflegur sóknarleikur af okkar hálfu en vörnin var góð og við vorum fá skotin sem við vildum fá . Vorum allan tíman yfir og sigurinn raun aldrei í hættu.   
         
Í dag föstudag er svo frídagur, tókum æfingu í morgun, síðan verður tekin morgunmatur og loks fáum við að gera það sem stelpur gjörsamlega elska, kíkja í verslanir.  Leikirnir eru sendir út á http://www.ehf-20euro2010.com/en/live-stream/live-stream-pasienky  þar geta menn valið um höll en keppt er 2 höllum að við höldum. Leikur gegn gyðingunum frá Ísrael á  morgun (laugardag), klukkan 2 hér, 12.00 heima. Áfram Ísland og Áfram ÍR. Segjum þetta gott í bili.

Þorgrímur Smári og Arnór Freyr