Lesa frétt
1.6.2010

ÍR FRÉTTIR - júní

Nú í júní voru ÍR fréttir gefnar út í fjórða sinn. ÍR fréttir er fréttablöðungur sem gefinn er út mánaðarlega og er dreift á ýmsa staði í Breiðholti en í þessum blöðung má finna áhugaverðar fréttir um félagið.

Skráðu þig á póstlista ÍR frétta og um leið ertu búinn að skrá þig í happadrætti ÍR frétta. Þú skráir þig með því að senda rafpóst á ingolfur@ir.is (gefur upp nafn) og þá færð þú ÍR fréttir sendar mánaðarlega og átt einnig möguleika á því að hljóta vinninga sem dregnir verða út. Vinningar verða meðal annars ÍR bókin sem er glæsilegt rit um sögu ÍR ásamt fleiri flottum vinningum.  ÍR fréttir má nálgast með  því að smella HÉR.