Lesa frétt
15.5.2010
6 leikmenn ganga til liðs við ÍR
ÍR-ingar sem nýlega réðu Bjarka Sigurðsson sem þjálfara meistaraflokks karla í handknattleik fengu í dag veglegan liðstyrk fyrir haustið.
Handknattleiksdeild ÍR gekk frá í dag samningum við 6 leikmenn fyrir komandi keppnistímabil. Þetta eru Ragnar Helgason sem kemur frá Stjörnunni, Davíð Georgsson frá Víking, Ólafur Sigurjónsson frá Val, Hreiðar Haraldsson frá Víking, Hafsteinn A. Ingason frá Fram og Tryggvi Haraldsson sem spilaði síðast með Haukum.
Ofangreindir leikmenn hafa allir á árum áður spilað fyrir ÍR. Þeir munu koma með kærkomna reynslu inn í þann bráðefnilega leikmannahóp ÍR sem er fyrir hendi og styrkja hann verulega í þeirri baráttu sem verður um sæti í N1 deildinni á komandi leiktíð.
Handknattleiksdeild ÍR fagnar þessum mikla liðstyrk og nú stefna ÍR-ingar ótrauðir á betri tíð.

