Lesa frétt
12.5.2010
Uppskeruhátíð Handknattleiksdeildar ÍR

Laugardaginn 15. maí n.k. kl. 14.00 ætlar Handknattleiksdeildar ÍR að halda uppskeruhátíð fyrir alla iðkendur deildarinnar í íþróttahúsinu Austurbergi. Veitt verða verðlaun fyrir hin ýmsu afrek á liðnum vetri og hvetjum við því alla að mæta og eiga með okkur glaðan dag. Boðið verður uppá léttar veitingar.
Um kvöldið verður svo samkoma fyrir eldri kynslóðina í ÍR-heimilinu og opnar húsið kl. 19.30. Þar verður einnig boðið uppá léttar veitingar og hvetjum við alla velunnara ÍR til að láta sjá sig.
Foreldrar, við hvetjum ykkur sérstaklega til að ljúka þessum vetri með okkur með glæsibrag á skemmtilegu kvöldi.
Vonumst til þess að sjá sem flesta á þessum viðburðum okkar.
Stjórn og unglingaráð Handknattleiksdeildar ÍR