Lesa frétt
8.5.2010

Andrés Gunnlaugsson ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna hjá ÍR sem spilar í N1 deildinni næsta vetur

Andrés Gunnlaugsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í handknattleik hjá ÍR. Andrés  tekur við liðinu af Jelenu Jovanovic hefur liðinu frá því í vetur.  Jelenu færum við þakkir fyrir gott starf með meistaraflokkinn. 

Andrés mun einnig þjálfa 3. flokk kvenna auk þess að vera yfirþjálfari yngri flokka ÍR.

Meistarflokkur ÍR mun taka þátt í N1 deild kvenna næsta vetur.

ÍR.is spurði Andrés þjálfara aðeins út hver markmið næsta veturs væru?
"Við hjá ÍR höfum ákveðið að tefla fram liði í efstu deild kvenna, það er markmið ÍR að tefla fram meistaraflokki bæði í karla og kvennaboltanum og höfum sett okkur það markmið að spila meðal þeirra bestu, yngri flokkar félagsins verða að geta horft upp til mfl báðu meginn. Til þess að starf félagsins verði í hæsta gæðaflokki þá þurfum við að vera með meistaraflokka hjá báðum kynjum. Við eigum þó nokkrar af bestu leikmönnum í mfl kvenna sem spila hjá öðrum liðum vonandi sjá þær sér hag í því að súa til baka. Ef ekki fyrir næsta tímabil þá að ári. ÍR ætlar ekki að vera uppeldisstöð fyrir önnur lið þannig að við töldum að það væri tímabært að taka stóra skrefið og fara upp í efstu deild kvenna, við gerum okkur grein fyrir að næsta ár verður erfitt en á einhverjum tímapunkti verður að taka skrefið og við teljum að sá tími sé kominn. Ég hvet gamlar ÍR stelpur sem hafa áhuga á að koma heim og taka þátt í verkefninu með okkur, það er pláss fyrir allar stelpur sem hafa áhuga á að taka þátt i þessu verkefni. Verkefnið verður erfitt og krefjandi en við erum ákveðin í því að komast í fremstu röð á nokkrum árum. Það er mikil vinna framundan hjá mfl. kvenna en ég tel að þetta sé spennandi verkefni og mikil áskorunn bæði fyrir mig og þá leikmenn sem taka þátt í verkefninu. Að lokum vill ég þakka Jelenu frábært starf með stelpurnar, hún er ekki að hætta hjá félaginu heldur mun hún taka að sér þjálfun 4fl. kvenna."

Andrés hefur þjálfað í lengri tíma þar sem hann þjálfaði síðast mfl. karla hjá ÍR og er það mikill fengur að fá hann í áframhaldandi starf fyrir félagið. Þar áður hefur hann þjálfað mfl. kvenna hjá Gróttu/KR, Haukum, Víking og Fram. Verið til að mynda aðstoðarþjálfari hjá Jóni Kristjáns með ÍR liðið á sýnum tíma ásamt því að hafa þjálfað í fjölmörg ár yngri flokka.

Óskum við Andrési og stúlkunum til hamingju með þetta. Við horfum fram á spennandi tíma í boltanum!

Áfram ÍR!