Lesa frétt
4.5.2010
Bjarki Sigurðsson ráðinn þjálfari meistaraflokks karla hjá ÍR
Bjarki Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks karla í handknattleik hjá ÍR.
Bjarki er uppalinn í Víking, lék með félaginu upp alla yngri flokka og hefur unnið alla titla sem hægt er að vinna í meistaraflokki með Víking og Aftureldingu. Bjarki á að baki 230 landsleiki fyrir Íslands hönd og var m.a. valin í Heimsliðið árið 1994 en þar lék hann m.a. með Magnus Andersson, Per Carlén, Staffan Olsson og Mats Olsson. Landsliðsþjálfari Svía, Bengt Johannsson, stjórnaði heimsliðinu. Í framhaldi af farsælum ferli hjá Víking og Aftureldingu hélt Bjarki í atvinnumennsku til Drammen í Noregi. Bjarki þjálfaði síðar meistaraflokks lið karla hjá Aftureldingu árin 2000-2002 og svo aftur 2006-2008.
Bjarki tekur við liðinu af Viggó Sigurðssyni, sem stýrt hefur liðinu frá því í febrúar en Viggó tók þá við af Andrési Gunnlaugssyni. Andrési og Viggó færum við þakkir fyrir gott starf með meistaraflokkinn.
