Lesa frétt
23.4.2010

Íslandsmeistarar 2010!

Lið ÍR varð Íslandsmeistari utandeildar HSÍ 2010 og fór úrslitaleikurinn fram 10. apríl síðastliðin.
Sigurinn var aldrei í hættu þar sem ÍR leyfðu Júmboys  (gamlir UMFA menn) að komast í stöðuna 10-5 í fyrri hálfleik. Eftir það var sett í lága drifið og sá andstæðingarnir ekki til sólar eftir það. Reynsla, fegurð, greind og snerpa var undirstaðan í þessum sigri. Unnum við lið Hamrana frá Akureyri í undanúrslitum.