Lesa frétt
18.4.2010
Gott silfur gulli betra!
Stelpurnar í 4. flokki kvenna tóku á móti Gróttu í
úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil A liða í 4. flokki í Austurbergi í dag.
Stelpurnar voru búnar að vinna hörkusigra á Selfossi og Fram
sem tryggði þeim sæti í úrslitaleiknum á móti Gróttu.
Stelpurnar mættu ákveðnar til leiks og var leikurinn jafn
framan af en þegar það var flautað til hálfleiks þá voru Gróttu stelpur komnar
4 mörkum yfir, 16 – 12.
Heppnin var ekki með okkar stúlkum í dag og mjög sterkt lið
Gróttu vann sigur 25 – 21.
Samt sem áður var þetta mjög góður árangur hjá ÍR stelpunum
og óskum við þeim til hamingju með silfrið!
Einnig óskum við Gróttu stelpum til hamingju með
Íslandsmeistaratitilinn í 4.fl.kvk A!
ÁFRAM ÍR
Myndir úr leiknum eru komnar inn og má finna HÉR.

