Lesa frétt
27.3.2010

Ósigur gegn Aftureldingu

Leikurinn við Aftureldingu fór vel af stað þar sem ÍR liðið var mun beittara en gestirnir frá Mosfellsbæ en strax frá upphafi voru vandræði í sóknarleik okkar manna. Þrátt fyrir mikla baráttu náði ÍR sér ekki á strik sóknarlega og varð tap staðreynd 21 - 26.

Næsti leikur er þriðjudaginn 30. mars á móti Víking í Víkinni kl. 19.30. Til þess að ÍR komist í umspil þurfum við að klára síðustu 2 leikina okkar og treysta á úrslit í leik ÍBV og Víkings í síðustu umferðinni.

Mætum á þriðjudaginn og styðjum við okkar menn í þessum úrslitaleik.

Myndir úr leiknum komnar inn á MYNDASAFN.

Áfram ÍR!