Lesa frétt
26.3.2010
ÍR - Afturelding í kvöld kl.19:30 Austurbergi

ÍR - Afturelding, 26.mars kl.19:30 í Austurbergi
Í kvöld taka ÍR-ingar á móti Aftureldingu. ÍR er sem stendur í 5.sæti deildarinnar með 14 stig, þremur stigum á eftir næsta liði (Víkingur) en
ÍR-ingar eiga leik til góða. Afturelding hefur spilað vel á þessu tímabili og eru í dag í öðru sæti deildarinnar og gefa Selfyssingum ekkert eftir. Leikurinn í kvöld verður því án efa spennandi og góð skemmtun fyrir áhorfendur.
Mætum í Bergið og látum í okkur heyra.
Mætum í Bergið í bláu og hvítu.
Mætum í Bergið og styðjum ÍR til sigurs.
ÁFRAM ÍR!