Lesa frétt
23.3.2010
Barna og unglingaráð handknattleiksdeildar ÍR leitar að þjálfurum fyrir næsta keppnistímabil. 2010-2011
Barna og unglingaráð handknattleiksdeildar ÍR leitar eftir þjálfurum með mikinn áhuga og reynslu af þjálfun. Við auglýsum eftir þjálfurum sem eru tilbúnir að leggja sitt af mörkum til að efla starf handknattleiksdeildar ÍR.
Starf deildarinnar er í miklum vexti og iðkendum fjölgar ört á milli ára. ÍR er með starfsemi í Austurbergi, Seljaskóla, og Breiðholtsskóla. Deildin er fjárhagslega vel stödd og launagreiðslur því mjög öruggar. Við hvetjum kraftmikla karl- og kvenkynsþjálfara að sækja um, en umsóknum skal skila skriflega með ferilskrá í tölvupósti til
robert@wurth.is fyrir 25. apríl 2010.
Þjálfarar munu starfa undir stjórn Andrésar Gunnlaugssonar nýráðins yfirþjálfara yngriflokka.
Stjórn Barna og unglingaráðs handknattleiksdeildar ÍR.