Lesa frétt
19.3.2010

Mfl.kv: HK - ÍR á sunnudaginn

Á sunnudaginn (21.3) spila ÍR-stelpurnar við HK í Fagralundi og byrjar leikurinn klukkan 14:30. Eins og staðan er í dag er ÍR með 11 stig í 6. sæti en HK-stelpurnar í neðsta sæti með 4 stig. Segja má að HK sé sýnd veiði en ekki gefin. Þetta verður hörkuleikur sem verður að vinnast til þess að minnka forskotið á næsta lið, Fjölnir/Afturelding, sem eru með 15 stig. Mætum á völlinn á sunnudaginn og styðjum stelpurnar til sigurs.

 - - - - - ÁFRAM ÍR - - - - -