Lesa frétt
8.3.2010

Sigur á Þrótti

ÍR lagði Þrótt í nokkuð strembnum leik í Laugardalshöllinni í gær. Þróttarar börðust allan tíman og náðu að halda í okkur mesta allan leikinn. Var þetta fyrsti leikur okkar í langan tíma og sást það í of mörgum tæknimisstökum og lélegri skotnýtingu. Það jákvæða við þetta er að 2 stig fengust úr leiknum og að auðvelt er að laga það sem miður var. 

Næsti leikur er við ÍBV í Austurbergi n.k. laugardag kl. 14.00 og sá leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur.