17.5.2012

Bjarni Fritz var í heimsókn hjá þjálfara ársins Degi Sigurðssyni í Fuchse Berlin, í smá þjálfara kennslu og kemur með kollinn fullan af nýjum æfingum og hugmyndum :)
Æfingatímar eru eftirfarandi:
11-12 ára(00-01) kl. 10.00-12.00
13-14 ára(98-99) kl. 13.00-15.00
15-16 ára(96-97) kl. 15.00-17.00
14.5.2012
Handknattleiksdeild ÍR fékk Unglingabikar HSÍ 2012, en hann er veittur árlega til þess félags sem þykir standa best að unglingamálum í handknattleik. Fimm manna nefnd á vegum HSÍ fer yfir gang mála hjá félögunum á hverju tímabili. Nefndina skipa fulltrúi fræðslunefndar, fulltrúi mótanefndar, mótastjóri HSÍ, íþróttastjóri HSÍ og fulltrúi landsliðsnefnda HSÍ.
Frábært fyrir félagið að fá þessi verðlaun og er þetta viðurkenning á því mikla og góða barna- og unglingastarfi sem unnið hefur verið hjá ÍR handbolta sem þykir hafa skarað framúr hvað varðar eflingu og viðhaldi á störfum yngri flokka.
Verðlaun þessi eru táknræn fyrir þá miklu uppbyggingu í yngri flokkum sem verið hefur síðasta ár undir styrkri stjórn Barna- og Unglingaráðs ÍR Handbolta (BOGUR) sem hefur öflugt þjálfarateymi og yfirþjálfara á sínum snærum, frábæra iðkendur og virka foreldra í öllum flokkum, enda er gott foreldrastarf góður rammi utan um starfið okkar og lykillinn að því að við náum árangri .
Við sáum á þessu tímabili að þannig gerum við stórkostlega hluti saman sem ein heild, enda er ævintýrið rétt að byrja í Breiðholti hjá ÍR Handbolta og við hvetjum alla til að taka virkan þátt í því á næsta tímabili með okkur strax frá upphafi.
Frábært !!!!!
13.5.2012

Rúnólfur og Sjónni handsala saminginn
Sigurjón Björnsson hefur ákveðið að ganga til liðs við uppeldisfélagið sitt á nýjan leik. Sigurjón sem spilar stöðu hægri hornamanns er nýkrýndur Íslandsmeistari með HK þar sem hann hefur leikið undanfarin 2 ár. Sigurjón hefur gert tveggja ára samning við ÍR
Auk þess að leika með liðinu mun Sigurjón taka að sér þjálfun yngriflokka hjá félaginu.
Þetta er stór þáttur í styrkingu liðsins fyrir átökinn í N1 deildinni á næsta vetri þar sem ÍR-ingar ætla sér stóra hluti.
Við bjóðum Sigurjón velkominn í hópinn.
13.5.2012
Innilega til hamingju ÍR með verðlaunin á lokahófi HSÍ í gær. Kristófer, Davíð, Bjarki og síðast en alls ekki síst, Barna og unglingaráð með Unglingabikar HSÍ sem veittur er einu sinni á ári, því félagi sem stendur best að barna- og unglingamálum í handknattleik á ári hverju !!!
ÍR fékk eftirfarnadi verðlaun í gær.
Besti markmaður 1.deildar karla 2012: Kristófer Fannar – ÍR
Besti Þjálfari í 1.deild karla 2012: Bjarki Sigurðsson - ÍR
Leikmaður ársins í 1.deild karla 2012: Davíð Georgsson - ÍR
Unglingabikar HSÍ 2012: Barna- og unglingaráð ÍR Handbolta
ÍR er einfaldlega best til hamingju við öll , ÁFRAM ÍR!!!!
Verið vinir ÍR Handbolta á Facebook og fáið þannig myndir, fréttir og slúður beint í fréttaveituna ykkar.. >
ÍR Handbolti Facebook <
7.5.2012
Nú er komið að Reykjavíkurmótinu og ÍR var úthlutað að sjá um 6. flokk kvenna.
Því miður er fyrirvarinn ótrúlega stuttur, vorum að fá í hendur leikjaplan fyrir mótið sem má sjá hér fyrir neðan. Foreldrar, vandamenn og aðrir ÍR-ingar við verðum bara að vera dugleg að taka þátt og skrá okkur í t.d. >>tímavörslu og hússtjórn<<.
|
Austurberg
|
|
|
|
Völlur 1
|
|
|
Völlur 2
|
|
Tími
|
Deild
|
Leikur
|
Tími
|
Deild
|
Leikur
|
|
lau
|
12:30
|
Eldri A
|
Valur 1 - Fylkir 1
|
lau
|
12:30
|
Eldri A
|
Fjölnir 1 - ÍR
|
|
lau
|
12:45
|
|
|
lau
|
12:45
|
|
|
|
lau
|
13:15
|
Eldri A
|
Fram 1 - Valur 1
|
lau
|
13:15
|
Eldri A
|
Fylkir 1 - Fjölnir 1
|
|
lau
|
13:45
|
Eldri B
|
Valur 2 - Fjölnir 2
|
lau
|
13:45
|
Eldri B
|
Fram GH 1 - Fram GH 2
|
|
lau
|
14:15
|
Eldri A
|
ÍR - Fram 1
|
lau
|
14:15
|
Eldri A
|
Valur 1 - Fjölnir 1
|
|
lau
|
14:45
|
Eldri B
|
Fram GH 1 - Valur 2
|
lau
|
14:45
|
Eldri B
|
Fram GH 2 - Fjölnir 2
|
|
lau
|
15:15
|
Eldri A
|
Fylkir 1 - ÍR
|
lau
|
15:15
|
Eldri A
|
Fjölnir 1 - Fram 1
|
|
lau
|
15:45
|
Eldri B
|
Fjölnir 2 - Fram GH 1
|
lau
|
15:45
|
Eldri B
|
Valur 2 - Fram GH 2
|
|
lau
|
16:15
|
Eldri A
|
ÍR - Valur 1
|
lau
|
16:15
|
Eldri A
|
Fram 1 - Fylkir 1
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
sun
|
10:00
|
Yngri A
|
Fylkir 2 - Fylkir 1
|
sun
|
10:00
|
Yngri A
|
Fram 1 - Fram GH 1
|
|
sun
|
10:30
|
Yngri B
|
Fram 2 - ÍR 2
|
sun
|
10:30
|
Yngri B
|
Fram GH 2 - Fram GH 3
|
|
sun
|
11:00
|
Yngri A
|
ÍR 1 - Fylkir 2
|
sun
|
11:00
|
Yngri A
|
Fylkir 1 - Fram 1
|
|
sun
|
11:30
|
Yngri B
|
Valur - Fram 2
|
sun
|
11:30
|
Yngri B
|
ÍR 2 - Fram GH 2
|
|
sun
|
12:00
|
Yngri A
|
Fram GH 1 - ÍR 1
|
sun
|
12:00
|
Yngri A
|
Fylkir 2 - Fram 1
|
|
sun
|
12:30
|
Yngri B
|
Fram GH 3 - Valur
|
sun
|
12:30
|
Yngri B
|
Fram 2 - Fram GH 2
|
|
sun
|
13:00
|
Yngri A
|
Fylkir 1 - Fram GH 1
|
sun
|
13:00
|
Yngri A
|
Fram 1 - ÍR 1
|
|
sun
|
13:30
|
Yngri B
|
ÍR 2 - Fram GH 3
|
sun
|
13:30
|
Yngri B
|
Fram GH 2 - Valur
|
|
sun
|
14:00
|
Yngri A
|
Fram GH 1 - Fylkir 2
|
sun
|
14:00
|
Yngri A
|
ÍR 1 - Fylkir 1
|
|
sun
|
14:30
|
Yngri B
|
Fram GH 3 - Fram 2
|
sun
|
14:30
|
Yngri B
|
Valur - ÍR 2
|
6.5.2012
Það voru flottir krakka sem mættu í Austurberg föstudagskvöldið 4. maí þegar hið árlega handboltamaraþon hjá 5. flokk kvenna og karla var haldið. Keppni hófst kl. 21:00 og var spilaður handbolti fram eftir nóttu. Ýmsar útfærslur á liðum komu fram þar sem var blandað mót, strákar vs. stelpur, eldra vs. yngra, vítakeppni , skotkeppni og mikið gekk á í foreldraleik sem var virkilega skemmtilegur, 40 pizzur komu í húsið kl. 01:00 og seinasta leik lauk ekki fyrr en kl. 03:15.
Það er óhætt að segja að við eigum flotta krakka sem eru til fyrirmyndar og einnig má ekki gleyma öllum foreldrum og þjálfurum sem tóku þátt i þessu með krökkunum. Alveg frábært og óhætt að segja að framtíð okkar sé björt hjá ÍR Handbolta.
3.5.2012
Á hópmyndatöku allra flokka hjá ÍR handboltanum í Austurbergi í dag birtust ÍR-ingarnir og handboltahetjurnar Ingimundur Ingimundarson og Sturla Ásgeirsson og skrifuðu undir tveggja ára samning við félagið, meiriháttar viðburður fyrir ÍR.
Ingimundur, Runólfur, Sturla og Bjarki.
30.4.2012
Það verður myndataka af öllum flokkum handboltans í Austurbergi næsta fimmtudag, 3. maí kl.17:30 (tekur ca 1 tíma). Allar æfingar á milli kl. 17:30 og 19:00 falla niður. Það verða teknar myndir af hverjum flokk fyrir sig og svo öllum flokkunum saman ásamt meistaraflokk.
Einnig verður óvænt uppákoma sem enginn ÍR-ingur vill missa af.
SKYLDUMÆTING, ENGIN UNDANTEKNING!
ALLIR AÐ MÆTA Í KEPPNISBÚNING.
Með ÍR kveðju, barna-unglingaráð og stjórn handknattleiksdeildar ÍR
25.4.2012
Aðalfundur Íþróttafélags Reykjavíkur verður haldinn miðvikudaginn 25. apríl 2012 kl. 20:00 í félagsheimili ÍR Skógarseli 12 Reykjavík.
Dagskrá aðalfundar:
1. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.
2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
3. Skýrsla stjórnar um starfsemi ársins.
4. Lesnir og skýrðir endurskoðaðir reikningar.
5. Lagabreytingar.
6. Ákveðin árgjöld.
7. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
8. Kosinn formaður.
9. Kosnir aðrir stjórnarmenn og varastjórnarmenn.
10. Kosnir tveir skoðunarmenn.
11. Önnur mál.
Léttar veitingar verða boðnar að loknum fundi.
21.4.2012
ÍR stelpurnar unnu KA/Þór 22:18 í æsispennandi leik.