12.3.2010

Laugardaginn 13. mars koma Eyjamenn í heimsókn. Leikurinn fer fram í
Austurbergi og byrjar klukkan 13:30. ÍBV er sem stendur í 3.sæti en við
ÍR-ingar erum í 4.sæti og því er um stórleik að ræða.
Strákarnir hafa staðið sig frábærlega í síðustu leikjum og því er um að gera að mæta í Austurberg og styðja strákana.
ÁFRAM ÍR!
9.3.2010
Aðalfundur Handknattleiksdeildar ÍR verður í ÍR heimilinu miðvikudaginn 17.mars kl.19:30, nánar tiltekið í sal á 2.hæð. Allir sem koma nálægt handboltanum í ÍR eru hvattir til að mæta, stjórn, foreldrar, iðkendur og aðrir áhugasamir.
8.3.2010
ÍR lagði Þrótt í nokkuð strembnum leik í Laugardalshöllinni í gær. Þróttarar börðust allan tíman og náðu að halda í okkur mesta allan leikinn. Var þetta fyrsti leikur okkar í langan tíma og sást það í of mörgum tæknimisstökum og lélegri skotnýtingu. Það jákvæða við þetta er að 2 stig fengust úr leiknum og að auðvelt er að laga það sem miður var.
Næsti leikur er við ÍBV í Austurbergi n.k. laugardag kl. 14.00 og sá leikur er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur.
6.3.2010

Sunnudaginn 7.mars förum við ÍR-ingar í heimsókn til Þróttara í Laugardalshöllina og byrjar leikurinn klukkan 16:00. Þróttur situr á botni deildarinnar en eru sýnd veiði en ekki gefin.
Viggó er ennþá ósigraður! Mætum í höllina í bláu og hvítu og styðjum ÍR-inga til sigurs.
ÁFRAM ÍR!!
26.2.2010
Úrslitaleikur í Utandeildarbikar
Föstudaginn 26. febrúar kl. 20:45
í Laugardalshöll
ÍR - Júmboys
Mætum í bláu og hvítu og styðjum ÍR
ÁFRAM ÍR !
25.2.2010

Utandeildarlið ÍR sigraði SportTV í undanúrslitum í hörkuleik 31-30 og
leikur til úrslita
föstudaginn 26. feb kl. 20.45 í Laugardalshöll.
Við hvetjum ÍR-inga til að mæta á völlinn og styðja við bakið á strákunum
17.2.2010
Fimmtudaginn 18. feb leika stelpurnar okkar í 4. flokki við FH í undanúrslitum Bikarkeppni HSÍ.
Leikurinn verður í Austurbergi og hefst kl. 17.40
Hvetjum við ÍR-inga til að mæta á völlinn og hjálpa stelpunum að komast í Höllina.
16.2.2010
Að undanförnu hefur verið unnið að breytingum hér á heimasíðu ÍR. Þessar breytingar
felast meðal annars aðgengilegri skiptimarkaði og athugasemdakerfi.
12.2.2010

Strákarnir í 2. flokk sigruðu Víking á útvelli í gærkvöldi með 2 mörkum 25-27. Leikurinn var í járnum mestallan tíman þar sem liðin skiptust á að leiða með 1-2 mörkum. Staðan var 14-14 í hálfleik.
Á síðustu 10 mínútum leiksins náðu okkar menn 3ja marka forskoti sem þeir náðu að halda út til leiksloka þrátt fyrir töluverða pressu frá Víkingum. Fyrir leikinn var Víkingur í 2. sæti en við í 6. sæti og er þetta mikilvægur sigur fyrir okkar baráttu í 2. flokknum. Sterkur sigur fyrir okkar menn.
9.2.2010

Mikill vinnusigur staðreynd hjá okkar mönnum á móti toppliði deildarinnar Selfossi í kvöld. Strákarnir voru greinilega mættir til sigurs í kvöld og kláruðu þeir leikinn með sigur 30-28.
Leikurinn hófst gríðarvel þar sem vörn og markvarsla fengu á sig 2 mörk fyrstu 10 mínúturnar. Bæði liðin voru að þreifa fyrir sig í sókn framan af í fyrri hálfleik en liðin fundu síðan taktinn á síðustu 10 mínúturnar í fyrri hálfleik.
ÍR leiddi leikinn með 5 mörkum í hálfleik 14-9. Sóknarlega var Jónatan mjög sterkur og Arnór átti stórgóðan fyrri hálfleik með vinnusama ÍR vörn fyrir framan sig og varði 14 bolta.
Næsti leikur er 19. febrúar sem er fyrsti leikur í 3. umferð og er enn
óljóst hvernig það raðast. Góð mæting var á leikinn og stemmingin góð
og hvetjum við alla til að mæta á næsta leik og taka þátt í verkefninu
með strákunum.