16.5.2012
ingolfur
S.l. miðvikudag 9. maí var sameiginleg æfing 11-12 ára iðkenda sem æfa í Laugardal og Breiðholti haldin í ÍR heimilinu. Dagskráin hófst á útileikjum í nágrenninu. Að þeim loknum ræddi Margrét Héðinsdóttir hjúkrunafræðingur og formaður deildarinnar við krakkana um vöxt og þroska og áhrif þeirra á æfingar. Að fyrirlestrinum loknum var farið yfir helstu verkefni sumarsins og endað á að horfa á mynd og borða saman. Krakkarnir hafa verið mjög dugleg í vetur og staðið sig með sóma í öllu því sem þau hafa tekið sér fyrir hendur.
6.5.2012
Gunnar Páll Jóakimsson
Einar Daði lauk þrautinni með góðu 1500 m hlaupi, hljóp á 4:36, 34 mín og sigraði í þeirri grein. Hann fór með því upp í 3. sæti og lauk þrautinni með 7590 stigum sem er þriggja stiga bæting frá þrautinni í Kladno 2011. Að sögn Þráinns Hafsteinssonar þjálfara Einars Daða vakti árangur hans mikla athygli en hann var með 13. besta árangur keppenda en endar í þriðja sæti. Aðstæður voru engan veginn nógu góðar, t.d rigndi mikið og hættu margir keppni vegna aðstæðna og aðeins tveir bættu sinn árangur, Einar Daði var annar þeirra. Næsta verkefni Einars Daða er tugþraut í Kladno 9. og 10. júní. Þessi árangur lofar góðu um að Einar Daði geti gert harða atlögu að lágmarki í þeirri þraut. Lágmarkið fyrir EM er 7800 stig og fyrir OL 7950 stig.
6.5.2012
Gunnar Páll Jóakimsson
Víðavangshlaup Íslands - góður árangur ÍR-inga
Víðavangshlaup Íslands fór fram í Grafarvogi í dag. ÍR sendi langfjölmennusta hópinn til leiks og uppskeran var góð. Íslandsmeistarar urður Birta Konráðsdóttir í 13 ára flokki, Sæmundur Ólafsson í flokki 16 - 17 ára, Aníta Hinriksdóttir í flokki 16 - 17 ára, TómasZoega í flokki 18 - 19 ára, Fríða Rún Þórðardóttir í öldungaflokki kvenna og Birkir Marteinsson í öldungaflokki karla. Sigur vannst í sveitakeppni í 12 ára flokki stráka, 13 ára flokki stelpna, 16-17 ára flokki stelpna og karlaflokki og kvennaflokki. Úrlsit voru ekki komin í mótaforritið þegar þetta er skrifað en þar verður hægt að sækja full úrslit.
6.5.2012
Gunnar Páll Jóakimsson
Árangur í stangarstökki og spjótkasti örlítið lakari en í metþrautinni hjá Einari Daða
Í stangarstökki stökk Einar Daði 4,65 m og kastaði spjóti 51,29 m. Þetta er örlítið lakar en í metþrautinni í fyrra og er Einar þar með búinn að missa þau stig sem hafði í plús miðað við þá þraut þegar aðeins einni grein er ólokið, 1500 m hlaupi. Engu að síður er Einar Daði við það að klára mjög góða þraut.
6.5.2012
Gunnar Páll Jóakimsson
Bæting í kringlukasti
Einar Daði kastaði 38,09 m í kringlukasti sem er 1,08 metra bæting. Einar er kominn með 74 stigum meira eftir sjö greinar en í þrautinni í Kladno fyrir ári síðan. Einar er í 6. sæti með 5474 stig.
6.5.2012
Gunnar Páll Jóakimsson
Góð byrjun á seinni degi hjá Einari Daða
Einar Daði hljóp 110 m grindahlaup á 14,83 sek. sem er 0,11 sek. hraðar en í Kladno í fyrra.
5.5.2012
Gunnar Páll Jóakimsson
Einar Daði hljóp 400 m á 49,55 sek. Besti fyrri dagur Einars Daða í tugþraut.
Einar Daði hljóp 400 m á 49,55 sek (49,30 í fyrra). Fyrir það hlýtur hann 835 og lýkur því fyrri deginum með 3978 stig sem er bæting um 39 stig. Einar Daði er í 6. sæti en Karpov frá Kazesktan er í fyrsta sæti með 4253 stig. Mjög jafn og góður árangur hjá Einari Daða og stórbæting í kúluvarpinu. Hann gæti átt inni góða bætingu í nokkrum greinum á síðari degi þrautarinnar og við munum fylgjast með hér á síðunni. Sendum baráttukveðjur til Einars Daða og félaga en með í för er Þráinn þjálfari Einars Daða og Lárus faðir hans.