19.5.2013
Guðbjörg Lilja Svansdóttir
Vormót HSK fór fram í dag í miklu hvassviðri og töluverðri rigningu sem gerði flest öllum keppendum erfitt fyrir.
Hilmar Örn Jónsson sigraði í sleggjukasti (7,26kg) með kasti upp á 55,93 m sem er jafnframt bæting hjá honum frá því í fyrra. Hann átti best 55,67m. Hann náði einnig góðum árangri með 5 kg kúlu. Kastaði lengst 17,22 m. Á best 17,52m utanhúss frá því í fyrra.
Stefan Velemir keppti með 6 kg kúlu og kastaði 15,32m. En fyrir viku síðan kastaði hann 16,07 m á innanfélagsmóti ÍR sem var mjög góð bæting frá því í fyrra sumar, lengst átti hann 13,51 m. Við getum því búist við góðum bætingum hjá þessum ungu kösturum í sumar.
Fleiri létu sig hafa það að keppa á mótinu. Hulda Þorsteinsdóttir vann hástökkið með 1,50 m. Kristín Birna Ólafsdóttir vann 100 m grindahlaup á 14,88 sek (+3,9) og Björn J. Þórsson var 6 í 100 m hlaupi á tímanum 11,82 sek (+2,2).
Næst mót er JJ-mót Ármanns sem fer fram á miðvikudaginn og vonum við svo innilega að veðurguðirnir verði frjálsíþróttafólkinu hliðhollara svo það fái að njóta sín til fulls.
17.5.2013
sigrun
Nú er að hefjast 12 vikna byrjendanámskeið, þannig að allir sem aldrei hafa farið út að hlaupa eða bara hér í fyrndinni, hafa nú tækifæri á að koma sér í hlaupaform. Eins er ÍR skokk með hóp fyrir þá sem eru farnir að hlaupa nokkra kílómetra og enn lengra. Við höfum alla flóruna, þannig að nú er tækifærið að byrja á því sem svo margir tala um að byrja á. Suma hafa lengi dreymt um að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni í ágúst, geta hlaupið 3 km.
Smellið á myndina til að sjá frekari upplýsingar.
Látið boðin berast og verið hjartanlega velkomin.
11.5.2013
Fríða Rún Þórðardóttir
Alls tóku 120 keppendur þátt í Víðavangshlaupi Íslands sem fram fór í Laugardalnum í morgun.
Íslandsmeistarar urðu þau Nökkvi Þór Ragnarsson, Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, Aníta Birna Berndsen, Aníta Hinriksdóttir og Anna Þuríður Pálsdóttir. Flottur árangur hjá ÍR-ingum í mjög skemmtilegri keppni sem120 keppendur þátt í Víðavangshlaupi Íslands sem fram fór í Laugardalnum í morgun. ÍR sendir að vanda vaska sveit, alls 56 keppendur sem kepptu í 12 flokkum. Það er skemmst frá því að segja að ÍR-ingar náðu sér í 10 Íslandsmeistaratitla í sveitakeppninni og 5 Íslandsmeistaratitla auk þess sem að þrefaldur sigur vannst hjá piltum 12 ára og yngri, 15 ára og 16-17 ára stúlkum.
Ármenningar stóðu að í samstarfi við Frjálsíþróttasamaband Íslands.
Öll úrslit má sjá á www.fri.is/mót/mótaforrit
10.5.2013
Fríða Rún Þórðardóttir
Alls eru 113 keppendur skráðir í Víðavangshlaup Íslands sem fram fer í Laugardalnum á morgun, laugardag. ÍR sendir að vanda vaska sveit, alls 55 keppendur sem keppa í 12 flokkum, en alls er keppt í 8 flokkum kvenna og 8 flokkum karla. Þetta er mjög góð þátttaka og vonandi verða góðar aðstæður og frábær stemming.
Keppnin hefst kl. 11 hjá yngstu keppendunum sem eru í flokki 12 ára og yngri. Keppninni líkur svo um kl. 14 þegar elstu keppendurnin reyna með sér. Margir góðir hlauparar eru skráðir til leiks og verður um spennandi keppni að ræða í öllum aldursflokkum.
Það er tilvalið að skella sér í laugardalinn og hvetja hlauparana til dáða.
7.5.2013
Fríða Rún Þórðardóttir
Val á liðinu sem keppir á Smáþjóðaleikunum í Lúxembourg var tilkynnt þann 7. maí sl. 20 keppendur frá Íslandi taka þátt í frjálsíþróttakeppninni en fjórir þjálfarar fara með hópnum.
ÍR á 6 keppendur af þessum 20. Aníta Hinriksdóttir keppir í 400m, 800m, 1500m og 4 x 400m boðhlaupi og Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir keppir í 100m, 200m og 4 x 100m boðhlaupi. Ívar Kristinn Jasonarson keppir í 100m, 400m og báðum boðhlaupunum, Guðmundur Sverrisson keppir í spjótkasti, Mark W. Johnson stekkur stangarstökk og Snorri
Sigurðsson hleypur 800m, 1500m og 4 x 400m boðhlaup. ÍR þjálfararnir Gunnar Páll Jóakimsson, Einar Vilhjálmsson og Þórdís Gísladóttir fara með hópnum auk Ragnheiðar Ólafsdóttur FH. Fylgst verður með gangi mála hjá okkar fólki hér á síðunni.
6.5.2013
Margrét Héðinsdóttir
Hið árlega Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna fer fram í Kaupmannahöfn dagana 26. - 31. maí. Í frjálsíþróttum sendri Reykjavík 16 manna lið pilta og stúlkna og 12 þessara ungmenn koma úr ÍR. Þau eru Margrét Hlín Harðardóttir, Vilborg María Loftsdóttir, Hildigunnur Þórarinsdóttir, Ráðhildur Ólafsdóttir, Birta Konráðsdóttir, Stefanía Ásta Karlsdóttir, Stella Margrét Magnúsdóttir, Bjarki Freyr FInnbogason, Hörður Frans Pétursson, Þorsteinn Ívar Albertsson, Bjartur Snær Sigurðsson og Hrafnkell Tumi Georgsson.
6.5.2013
Margrét Héðinsdóttir
2. Maraþonboðhlaup FRÍ fer fram þann 21.maí 2013 á þremur stöðum á landinu, Reykjavík, Akureyri og Egilsstöðum.
Hlaupið er boðhlaupskeppni þar sem allt að sjö hlauparar skipa eitt lið. Hver liðsmaður hleypur að minnsta kosti einn hring af sjö hringja hlaupaleið. Heildarvegalengdin sem er hlaupin er hálft maraþon eða 21,097 km og því hver hringur 3 km. Keppt er í samtals 4 flokkum. Allir þátttakendur fá staðlað viðurkenningarskjal með mynd af fremsta frjálsíþróttafólki landslins og að loknu hlaupi fer fram happdrætti á staðnum þar sem keppnisnúmer gildir sem happdrættismiði.