27.12.2009
Septemberpistill 2 2005 fyrir Breiðholtsblaðið
Haustæfingar frjálsíþróttadeildar ÍR
Haustæfingar frjálsíþróttadeildar ÍR fara mjög vel af stað að vanda og er fjöldi iðkenda um 400 talsins. Fjöldi þjálfarar sinna hinum 10 flokkum sem æfa frjálsar íþróttir á vegum ÍR og eru nokkrir þeirra nýjir inn í starfið en alls eru 23 þjálfarar sem starfa fyrir deildina.
Meistaramót Íslands í 5000m og 10000m
Meistaramót Íslands í 5000m hlaupi kvenna og 10000m hlaupi karla fór fram á Laugardalsvelli 22. september. Miðað við veður dagana á undan þá voru aðstæður ágætar fyrir utan að brautin var heldur blaut og þung.
Sigurvegari í 5000m hlaupi kvenna varð Fríða Rún Þórðardóttir ÍR en hún hljóp á tímanum 18:36.74 mín en önnur varð Hrönn Guðmundsdóttir ÍR á 20:00.99 mín. Hrönn sigraði í aldursflokknum 40-49 ára. Það var því tvöfaldur ÍR-sigur í kvennakeppninni en fimm konur hlupu sem er mun betri þátttaka en oft áður.
Í 10000 m hlaupi karla varð Sigurður Hansen ÍR í 3. sæti á tímanum 34:40.07 mín. Í flokki 40-49 ára varð Jón Jóhannesson ÍR í 1. sæti á 39:00.74 mín
Öll úrslit má finna á www.fri.is / mótaforrit.
Víðavangshlaup Íslands í boði Frjálsíþróttadeildar ÍR
Frjálsíþróttadeild ÍR býður til keppni í Víðavangshlaupi Íslands laugardaginn 11. október 2008. Hlaupið fer fram á svæðinu við ÍR-heimilið í Skógarseli og hefst hlaupið klukkan 11:00 með keppni í yngstu aldursflokkunum en keppni í elstu aldursflokkum, karla og kvenna hefst kl. 12:15 og 13:00. Keppt er bæði í einstaklings- og sveitakeppni, þar sem 4 skipa hverja sveit nema í öldungaflokki þar sem 3 skipa hverja sveit.
Hlaupið er öllum opið þó svo að einstaklingar séu ekki skráðir í sérstakt íþróttafélag eða lið. Nánari upplýsingar veitir Fríða Rún Þórðardóttir í fridaruner@hotmail.com
Næst á dagskrá:
Víðavangshlaup Íslands 11. október
Breiðholtsmót í frjálsum íþróttum 16., 20. – 22. október
Silfurleikar í frjálsum íþróttum 22. nóvember
Gamlárshlaup ÍR 31. desember
Fríða Rún Þórðardóttir, varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR