hreysti


valitor











































Lesa frétt
29.12.2009

Septemberpistill 2009 fyrir Breiðholtsblaðið

Meistaramót Íslands í hálfu maraþoni.

Meistaramót Íslands í hálfu maraþoni fór fram á Selfossi 5. september sem hluti af hinu árlega Brúarhlaupi. Sigurvegari í kvennaflokki og þar með Íslandsmeistari varð Martha Ernstsdóttir á 1:23 mín sem er jöfnun á hennar besta árangri í sumar. Til hamingju Martha. Birkir Marteinsson varð í 2. sæti í karlaflokki.

 

Bikarkeppni 16 ára og yngri

Bikarkeppni 16 ára og yngri fór fram á Vík í Mýrdal 5. september. 152 keppendur voru skráðir til leiks og sendi ÍR stvö lið til keppni eins og undanfarin ár alls 29 keppendur.

 

Lauk keppninni með sigri A liðs ÍR sem hlaut 169 stig eða 2 ½ stigs meira en öflugt lið Breiðabliks sem varð í 2. sæti með 166 stig. Meyjalið ÍR-A sigraði örugglega með 94 stig en sveinarnir í A-liðinu urðu í 3. sæti með 75 stig. B-lið meyja og sveina urðu í 8. sæti af 11 liðum.

Mikill vindur var á svæðinu og bitnaði það mjög á árangri í hlaupagreinum og langstökki.

 

Helstu úrslit og afrek ÍR-inga.

Dóróthea Jóhannesdóttir          1. sæti í 100m hlaupi 12.52 sek

                                               3. sæti í hástökki 1.50m

Arna Stefanía Guðmundsd       1. sæti í 400m hlaupi 60.62 sek

Hekla Rún Ámundadóttir         1. sæti í spjótkasti 34.78 m

Aníta Hinriksdóttir                   1. sæti í 1500m hlaupi 5:07,73 sek

Hjalti Garðarsson                     1. sæti í kringlukasti 48,07 m

Vera Sigurðardóttir                  2. sæti í 1500m hlaupi 5:21,82 sek

Ástbjörn Haraldsson                2. sæti í 1500m hlaupi 4:43,90 sek

Jóhanna Kristín Jóhannesd       2. sæti í 80m grindahl. 12.35 sek

Hilda Margrét Ragnarsdóttir     3. sæti í kúluvarpi 10.19m

                                               3. sæti í kringlukasti 24.95 m

Sindri Lárusson                        3. sæti í kúluvarpi 12.40m

 

1000m boðhlaup

            Meyjasveit ÍR-A                   1. sæti 2:27.96 mín

            Jóhanna Kristín (100m), Dóróthea (200m), Arna (300m) og Kristín Lív (400m)
 

            Sveinasveit ÍR-A                  3. sæti 2:17.37 mín

            Mikael Gunnlaugsson (100m), Magnús R. Reynisson (200m),

            Arnar Orri Sverrisson   (300m) og Damian Patryk Frontczak (400m)

 

 

Til hamingju ÍR-ingar með enn eina rósina hnappagatið

 

Þórdís Gísladóttir framúrskarandi fyrir Íslands hönd.

Frjálsíþróttasamband Íslands hefur tilnefnt Þórdísi Gísladóttur þjálfara hjá Frjálsíþróttadeild ÍR sem fulltrúa Íslands til The European Athletics Women’s Leadership Award.

Um er að ræða sérstaka viðurkenningu ætlaða konum sem hafa skarað fram úr á sviði frjálsíþrótta, hvort sem er keppni, þjálfum eða á öðrum sviðum, einu eða fleiri. Eitt markmiða með þessari viðurkenningu er að vekja athygli á hinu mikilvæga framlagi almennra kvenleiðtoga innan hreyfingarinnar. Úrslit á valinu verður kynnt þann 17. október næstkomandi, á árlegum fundi Evrópska frjálsíþróttasambandsins, í Budapest að þessu sinni.

 

Meistaramót 15-22 ára um helgina

MÍ 15 – 22 ára fór fram helgina 29. – 30. ágúst í boði Breiðabliks. 215 keppendur voru skráðir til keppni sem var 30% aukning frá árinu á undan. 63 ÍR-ingar voru skráðir til keppni það er fjölmennasti hópur sem ÍR hefur sent á þetta mót frá upphafi. Lið ÍR hefur sigrað stigakeppnina óslitið frá 2004 og í liðinu nú eru 10 íþróttamenn sem voru í sigurliðinu árið 2004. Í ár var engin breyting þar á liðið hlaut 526 stig í heildarstiga-keppninni með um helmingi fleiri stig en liðið í 2. sæti. Einnig unnust stigakeppnir í flokkum meyja 15-16 ára, drengja 17-18 ára, stúlkna 17-18 ára, ungkvenna 19-22 ára og ungkarla 19-22 ára. Í flokki sveina var lið ÍR í 2. sæti á eftir öflugu liði Breiðabliks.

 

Þeir ÍR-ingar sem urðu Íslandsmeistarar um helgina voru:

            María Ósk Felixdóttir í sleggjukasti 41.21 m

            Sandra Pétursdóttir í sleggjukasti 50.62 m

            Dóróthea Jóhannesdóttir í 100m 12.62 sek, 200m 25.71 sek og þrístökki 11.50 m

            Helga Þráinsdóttir í hástökki 1.55 m

            Valdís Anna Þrastardóttir í spjótkasti 43.30 m og kringlukasti 29.22m

            Björg Gunnarsdóttir í 800m 2:24.12 mín

            Erna Dís Gunnarsdóttir í 800m 2:24.53 mín

            Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir í 100m grindahlaupi 15.92 sek

            Hulda Þorsteinsdóttir í stangarstökki 3.40 m

            Vera Sigurðardóttir í 1500m 5:27.97 mín

            Brynhildur Ýr Ottósdóttir í 1500m 5:45,48 mín

            Boðhlaup:

            4 x 100m boðhlaup meyja 51,71 sek

            4 x 400m boðhlaup, ungkonur 4:18.68 mín

 

            Adam Þór Þorgeirsson í 300m grindahlaupi 42.88 sek

            Ólafur Konráð Albertsson í 400 m grind 64,01 sek, 800m 1:58.40 mín, 1500 4:19,43 mín

            Snorri Sigurðsson í 800m 2:07.58 mín, 1500m 4:27,16 mín & 3000m 9:39.39 mín

            Hjalti Garðarsson í spjótkasti 54.49 m & kringlukasti 55.15 m

            Ingi Guðni Garðarsson í sleggjukasti 38.17 m

            Stefán Árni Hafsteinsson í stangarstökki 4.20 m

            Juan Ramon Borges í langstökki 6.51 m

            Boðhlaup:

            4 x 100m boðhlaup ungkarla 44.45 sek

            4 x 400m boðhlaup, ungkarlar 3:38.99 mín

 

Alls unnust alls 30 Íslandsmeistaratitlar, 28 silfurverðlaun og 25 bronsverðlaun.

Hægt er að skoða öll úrslit á www.fri.is /motaforrit

 

26. Reykjavíkur Maraþonið

ÍR-ingar áttu góðan dag í Reykjavíkurmaraþoninu og sendi 6 sveitir í 10km og ½ maraþon. Veðrið var ágætt en eins og svo oft áður var vindurinn ansi stífur frá km 6 og næstum alla leið í mark hjá 10km hlaupurunum en fyrir hálft- og heilmaraþonhlauparana þá voru næstu 10 km á móti vindi. Báru tímarnir þess glöggt merki í dag. Það hélst þó þurrt fyrir fyrstu keppendur í mark en rigndi þó aðeins um 50 mín eftir að startað var í 10km. 3527 manns luku 10 km, 1560 luku hálfu maraþoni og hvorki fleiri né færri 670 manns luku heilu maraþoni.

 

Martha Ernstsdóttir sigraði í hálfu maraþoni á fínum tíma 1:23,09 klst og um 2 ½ mínútu á undan næstu konu. Öruggur og enn einn sigurinn hjá Mörthu í þessari vegalengd, hreint frábært. Birkir Marteinsson varð 5. í mark og þriðji Íslendinga í mark á 1:17.47 klst. Þorlákur Jónsson varð 7. í mark á 1:20.50 klst og 2. í flokki 40-49 ára og Sigurjón Sigurbjörnsson varð 6. á 1:21,27 klst og fyrstur í flokki 50-59 ára. Burkni Helgason þjálfari hjá ÍR var skammt á eftir Sigurjóni á 1:23:57 klst.

 

Í 10 km varð Ólafur Konráð Albertsson í 2. sæti á 35.05 mín sem er stórbæting hjá honum. Sigurður Hansen varð fimmti í mark og í 1. sæti í flokki 40-49 ára á 35.52 mín. Þorsteinn Magnússon varð 12. í mark á 37.45 mín og Vignir Már Lýðsson varð 14. af öllum í mark á 38:06 mín sem er bæting um næstum 1 mínútu frá því í fyrra.

 

Fríða Rún Þórðardóttir varði titilinn frá því í fyrra í 10 km en hún sigraði í ár á 38:06 mín um 1 mín á undan næstu og hálfri mín hraðara en í fyrra. Hún varð í 14. sæti í mark. Aníta Hinriksdóttir hin 13 ára hlaupadrottning varð örugg í 3. sæti í mark á 39:47 mín og varð 29 af öllum í mark. Aníta hljóp á 39:55 mín í fyrra og bætti sig því í ár þrátt fyrir verri aðstæður. Eva María Einarsdóttir varð 2. í flokki 20-39 ára og Hrönn Guðmunds-dóttir varð 2. í flokki 40-49 ára og Soffía Hrafnkelsdóttir 3. í sama flokki.

 

Valur Þórsson varð 4. í mark í heilu maraþoni og gerði sér lítið fyrir og varð lang fyrstur Íslendinga í mark, tæpum 12 mínútum á undan næsta á tímanum 2:43.36 mín sem er annar besti tími ársins í maraþoni karla. Hann var þar með Íslandsmeistari í vegalengdinni.

 

Í sveitakeppnum urðu sveitir frá ÍR í efstu sætunum í öllum vegalengdum.

10 km

            1. sæti                         Tími: 1:50:51 klst

            Sigurður Böðvar Hansen, Þórólfur Ingi Þórsson, Þorsteinn Magnússon

 

            2. sæti                         Tími: 1:55:30 klst

            Fríða Rún Þórðardóttir, Vignir Már Lýðsson og Björn Jón Bragason

 

            4. sæti                        Tími: 2:04:20 klst

            Guðmundur Guðnason, Eva Margrét Einarsdóttir, Hrönn Guðmundsdóttir            

 

Hálfmaraþon

            1. sæti                         Tími: 4:01:53 klst

            Birkir Marteinsson, Þorlákur Jónsson, Martha Ernstsdóttir
 
Heilt Maraþon:
            2. sæti                         Tími: 9:14:48 klst

            Valur Þórsson, Trausti Valdimarsson, Erlendur Sturla Birgisson

Jóhanna Ingadóttir og Stefán Árni Hafsteinsson kepptu í Svíþjóð

Jóhanna Ingadóttir keppti á móti í Gavle í Svíþjóð 22. ágúst en mótið er hluti af úrtökumóti sænska frjálsíþróttasambandsins fyrir rimmuna við Finna sem fram fer síðar í mánuðnum. Jóhanna byrjaði daginn á að verða í 2. sæti í þrístökkinu aðeins 2 cm frá sigrinum en hún stökk 12,79 m í löglegum vindi en lengst hefur Jóhanna stokkið 12.92 m í löglegum vindi.

Nokkrum klst. síðar fór langstökkskeppnin fram og varð Jóhann þar í 3. sæti með 5.79m

Þetta er frábær árangur hjá Jóhönnu en hún er þarna að keppa á móti bestu sænsku stelpunum í þessum greinum.

Stefán Árni Hafsteinsson keppti í stangarstökki á sama móti, Stefán Árni varð í 4. sæti með 4.20 m sem hann fór yfir í fyrstu tilraun en síðan var hækkað upp í 4.40m og felldi Stefán Árni þá hæð. Flottur árangur hjá Stefáni og Jóhönnu.

 

Meistaramót Öldunga

MÍ öldunga fór fram í Mosfellsbæ 15-16 ágúst í frábæru veðri og voru 24 keppendur sem tóku þátt þar af 13 frá ÍR. Þetta er heldur lakari þátttaka en verið hefur undanfarin ár og tók aðeins ein kona þátt í keppninni. ÍR eignaðist að vanda fjölda Íslandsmeistara og sigraði í stigakeppninni með 277 stiga mun á næsta lið. Alls unnust 33 gullverðlaun, 10 silfurverðlaun og ein bronsverðlaun. Frábær árangur hjá elstu iðkendunum en þeir sem eru 35 ára og eldri taka þátt í þessu móti.

 

Verðlauni og titlar er þó ekki það sem mestu máli skiptir hér heldur leikgleðin, vinskapurinn og sú frábæra heilsuefling sem felst í því að stunda frjálsíþróttir enda sannast enn og aftur að frjálsar eru fyrir alla óháð aldri enda er það hugurinn sem hefur hvað mest að segja um það hvernig við eldumst. Verðlauni og titlar er þó ekki það sem mestu máli skiptir hér heldur leikgleðin, vinskapurinn og sú frábæra heilsuefling sem felst í því að stunda frjálsíþróttir enda sannast enn og aftur að frjálsar eru fyrir alla óháð aldri enda er það hugurinn sem hefur hvað mest að segja um það hvernig við eldumst. Stundum er þetta líka orðað á eftirfarandi máta "heilbrigð sál í hraustum líkama."

 

Norðurlandameistaramót Unglinga 19 ára og yngri

NM unglinga fór fram í Vasa í Finnlandi 22-23 ágúst. 11 íslenskir keppendur voru valdir til keppni og voru þrír ÍR-ingar í þeim hópi auk Huldu Þorsteinsdóttur sem gat ekki gefið kost á sér vegna meiðsla sem hún hlaut í Bikarkeppni FRÍ á dögunum.

 

Einar Daði Lárusson stóð sig frábærlega þegar hann varð Norðurlandameistari í 400m grindahlaup, hljóp á 53,61 sek sem er hans annar besti tíminn en hann á best 53,17 sek síðan í Bikarkeppni FRÍ fyrir hálfum mánuði síðan. Hann varð síðan í 6. sæti í 110 m grindahlaupi (99,1cm) þegar hann hljóp á 14.51 sek í + 0,7m/s meðvindi sem er nýtt íslenskt drengja- og unglingamet í greinninni. Einar Daði varð að lokum í 7. sæti í 200m hlaupi á 22.53 sek í +2,3 m/s sem er aðeins of mikill meðvindur. Einar á best 22.75 sek í löglegum vindi.

 

Snorri Sigurðsson varð í 5. sæti í 800 hlaupi, hljóp á 1:54.93 mín sem er 63/100 frá hans besta og hans annar besti árangur.

 

Valdís Anna Þrastardóttir varð í 5. sæti í spjótkasti með 43,97 m sem er mjög skammt frá hennar besta en hún á best 46.37m. Hún varð síðan í 8. sæti í kringlukasti með 31,01m og sem er aðeins 12 cm frá hennar besta síðan á MÍ í sumar.

 

Öll úrslit má finna http://www.vis.fi/u20/  

 

Á döfinni

Víðavangshlaup Íslands                   3. Október                 Hvolfsvelli

Fríða Rún Þórðardóttir

Varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR