29.12.2009
Októberpistill 2009 fyrir Breiðholtsblaðið
Víðavangshlaup Íslands, Íslandsmót í Víðavangshlaupum
VÍ fór fram á Njáluslóððum á Hvolsvelli laugardaginn 3. október í strekkingsvindi og kulda. Keppendur voru 40 talsins þar af 25 úr röðum ÍR-inga sem hafa verið öflugir í þessari keppni sl. ár. Keppnin fór fram á tveimur grastúnum sem hvort um sig var rétt yfir kílómetri að ummáli. Hlaupinir voru mismargir hringir en vegalengdirnar voru frá 1 km í 12 ára og yngri flokknum upp í 8 km í karlaflokki. Árangur dagsins var góður eins og fyrir ári síðan og unnu ÍR-ingar allar sveitakeppnirnar með yfirburðum. Sigurvegarar í karla- og kvennaflokki, þau Ólafur Konráð Albertsson og Fríða Rún Þórðardóttir, hlutu með sigri sínum keppnisrétt á Norðurlandameistaramóti í víðavangshlaupum sem fram fer í Perniö í Finnlandi 7. nóvember nk.
Úrslit:
Strákar 12 ára og yngri 1000m
2. sæti Tómas Kolbeinn Georgsson 5:07 mín
4. sæti Hrafnkell Tumi Georgsson 5:16 mín
Stelpur 12 ára og yngri 1000m
1. sæti Málfríður Eiríksdóttir 4:57 mín
2. sæti Eva Bergrín Ólafsdóttir 5:14 mín
3. sæti Bergrós Lilja Jónsdóttir 5:21 mín
4. sæti Hanna Þráinsdóttir 5:42 mín
6. sæti Katrín Guðmundsdóttir 7:00 mín
Piltar 13-14 ára 1000m
1. sæti Gunnar Ingi Harðarson 4:12 mín
Telpur 13-14 ára 1000m
1. sæti Aníta Hinriksdóttir 3:59 mín
2. sæti Margrét Lilja Arnarsdóttir 4:48 mín
3. sæti Kristín M. Kristjánsdóttir 4:57 mín
4. sæti Áshildur M. Jóhnnsdóttir 5:04 mín
Drengir 17-18 ára 3000m
1. sæti Snorri Sigurðsson 16:21 mín
Konur 17 ára og eldri 6.700m
1. sæti Fríða Rún Þórðardóttir 27:43 mín
2. sæti Hrönn Guðmundsdóttir 30:25 mín
3. sæti Alma María Rögnvaldsdóttir 31:52 mín
4. sæti Brynhildur Ýr Ottósdóttir 32:30 mín
Karla 17 ára og yngri 8000m
1. sæti Ólafur Konráð Albertsson 29:39 mín
2. sæti Birkir Marteinsson 29:47 mín
3. sæti Snorri Sigurðsson 30:28 mín
6. sæti Burkni Helgason 31:03 mín
7. sæti Ingvar Haukur Guðm.son 32:31 mín
8. sæti Vignir Már Lýðsson 33:40 mín
Karla 40 ára og eldri 8000m
1. sæti Þorlákur Jónsson 31:45 mín
2. sæti Guðmundur Guðnason 31:47 mín
ÍR-ingar koma víða við nú er það IRONMAN
Þrír ÍR-ingar, þeir Torben Gregersen, Trausti Valdimarsson og Erlendur Birgisson kepptu í Ironman í Barcelona á Spáni sunnudaginn 4. október. Í þríþrautinni sem þeir félagarnir kepptu í voru vegalengdirnar eftirfarandi: 3.8km sjósund, 180 km hjólreiðar og að lokum maraþonhlaup 42.2km.
Mikill hiti gerði mönnum erfitt fyrir en engu að síður náðist góður árangur okkar manna:
Torben Gregersen lauk þrautinni á 10 klst og 49 mín
Trausti Valdimarsson lauk þrautinni á 11 klst 13mín sem var bæting um heilar 23mín
Erlendur Birgisson lauk þrautinni á 12klst 22mín – sem var bæting um hvorki meira né minna en 1klst og 10mín
Frábær árangur og um að gera að “krydda” æfingatímabilið með slíkum afrekum
Brúarhlaup á Selfossi
Hið sívinsæla Brúarhlaup fór fram 5. september og var fín þátttaka enda leiðin þekkt fyrir að vera slétt og hröð og því góðir tímar sem eru niðurstaðan úr þessu hlaupi. Boðið er upp á margar vegalendir, 2.5 km, 5km, 10km og hálfmaraþon. Einnig er keppt í hjólreiðum.
Fríða Rún Þórðardóttir sigraði í kvennakeppninni í 10km hlaupi, hljóp á 37:47 mín sem er annar besti árangur konu í 10km á árinu og hennar þriðji besti árangur í 10km götuhlaupi. Þorsteinn Magnússon sigraði í 5 km hlaupinu á 17:42 mín sem er 15. besti árangurinn í 5 km á götu á árinu og 7 sek frá hans besta árangri.
Meistaramót Íslands í hálfu maraþoni.
Meistaramót Íslands í hálfu maraþoni fór fram á Selfossi 5. september sem hluti af hinu árlega Brúarhlaupi. Sigurvegari í kvennaflokki og þar með Íslandsmeistari varð Martha Ernstsdóttir á 1:23,00 klst en hún varð 6. í mark. Birkir Marteinsson varð í 2. sæti í karlaflokki á 1:15,50 klst og Þorlákur Jónsson varð 5. á 1:20,08 klst.
Sauconi hlaupið
Nýtt götuhlaup, Saucony 5 km hlaup, fór fram á fimmtudagskvöldið í Árbænum. Birkir Marteinsson kom fyrstur í mark í karlaflokki á 16:23 mín og Fríða Rún Þórðardóttir í kvennaflokki á 18:43 mín og fleiri ÍR-ingar stóðu sig vel og nokkrir settu persónuleg met. Í flokkakeppninni voru þessir á verðlaunapalli. Auður María Óskarsdóttir var í fyrsta sæti í flokki 19 ára og yngri á 24:39 mín. Birkir og Fríða Rún sigruðu í flokkum 20 - 39 ára og Eva Margrét Einarsdóttir varð 3. í þeim flokki á 19:58 mín. Í flokki 40 - 49 ára átti ÍR þrjá fyrstu, Sigurður Hansen fyrstur á 17:06, Guðmundur Guðnason annar á 18:02 og Bjartmar Birgisson þriðji á 18:17 mín. Í flokki 50 - 59 ára var Trausti Valdimarsson fyrstur á 19:47 mín og Erlendur Birgisson þriðji á 20:48 og í sama flokki var Sif Jónsdóttir fyrst kvenna á 21:03 mín.
Hlaupið var upphitun fyrir Powerade hlauparöðina sem fram fer annan fimmtudag í mánuði.
Hjartahlaupið
Hjartahlaupið fór fram þann 27. september í Kópavogi og voru hlaupnir einn til tveir hringir utan um Kársnesið. Veðrið var ekki upp á það besta, kalt og mikið rok á móti á versta stað eða út við sjóinn á leiðinni í átt að bryggjunni. Birkir Marteinsson kom fyrstur í mark í karlaflokki á 37:18 mín eftir harða keppni við Birgi Sævarsson sem á besta árstímann í maraþoni karla. Fríða Rún Þórðardóttir sigraði örugglega í kvennaflokki á 41:12 mín og var einni mínútu á undan næstu konu og 4. af öllum í mark. Sigurbjörg Eðvarðsdóttir varð 3. konanan í mark á 46:11 mín
Ásdís Káradóttir sigraði í 5 km hlaupi kvenna á 22:46 mín
Framfarahlaupaserían
Hlaupasería Framfara og New Balance hófst 26. september og fór fyrsta hlaupið fram á ÍSÍ túninu í Laugardal. Keppnin fer þannig fram að hlaupin eru tvö hlaup, stutt og langt. Stutta hlaupið var einn hringur um 700m að lengd þar sem hlaupið og stokkið var yfir 3 skurði. Í því hlaupi sigraði Ólafur Konráð Albertsson, Snorri Sigurðsson varð í 2. sæti og Kristinn Þór Kristinsson HSK sem æfir með ÍR varð í 3. sæti. Hjá konunum sigraði Fríða Rún Þórðardóttir, Aníta Hinriksdóttir varð í 2. sæti og Erna Dís Gunnarsdóttir í 3. sæti. Birkir Már Marteinsson sigraði í lengra hlaupinu hjá körlunum en sömu konur urðu í 1. og 2. sæti og Hrönn Guðmundsdóttir varð í 3. sæti. Það hlaup var tæpir 5 km þar sem hlaupinir voru 5, 700m hringir með alls 15 skurðum að stökkva yfir.
Hörku erfiður hlaupakúrs, ekta vetrarvíðavangshlaup þar sem haglél dundi á keppendum og drulla og skurðir tafði för.
Alls er keppt í fjórum hlaupum, sem fram fara á mismunandi stöðum á höfuðborgar-svæðinu, það næsta í Elliðárdalnum, það þriðja úti á Seltjarnarnesi og það fjórða og síðasta á Borgarspítalatúninu í Fossvogi. Hvert hlaup telur til stiga og mun sigurvegari þeirrar stigakeppni vera krýndir um miðjan nóvember.
Á döfinni
Powerade Hlaupaserían 8. október Árbæjarlaug & Elliðárdal
Framfarahlaup II 17. október Elliðárdalur
Haustmaraþonið 24. október Elliðárdalur - Fossvogur
Framfarahlaup III 31. október Nesstofa
Framfarahlaup IV 7. nóvember Borgarspítalinn
Fríða Rún Þórðardóttir
Varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR