29.12.2009
Nóvemberpistill 2009 fyrir Breiðholtsblaðið
Víðavangshlaup Framfara
Víðavangshlaupaseríu Framfara (hollvinafélag millivegalengda og langhlaupara) er lokið en alls var keppt í átta mismunandi löngum hlaupum fjóra laugardaga í október og nóvember. Markmið keppninnar er mest æfingalegs eðlis en einnig að búa til skemmtilega og hvetjandi keppni á mismunandi vegalengdum allt frá 800m og upp í um það bil 5 km. Alls tóku 38 hlauparar þátt í keppninni sem fram fór í Laugardalnum, í Elliðárdal, á Seltjarnarnesi og á túninu við Borgarspítalann í Fossvogi. Aðal styrktaraðili hlauparaðarinnar er Afreksvörur sem sérhæfir sig í vörum fyrir hlaupara.
Í stigakeppninni urðu úrslitin eftirfarandi, niðurstöður þriggja bestu hlaupanna telja til loka úrslita.
Karlar Stig
Ólafur Konráð Albertsson ÍR 30 stig
Birkir Marteinsson ÍR 29 stig
Snorri Sigurðsson ÍR 28 stig
Mjög hörð og tvísýn keppni milli þeirra félaga sem æfa undir stjórn Burkna Helgasonar og Þorláks Jónssonar. Einnig tóku ÍR-ingarnir Burkni Helgason, Þorlákur Jónsson, Vilhjálmur Atlason, Hinrik Jón Stefánsson, Ingvar Haukur Guðmundsson, Vignir Már Lýðsson og Brynjar Gunnarsson þátt í keppninni en ÍR-ingar leggja mikið upp úr því að taka þátt í þessari keppni sem skemmtilegri og hvetjandi æfingu. Alls tóku 27 kalar þátt í keppninni.
Konur Stig
Fríða Rún Þórðardóttir ÍR 30 stig
Aníta Hinriksdóttir ÍR 28 stig
Íris Anna Skúladóttir Fjölni 25 stig
Færri konur létu sjá sig eins og oft vill verða, alls voru þær 11 sem mættu. Aðrir ÍR-ingar sem tóku þátt voru Eva Margrét Einarsdóttir, Sara Björk Lárusdóttir, Erna Dís Gunnarsdóttir, Sigurbjörg Eðvarðsdóttir og Hrönn Guðmundsdóttir.
Flott framtak hjá Framförum og til hamingju ÍR-ingar með frammistöðu ykkar.
Norðurlandameistaramót í Víðavangshlaupum.
Fríða Rún Þórðardóttir var eini keppandi Íslands á NM í víðavangshlaupum sem fram fór í Peniö í Finnlandi 7. Nóvember. Fríða Rún varð í 14. Sæti á 29:09 mín en hlaupið var 7.5 km langt. Ulrika Johansson frá Svíþjóð sigraði á 26:23 mín, hin norska Karolina Grövdal varð 2. á 26:29 mín og danska stúlkan Maria Sig Möller 3. á 27:05 mín. Sænsku konurnar sigruðu í liðakeppni kvenna þar sem þrjár konur skipa hverja sveit. Öll úrslit má finna á http://pernionurheilijat.sporttisaitti.com/nccc_7_11_09_in_pernio/tulokset-results/
ÍR-OL2012
Annar ÍR-OL2012 hópurinn hefur nú verið valinn. Byggir það val á árangri ársins 2009 og sæti í landsliði Íslands. Þau árangursviðmið sem notuð eru skiptast í A og B lágmark.
A-lágmarkið miðast við það lágmark sem Frjálsíþróttasamband Íslands (FRÍ) setur fyrir hvert ár fram til ársins 2012, en um er að ræða stigvaxandi lágmörk sem leiða að lokum að hinu alþjóðlega Ólympíulágmarki fyrir leikana í London árið 2012. B-lágmarkið er hins vegar lágmark sem Frjálsíþróttadeild ÍR setur hvert ár og er 1-5% frá A-lágmarki FRÍ. Landsliðssæti gefur einnig sæti í B-hópi deildarinnar. Á heimasíðu deildarinnar má finna kynningu á þessu verkefni og nánari upplýsingar um þá íþróttamenn sem skipa hópinn. Einnig má finna nöfn og keppnisgreinar þeirra sem eru við það að ná lágmörkum inn í hópinn og munu efalaust ná því markmiði sínu á árinu 2010.
Þeir íþróttamenn sem skipa ÍR-OL2012 hópinn eru í starfrófsröð:
A-hópur
Einar Daði Lárusson, tugþraut
Jóhanna Ingadóttir, langstökk & þrístökk
Kristín Birna Ólafsdóttir, sjöþraut, grindahlaup
Chelsey Kristina Birgisdóttir, millivegalengdir
B-Hópur
Einar Karl Hjartarson, hástökk ATH: er aðeins 2 cm frá A-viðmiði
Erna Dís Gunnarsdóttir, 400m
Fríða Rún Þórðardóttir, millivegalengdir & langhlaup
Guðmundur Sverrisson, spjótkast
Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir, spretthlaup
Hulda Þorsteinsdóttir, stangarstökk
Ólafur Konráð Albertsson, millivegalengdir
Sandra Pétursdóttir, sleggjukast
Snorri Sigurðsson, millivegalengdir
Þorbergur Ingi Jónsson, millivegalengdir & langhlaup
Þóra Kristín Pálsdóttir, 400 m grindahlaup
Þeir sem bera ábyrgð á verkefninu og skipa svokallað afreks- og fagráð deildarinnar eru Gunnar Páll Jóakimsson, Pétur Guðmundsson, Þráinn Hafsteinsson og Fríða Rún Þórðardóttir sem jafnframt er framkvæmdastjóri þess.
Haustmaraþon Félags Maraþonhlaupara
Maraþonhópurinn hans Þorláks fjölmennti í hálft maraþon í haustamaraþon FM sem fram fór fyrsta vertradag, laugardaginn 24. Október. 101 hlaupari lauk hálfu maraþoni og 24 heilu maraþoni. Kjöraðstæður voru, auð jörð og nánast logn og voru margir að bæta sig.
ÍR-ingar voru í aðalhlutverki í hálfu maraþoni, Sigurður Hansen sigraði í hálfmaraþoni á 1:15:08 klst, Birkir Marteinsson varð annar á 1:16:24 klst og Þorlákur Jónsson þjálfari varð 4. á 1:19:40, þrír hlauparar undir 1:20 klst sem er frábært á þessum tíma árs!
Guðmundur Guðnason kom næstur á eftir Þorláki á rétt yfir 1:20 klst.
Þá stóðu konurnar sig ekki síður vel. Sigurbjörg Eðvarðsdóttir og Eva Margrét Einarsdóttir hlupu báðar undir 1:30 klst og voru báðar að bæta sig, Sigurbjörg 1:29:36 og Eva 1:29:40 klst. Þær urðu í 13. og 14. sæti í mark en 4. og 5. sæti í kvennaflokki. Sif Jónsdóttir í ÍR-skokk varð 5. á 1:35:04 klst, Ásdís Kristjánsdóttir varð 6. á 1:35.50 klst og Alma María Rögnvaldsdóttir varð 7. á 1:36:01 klst.
Pétur Guðmundsson á þjálfaranámskeiði í Finnlandi
Þann 9-11. október sl. sat Pétur Guðmundsson kastþjálfari deildarinnar spjótkastsráðstefnu í Kuortane í Finnlandi sem er mekka kastþjálfunar. Ráðstefnan var mjög vel sótt með 76 þátttakendur, enda efnið einkar áhugavert og gæði fyrirlestranna og fyrirlesaranna einstakt. Nokkrir af fremstu spjótkösturum heimsins og þjálfarar þeirra voru í aðalhlutverki á ráðstefnunni sem stýrt var að Tapio Korious ÓL gullverðlaunahafa frá árinu 1988 en auk hans voru fjöldi ÓL verðlaunahafa, heimsmeistara og heimsmetshafa fyrr og nú mættir til að mynda Kimo Kinnonen heimsmeistari frá 1991, Uwe Han heimsmethafi með gamla spjótinu 104 metrar, Janis Loosis Ól gullverðlauna- og heimsmetshafi, Tero Pitkemaki og Steffi Nerious sem eru í fremstu röð í heiminum í dag.
Ráðstefnana var einstaklega vel heppnuð þar sem ráðstefnugestir höfðu færi á að læra allt sem við kemur spjótkastsþjálfun og keppni. Byrjað var á að fjalla um lífeðlisfræðina á bak við spjótkast, þá var farið í tæknþjálfun, bæði grunninn og flóknari aðferðir, köstin sjálf voru svo skoðuð út frá öllum sjónarhornum og rætt um árangur í spjótkasti og hvernig hann hefur þróast. Endað var á því að fjalla um meiðsl og endurhæfingu og hlutverk þjálfarans við þjálfun spjótkastara.
Sýndar voru æfingar framkvæmdar af nokkrum af bestu spjótkösturunum í dag undir stjórn þjálfara þeirra sem skýrðu nákvæmlega tilganginn með hverri æfingu og hvað var að gerast í hverri æfingu fyrir sig. Mikið var byggt á umræðum og verklegum æfingum. Læknar og vísindamenn frá Finnlandi og USA ræddu um dæmigerð spjótkastara meiðsli og meðferðir. Áhugavert þótti að í alvarlegri meiðslunum er talað nú um 75% endurkomu í topp level og segir það mikið til um þá gæða vinnu sem unnin hefur verið í tengslum við meðferðir, enduruppbyggingu og endurhæfingu á þessu sviði.
Námskeiðið var mjög gagnlegt og verður ÍR kösturum og þjálfurum boðið á kynningu á efni þess innan skamms.
Myndin er af Pétri Guðmundssyni, Tero Pitkemaki, Steffi Nerious og Hlyn Guðmundssyni
Fríða Rún Þórðardóttir
Varaformaður Frjálsíþróttadeildar ÍR