hreysti


valitor











































Lesa frétt
29.12.2009

Maípistill 2009 fyrir Breiðholtsblaðið

EM 19 ára og yngri, 3 ÍR-ingar meðal keppenda

Fjórir Íslenskir frjálsíþróttamenn keppa á EM 19 ára og yngri í Novi Sad í Króatíu 23. – 26. júlí nk. Þrír af þessum íþróttamönnum koma frá ÍR auk þess sem annar tveggja þjálfara koma frá ÍR en það er Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfari frjálsíþróttadeildar ÍR

 

Keppendurnir eru

Einar Daði Lárusson sem keppir í tugþraut, en hann á best 7.394 stig frá því í Tékklandi í júní

Guðmundur Sverrisson sem keppir í spjótkasti, en hans besti árangur er 66,23 m frá því á Vormóti ÍR.

Hulda Þorsteinsdóttir keppir í stangarstökki, besti árangur hennar er 3,80 m síðan fyrir 3 vikum síðan.

 

Einnig keppir sjöþrautarkonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir Ármanni sem um helgina keppir með liði ÍR í sameiginlegu liði ÍBR á Landsmóti UMFÍ. Helga Margrét keppir í sjöþraut, en hennar besti árangur er 5.721. Þjálfari hennar Stefán Jóhannsson verður annar tveggja þjálfara.

 

Chelsey gerir það gott.

Hin hálf-íslenska Chelsey Kristína Birgisdóttir Sveinsson keppti á HM ungmenna 17 ára og yngri, sem haldið var í Bressanone á Ítalíu 9. – 12. júlí en hún keppti sem fulltrúi Bandaríkjanna. Chelsey stóð sig frábærlega varð í 4. sæti á tímanum 4:20.29 mín en hún á best 4:18 mín síðan 30. júlí. Öll úrslit má skoða á heimasíðu mótsins http://www.iaaf.org/wyc09

 

MÍ Aðalhluti, 4. – 5. júní, 10 gull og Sigur í heildarstigakeppninni

Frábær þátttaka var á 83. Meistaramóti Íslands, sem fram fór á Kópavogsvelli 4.-5. júlí.  Alls voru 193 keppendur frá 13 félögum og samböndum skráðir til leiks. ÍR-ingar voru með flesta keppendur eins og endranær eða 52 talsins en en FH ingar koma næsti þar á eftir með 38 keppendur og þar á eftir heimaliðið Breiðablik með 30 keppendur. ÍR átti keppendur í 36 greinum af 37 og voru tveir ÍR keppendur eða fleiri í 33 greinum.

 

Það var svo sannarlega ekki slegið slöku við í herbúðum ÍR-inga á MÍ. Alls komu tíu gull í hús, 9 silfur og 7 brons og mikið var um bætingar á persónulegum og ársbestum árangri.

 

Konur með gull úr röðum ÍR:

Það er mikil sigling á Jóhönnu Ingadóttur þessa dagana en hún stökk 6,17 m í langstökkinu og sigraði örugglega, setti nýtt vallarmet á Kópavogsvelli og jafnaði ÍR-met Bryndísar Hólm síðan 1983. Jóhanna fékk annað gull og enn eina rósina í hnappagatið þegar hún sigraði með yfirburðum í þrístökkinu stökk lengst 13,10m en vindurinn var aðeins og mikill, eða 2,1m/s, til að þetta teljist löglegur árangur. Næstlengsta stökk hennar var einnig mjög langt eða 12.89m sem var glæsilegt mótsmet og að sjálfsögðu besti árangur konu í þrístökki í ár.

 

1500 m hlaup kvenna var mjög skemmtilegt og fyrirfram búist við mikilli keppni. Fríða Rún pressaði vel um mitt hlaup og myndaði bil sem ekki var lokað og kom hún í mark sem öruggur sigurvegari á 4:38,96 mín besti tími hennar síðan 2005 og ársbesti árangur íslenskrar konu í ár. Frábær frammistaða hjá Fríðu Rún sem einnig sigraði í 3000m hlaupinu á 10:04.44 mín sem er rétt um 2 sek frá mótsmeti og hennar besti árangur síðan árið 2006.

 

Sandra Pétursdóttir var öruggur sigurvegari í sleggjukasti kvenna þegar hún kastaði 52,96 m og bætti mótsmetið um heila 1,1 m.

 

Þriðja gullið á fyrri degi var síðan í 4x100 m boðhlaupi þar sem ÍR-sveitin var öruggur sigurvegari en sveitina skipuðu Dóróthea Jóhannesdóttir, Birna Þórisdóttir, Jóhanna Ingadóttir og Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir. 

 

Björg Gunnarsdóttir sigraði í 800m hlaupi á seinni deginum á frábærum tíma, 2:20,02 mín sem er hennar besti árangur og annar besti árangur íslenskrara konu utanhúss í ár.

 

 

Einar Daði Lárusson vippaði sér yfir 4,30 m í stangarstökkinu og sigraði með 10 cm, en fella byrjunarhæðina. Hann hafði daginn áður sigrað örugglega í 110 m grindahlaupinu, þar sem hann bætti sinn besta árangur þegar hann hljóp á persónulegu meti 14,79 sek. Einar var iðinn við kolann um helgina en hann keppti í sex greinum og vann til verðlauna í þeim öllum, auk verðalauna í boðhlaupum.

 

Þorbergur Ingi Jónsson kom sá og sigraði í 5000m hlaupinu þar sem hann kom í mark á 15:32.14 mín eða 16 sek á undan næsta manni og á öðrum besta tíma íslendings í ár.

 

Í 4 x 400m boðhlaupi karla varð A-sveit ÍR í 2. sæti á nýju íslensku unglingameti í flokkum ungkarla 21-22 og unglinga 19-20 ára á tímanum 3:23.27 min en sveitin var skipuð þeim Adam Þorgeirsson (1991), Ólafur Konráð Albertsson (1989), Snorri Sigurðsson (1991) og Einar Daði Lárusson (1990). Gamla metið átti sveit KR og var það orðið 45 ára gamalt. Sú sveit var skipuð Þorvaldi Benedikssyni, Einari Gíslasyni, Ólafi Grétari Guðmundssyni og Þórarinn Ragnarssyni.

 

Seinni dagurinn endaði svo á frábærum sigri í stigakeppni kvenna þar sem ÍR-konur fengu 22,601 stig eða 6,384 stigum fleiri en í fyrra og 10,319 fleiri en kvennalið Ármanns sem varð í 2. sæti. Karlaliðið bætti sig heldur betur frá síðasta ári og lönduðu 17,600 stigum samanborið við 11,265 stig 2008. Rúsínan í pylsuendanum var síðan glæsilegur sigur í heildarstigakeppninni þar sem ÍR hlaut 40,207 stig, hvorki fleiri né færri en 12,725 stigum meira en í fyrra. Lið FH sem í ár varð að lúta í lægra haldi fékk 38,163 stig. Stigakeppnin fer þannig fram að hver íþróttamaður fær árangurstengd stig fyrir sinn árangur en hljóta þarf  600 stig eða meira til að þau séu tekin með í stigaútreikninga keppninnar

 

Hægt er að skoða úrslitin á heimasíðu Frjálsíþróttasambandsins www.fri.is / mótaforrit og ýtarlega umfjöllun á www.irsida.is / frjálsar

Annar athyglisverður árangur og bætingar

Arna Stefanía Guðmundsdóttir vann eitt óvæntasta afrek ÍR-ings þegar hún náði öðru sæti í 400 m á 59,61 sek en hún er aðeins 14 ára gömul. Stalla hennar og æfingafélagi Aníta Hinriksdóttir stóð sig líka mjög vel þegar hún varð í 4. sæti á 4:50 mín en hún er aðeins 13 ára gömul.

 

Annar athyglisverður árangur var 1500m hlaup Ólafs Konráðs Albertssonar sem náði þriðja sætinu á tímanum 3:58;86 sek. sem er mjög góð bæting og í fyrsta sinn sem Óli hleypur undir 4 mín í 1500 m.

 

Goggi Galvaski 19. – 21. júní

Stórmót Gogga Galvaska var haldið með pomp og pragt 19. – 21. júní í Mosfellsbænum 265 keppendur tóku þátt í mótinu frá 18 félögum, þar af voru ÍR-ingar 42 talsins eða næst fjölmennastir á eftir heimamönnunum í Aftureldingu. Keppt er í flokkum polla, hnokka, stráka og pilta og pæja, hnáta, stelpna og telpna.

 

ÍR-ingar í 1. – 3. sæti

Bogey R. Leósdóttir varð 3. í hástökki

 

Elísa Margrét Pálmadóttir varð í 3. sæti í langstökki

 

Kristín Lív Jónsdóttir varð 2. í 100m, hástökki og 800m og 3. í 80m grindahlaupi

 

Margrét Lilja Arnarsdóttir varð 3. í 100m og 800m og 3. 80m grindahlaupi

 

Stefanía Ásta Karlsdóttir sigraði í 60m hlaupi

 

Arnar Orri Sverrisson varð 2. í 800m og 3. í 100m

 

Árni Haukur Árnason varð 3. í langstökki

 

Benedikt Haukur Guðmundsson varð 2. í 100m og 3. í 800m

 

Eyþór Ari Waage varð 2. í 60m hlaupi, langstökki og boltakasti

 

Gunnar Guðmundsson varð 2. í 80m grindahlaupi

 

Hlynur Kristjánsson varð 3. í kúluvarpi

 

Sindri Þór Hinriksson varð í 3. sæti í 60m hlaupi

 

Þorvaldur Tumi Baldursson varð 2. í langstökki og 3. í boltakasti

 

ÍR átti sigursveitina í 4 x 100m boðhlaupi hnokka 9-10 ára og 4 x 100m boðhlaupi telpna 13-14 ára, silfuverðlaunahafa í 4 x 100m boðhlaupi stelpna 11-12 ára og pilta 13-14 ára og bronsverðlaunahafa í 4 x 100m boðhlaupi hnáta 9-10 ára auk þes sem B-sveit 13-14 ára telpna fékk einnig brons.

 

ÍR eignaðist 1 Goggameistara, 11 silfurverðalaun og 14 bronsverðlaun. Í heildar stigakeppninni varð ÍR í 2. sæti með 252 stig á eftir Breiðablik sem fékk 427 stig. Þær Kristín Lív og Bogey urðu í stigakeppninni fyrir árangur sinn í hástökki, 1.50m og 1.45m

Flottur árangur hjá yngstu ÍR-ingunum okkar sem veit á gott fyrir framtíðina.

 

Reykjavíkurmeistaramót 11-14 ára

Fín þátttaka var á Reykjavíkurmeistaramóti 11-14 ára sem fram fór á Laugardalsvelli 28. og 29. júní í fínu keppnisverðri. Alls voru 54 keppendur skráðir til leiks og voru ÍR-ingar 32 talsins. Fínn árangur náðist á mótinu og töluvert um bætingar hjá þessum ungu íþróttamönnum sem æft hafa eins og berserkir í allan vetur og vor eins og sjá má á eftirfarandi úrslitum, en ljóst er að um mjög fjölhæfa unga íþróttamenn er að ræða, einmitt eins og það á að vera. Til hamingju krakkar og þjálfarar.

 

ÍR eignaðist 12 Reykjavíkurmeistara, 10 silfurverðalaunahafa og 10 bronsverðlaunahafa

 

Stelpur og Telpur

Aníta Hinriksdóttir varð í 3. sæti í 100m

 

Eva Bergrín Ólafsdóttir sigraði í langstökki og kúluvarpi og varð 2. í spjótkasti

 

Elísa Margrét Pálmadóttir varð 2. í kúluvarpi

 

Hanna Þráinsdóttir sigraði í 800m og hástökki með 1.38 m sem er frábær árangur og 18 cm hærra en 2. sætið, hún varð síðan í 2. sæti í 60m hlaupi og kúluvarpi og 3. í spjótkasti

 

Kristín Lív Svabo Jónsdóttir sigraði í hástökki og varð 3. í kúluvarpi

 

Margrét Lilja Arnarsdóttir sigraði 100m, langstökki og 800m og varð í 2. sæti í hástökki

 

Petra Waage varð 3. í spjótkasti

 

Rannveig Dóra Baldursdóttir varð í 3. sæti í 800m

 

Strákar og Piltar

Arnar Orri Sverrisson sigraði í 100m og 800m og varð 2 í spjótkasti

 

Benedikt Haukur Guðmundsson varð 3. í kúluvarpi

 

Gunnar Ingi Harðarson varð 2. í hástökki og 3. í 100m og langstökki

 

Hlynur Kristjánsson sigraði í kúluvarpi, varð 2. í 100m og langstökki

 

Hilmar Örn Jónsson varð 2. í kúluvarpi og 3. í spjótkasti

 

Magni Grétarsson sigraði í spjótkasti og varð 3. í hástökki

 

Undiskriftir, ÍR-OL2010

Þann 30. júní skrifuðu fimm nýjir frjálsíþróttamenn hjá ÍR undir samning við deildina vegna ÍR-OL2012 prógramsins. Þá telur hópurinn 17 manns. Með þessum undirskriftum gerir íþróttafólkið og deildin með sér gagnkvæman samning þar sem íþróttamaðurinn leggur sig 100% fram í sinni grein og deildin heitir á móti fullum stuðningi til íþróttamannsins.

 

Þau sem skrifuðu undir ásamt þjálfurum sínum voru þau Erna Dís Gunnarsdóttir sem keppir í 400m hlaupi, Guðmundur Sverrisson spjótkastari, Hulda Þorsteinsdóttir stangarstökkvari, Ólafur Konráð Albertsson millivegalengdahlaupari og Þóra Kristín Pálsdóttir sem hleypur 400m grindahlaup. Gunnar Páll Jóakimsson þjálfar þær Ernu Dís og Þóru Kristínu, Burkni Helgason þjálfar Ólaf Konráð, Pétur Guðmundsson er þjálfari Guðmundar og Þórey Edda Elísdóttir þjálfara Huldu. Deildin óskar þeim og þjálfurum þeirra til hamingju með áfangann.

 

Norðurlandameistaramót Öldunga

NM öldunga var haldið í Huddinge í Svíþjóð helgina 26.- 27. júní. 9 Íslendingar kepptu á mótinu þar af 2 ÍR-ingar. Jón Ögmundur Þormóðsson keppti í lóðkasti (9,1 kg) 65-70 ára og varð í 2. sæti með 17.11 m og aðeins 11 cm styttra en gullverðlaunahafinn. Jón varð einnig 2. í sleggjukasti (5 kg) með 40.49 m. Jón H. Magnússon keppti í flokki 70-75 ára og varð hann í 1. sæti í sleggjukasti (7,26 kg) með 17.50m tæpum 50 cm lengra en 2. sætið. Jón varð í 2. sæti í sleggjukasti (4 kg) með 42.36 m. Til hamingju strákar. Öll úrslit má finna á http://www.proteamonline.se/customers/upload/465/archive/VNM2009_resultat.pdf

 

Bætingamót í Kópavogi 27. júní

Hulda Þorsteinsdóttir var rétt í þessu að stökkva 3.80m sem er hennar besti árangur og lágmark á EM 19 ára og yngri. Hún átti góða tilraun við 3.85 m en það hafðist ekki í þetta sinn. Það eru því amk. 3 ÍR-ingar á leið til Novi Sad í Serbíu helgina 23. – 26. júlí en áður höfðu Guðmunudur Sverrisson og Einar Daði Lárusson náð tilsettum lágmörkum. Flottur árangur hjá Huldu og enn ein rósin í hnappagat okkar ÍR-inga nú um helgina. Til hamingju Hulda ! Einstakur árangur. Á sama móti stökk Stefán Árni Hafsteinsson 4.20m í stangarstökki en þetta er bæting um 10 cm á hans besta árangri utanhúss en hann á best 4.20m innanhúss síðan sl. vetur.

 

Gautaborgarleikar, Jóhanna Ingadóttir með 6.16 m og gull í langstökki

Gautaborgarleikarnir fóru hreint frábærlega af stað hjá okkar fólki. Jóhanna Ingadóttir vann glæsilegan sigur í langstökki kvenna þegar hún stökk stökk 6,16m (-1,1m/s) og bætti sinn besta árangur um 7 sm síðan 21. júní þegar hún stökk 6,09 í Evrópukeppni landsliða 3. deild í Sarajevo. Jóhanna hefur stekið stórstígum framförum frá síðasta sumri en þá stökk hún lengst 5,69m. Afrek hennar á Gautaborgarleikunum er aðeins 14 sm frá Íslandsmeti Sunnu Gestsdóttur UMSS, 6.30m síðan 2003 og 1 cm frá næstlengsta stökki íslenskrar konu sem er 6.19m en þann árangur á Bryndís Hólm síðan í Edenborg árið 1983.

Keppendur í langstökkinu voru 32 talsins en Gautaborgarleikarnir eru fjölmennasta frjálsíþróttamót sem haldið er á Norðurlöndum ár hvert með samtals 3500 keppendum frá 20 löndum.

Jóhanna sigraði einnig í 2 klst langri þrístökkskeppninni. Hún jafnaði sinn besta árangur þegar hún stökk lengst 12.84 m en átti stökk yfir 13 m ógild. Íslandsmetið er hins vegar 13.18 m en ljóst er að það er í mikilli hættu.

 

Aðrir ÍR-ingar eru einnig að standa sig frábærlega en Þorbergur Ingi Jónsson varð í 11. sæti af 56 keppendum í 1500m hlaupi og bætti sinn besta árangur þegar hann hjóp á 3:54:50 mín og Ólafur Konráð Albertsson bætti sig einnig þegar hann hljóp sömu vegalengd á 4:00.08 mín og varð 25. af 56 keppendum. Árangur strákanna í 1500m er besti og næstbesti árs árangur Íslendinga í ár. Þeir félagar hlupu svo einnig 800m, Snorri Sigurðarson varð þar í 3. sæti í flokki 19 ára á 1:55,75 mín sem er innan við 1 sek frá hans besta, Ólafur Konráð hljóp á 1:55,08 mín sem er frábær bæting utanhúss um 3 sekúndur og Þorbergur Ingi hljóp á 1:54,97 mín sem er annar besti árangur íslensks karlhlaupara í ár og um 1 sek frá hans besta árangri og hans næstbesti árangur

 

Hekla Rún Ámundadóttir keppti í fjölda greina. Í langstökki stökk hún lengst 5,16 metra í undankeppninni, sem var þriðji besti árangurinn þar, en hún stökk síðan 4,97 metra í úrslitunum og endaði í 12. sæti. Hekla keppti einnig í spjótkasti og kastaði þar 38.69 m og varð í 4. sæti. Í kúluvarpinu kastaði hún 10.77m og varð í 5. sæti. Hún keppti einnig í þrístökki í flokki 15 ára og stökk 10.54 m og hafnaði í 16. sæti af 45 keppendum sem er mjög góður árangur hjá henni. Hekla hljóp síðan 100m á 13,91 sek en komst ekki úrslit. Í hástökkinu stökk hún 1.47m og varð í 19. sæti.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir keppti í 80m grindahlaupi í flokki 14 ára telpna og hljóp á 12,95 sek. en komst ekki í úrslit, þetta var þó bæting en hún átti best 13.36 sek. Hún keppti einnig í 100m hlaup og hljóp þar á 13.28 sek og komst áfram í úrslit en alls voru hlaupnir 12 riðlar með 8 keppendur í hvorum. Í B- úrslitum varð Arna Stefanía í 6. sæti með tímann 13.51 sek. Í hástökkinu stökk hún 1.52m og varð í 15. sæti


Kastmót í Bottnaryd 27. – 28. júní

Sandra Pétursdóttir sleggjukastari og Valdís Anna Þrastardóttir spjótkastari kepptu á sterku kastmóti í Bottnaryd í Svíþjóð helgina 27.-28. júní en mótið var liður í æfingabúðum sem komu kjölfarið á keppnisferð landsliðsins til Sarajevo um sl. helgi.

Valdís Anna keppti í dag, varð í 4. sæti með kast upp á 43.90 m í mjög erfiðum vindi. Þetta er skammt frá hennar ársbesta árangri, 45.45m og hennar næstlengsta kast frá upphafi og er ljóst að hún á nóg inni ennþá enda keppnistímabilið ný hafið. Lengsta kast Valdísar er hins vegar 46.37 m síðan í fyrra. Sandra Pétursdóttir keppti í sleggjukasti og kastaði 52.46m sem er næstlengsta kast hennar í ár og varð hún í 6. sæti.

 

Einar Daði Lárusson, í 8. sæti á Evrópulistanum

Eftir hina frábæru frammistöðu í Kladno í Tékklandi fyrr í vikunni hefur Einar Daði svo sannarlega stimplað sinn inn í bækur tugþrautarinnar en hann er nú í 8. sæti á Evrópulista drengja með 7.392 stig en röðin er þessi:

 

1. Kai Kazmirek          Þýskalandi       7,527 stig

2. Hendrik Lepik         Eistlandi           7,458 stig

3. Maximilian Glide      Þýskalandi       7,444 stig

4. Yevgeniy Teptin       Rússlandi         7,409 stig

5. Adam Pasiak           Tékklandi         7,404 stig         Sigraði í Kladno

6. Eusebio Cáceres      Spáni               7,396 stig

7. Sergey Sviridov       Rússlandi         7,395 stig

8. Einar Daði Láruss.   Íslandi              7,394 stig        

 

Það má segja að mjótt sé á mununum en eins og sjá má munar sáralitlu á 4. – 8. sætinu

og aðeins eru 133 stig milli 1. og 8. sætis. Einnig er eftirtektarvert að enginn norðurlandabúi annar en Einar Daði er þarna í top 8 og enginn í top 15.

Til hamingju Einar Daði, þetta er magnaður árangur.

 

Einar Daði Lárusson keppir í þraut í Tékklandi

Einar Daði Lárusson keppti á gífurlega sterku fjölþrautarmóti í Kladno í Tékklandi dagana 22. -23. júní en hann og Þráinn Hafsteinsson þjálfari hans freistuðu þess að ná lágmarki á EM 19 ára og yngri sem fram fer í Novi Sad í Serbíu 23. – 26. júlí nk. en lágmarkið er 7000 stig.

 

Ekki byrjaði ferðin vel því á leiðinni til Tékklands týndist farangur Einars sem varð til þess að hann keppti í lánsfatnaði og lánsskóm frá tékkneskum félaga sínum og hljóp t.d. 100m hlaupið í langsstökksskóm og stökk hástökkið í lélegum hástökksskóm sem enduðu með því að gefa sig þannig að sólinn rifnaði þegar síst mátti. Árangur dagsins var þó mjög góður og eins og eftirfarandi tölur sína en til samanburðar eru tölur frá því í fyrra þegar Einar tók þátt í sama móti en varð að hætta eftir kúluvarpið vegna meiðsla.

 

Einar Daði hóf fyrri daginn á að hlaupa 100m á 11,39 sek (11,30 sek) sem er ágætur árangur og jöfnun á hans ársbesta árangri, en það rigndi stíft á keppendurnar í morgunsárið.

Í langstökkinu bætti Einar sinn besta árangur síðan árið 2007 um heila 20 cm þegar hann stökk 7.25 m (6.74m) í langstökki sem er næstlengsta stökk Íslendings í ár. Í þriðju grein dagsins bætti Einar sig einnig þegar hann kastaði 6 kg kúlunni 12,92 m (11,75m) og varð það bæting upp á 50 cm. Í hástökkinu stökk Einar síðan 1.91m en þegar hann reyndi við 1.94 m rifnaði sólinn undan skónum eins og áður segir. Í loka grein dagsins, 400m hlaupi, hljóp Einar á 50,19 sek sem er hans ársbesta.

Niðurstaða fyrri dagsi varð sú að 3.841 stig voru í höfn og 3. sæti, 62 stigum á eftir keppinautum sínum í 1. og 2. sæti.

 

Seinni dagurinn byrjaði einnig mjög vel en þá bætti Einar Daði sig í enn einni greininni þegar hann hljóp 110 m grindahlaup á 14,59 sek, hann sigraði svo í kringlukastinu og bætti sig þar einnig þegar hann kastaði 41.70m átti best 37,88m. Í stönginni jafnaði hann sinn besta árangur þegar hann stökk 4,20m. Spjótkastið gekk einnig eins og í sögu og kastaði hann 49,17m og bætti sig þar einnig. Í loka greininni 1500m hlaupi, sem reynst hefur mörgum tugþrautarkappanum mikil þrekraun, gerði Einar sér lítið fyrir og hljóp á tímanum 4:36,06 mín sem var enn ein bætingin. Í heildina bætti Einar sig í sex greinum.

Þar með var lágmarkið í höfn og einnig íslenskt unglingamet í greininni en heildarstigin urðu hvorki fleiri né færri en 7392 sem er bæting um 122 stig. Einar endaði í 2. sæti aðeins 10 stigum á eftir sigurvegaranum.

 

Heimasíða mótsins er www.desetiboj-kladno.cz en þar eru ekki uppfærð úrslit en þau má lesa á

www.atletika.cz

 

ÍR-ingar í Landsliði Íslands

Ellefu ÍR-ingar skipuðu landslið Íslands í frjálsíþróttum sem keppti í Evrópubikarkeppni landsliða í Sarajevo helgina 20. – 21. júní. 6 eru nýliðar (N) en 5 hafa keppt áður, nú síðast  við góðan orðstír á Smáþjóðaleikunum á Kýpur.

Árangur ÍR-inga var sem hér segir en liðið lenti í 6. sæti, aðeins ½ stigi á eftir

 

Konur

Erna Dís Gunnarsdóttir (N)                  4 x 400m boðhlaup      7. sæti, 3:58,16 mín

Fríða Rún Þórðardóttir            800m                           10. sæti, 2:21.51 mín

Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir                 100m                           7. sæti, 12.90 sek (mótvindur)

                                                           200m                           7. sæti, 26.13 sek

                                                           4 x 100m boðhlaup      3. sæti, 47,46 sek

Hulda Þorsteinsdóttir (N)                    Stangarstökk               3. sæti, 3.70 m

Jóhanna Ingadóttir                                Langstökk                   1. sæti, 6.09 m

                                                           Þrístökk                      3. sæti, 12.84 m

                                                           næstlengsta stökk íslenskrar konu frá upphafi

Sandra Pétursdóttir (N)                       Sleggjukast                  4. sæti, 49.78 m

Þóra Kristín Pálsdóttir (N)                   400m grindahlaup        6. sæti, 66.35 sek

                                                           4 x 400m boðhlaup      7. sæti, 3:58,16 mín

 

Karlar

Einar Daði Lárusson                             110m grindahlaup        8. sæti, 15.61 sek

                                                           Hástökk                      8. sæti, 1.90 m

Guðmundur Sverrisson (N)                  Spjótkast                    

                                                           gerði 2 köst ógild og fékk árangur sinn ekki mældann

Snorri Sigurðsson (N)                          800m                           10. sæti, 1:54,30 mín

                                                           bæting um 1,4 sek

Þorbergur Ingi Jónsson                        1500m                         6. sæti, 3:57,99 mín

                                                           3000m                         10. sæti, 8:55,09 mín  

 

Tveir þjálfarar frá ÍR voru þjálfarar í ferðinni það voru þeir Pétur Guðmundsson kastþjálfari og Þráinn Hafsteinsson yfirþjálfari deildarinnar.

 

67. Vormót ÍR, 10. júlí

Vormót ÍR fór fram í 67. sinn í ágætis veðri, þó hitastigið væri ekki hátt. Mótið var síðasti séns fyrir íslenskt frjálsíþróttafólk að sýna sinn besta árangur fyrir val fyrir landslið Íslands sem keppir í Evrópubikarkeppni Landsliða í Sarajevo 20-21. júní.

Að vanda voru ÍR-ingar í aðahlutverki í mörgum greinum og voru úrslitin eftirfarandi.

 

Karlaliðið

Guðmundur Sverrisson átti frábært kast 66,23 m og bætti sig  um 5 m frá því 4. júní sl. Með þessu kasti sigraði hann keppnina en einnig var þetta glæsilegt lágmark á EM 19 ára og yngri sem fram fer í sumar.

Þorbergur Ingi vann öruggan sigur í Kaldalshlaupinu á góðri bætingu 8:39,22 mín. Hann var í baráttu lengi vel með Karoly Varga og Stefáni Guðmundssyni en var mjög sterkur síðustu 600 metrana og kom langfyrstur  í mark. Vöggur Magnússon setti Íslandsmet í flokki 60 ára í hlaupinu, 12:10;32 mín. Snorri Sigurðsson átti flott hlaup í 800 m og hljóp eins og sá sem valdið hafði síðustu 150 metrana þó hinn gamalreyndi Sigurbjörn Árni væri ekki langt undan. Snorri bætti sinn besta árangur í 1:55,69 sek. og er orðinn landsliðskandidat í greininni. Ólafur Konráð Sigurðsson var í baráttunni þar til 200 voru eftir og hafnaði í 4. sæti á 1:58,58 mín.

Björn J. Þórsson varð þriðji í 100 m hlaupi og hljóp hann á 11,44 sek. og er það stórbæting hjá Birni sem átti best 12,05 sek. frá því í fyrra og hefur bætt sig á hverju móti í vor, síðast í 11,72 sek. og nú í 11,44 sek. Ingi Guðni Garðarsson varð þriðji í kringlukasti með 42,54 m og er hann í mikilli framför. Athygli vakti að ÍR átti 5 keppendur í kringlukastinu en Einar Daði Lárusson tugþrautarkappi varð 4. með 38,42 m og fína bætingu. Aldrei slíku vant átti ÍR engan á verðlaunapalli í 400 m hlaupi karla en Adam Þorgeirsson varð 5. á 53,32 sek. Þór Stefánsson vann langstökk með 5,47 m og Gunnar Guðmundsson var annar með 4,81 m, þeir keppa í drengja og piltaflokki. Gunnar hljóp einn 400 grindahlaup á 73,72 sek. Þeir ásamt fleiri keppendum í yngri flokkunum áttu fína innkomu á mótinu.

 

Konur

Sandra Pétursdóttir átti enn eitt gott kast í sleggjunni en hún kastaði xx m sem er annað lengsta kast hennar og annað lengsta kast íslenskrar konu frá upphafi í sleggjukasti.

Dóróthea Jóhannesdóttir sigraði í 200 m hlaupi á fínum tíma, 26,12 sek. sem er bæting um 0,01 sek. Þóra Kristín Pálsdóttir vann sigur í 400 m grindahlaupi eftir mikla keppni við Maríu Rún Gunnlaugsdóttur úr Ármanni. Þóra hljóp á 65,13 sek. sem er betra en hún hljóp best í fyrra og þriðji besti tími hennar frá upphafi. Hilda Margrét Ragnarsdóttir náði þriðja sæti í hástökki með 1,55 m og átti góðar tilraunir við 1.60m. Valdís Anna Þrastardóttir vann öruggan sigur í spjótkasti með 40,06 en átti mun lengri köst ógild og er greinilega í bætingaformi. Í 100 m hlaupi kvenna voru stöllurnar Jóhanna Ingadóttir og Birna Þórisdóttir í öðru og þriðja sætia á 12;94 og 12,95 sek. en þær hlupu í sitt hvorum riðlinum. Þær skipuðu svo 4 x 100 m boðhlaupssveit ÍR ásamt Elísu Margréti Pálmadóttur og Hrafnhild Eir Hermóðsdóttur sem hljóp geysivel síðasta sprettinn og tryggði ÍR öruggan sigur. Brynhildur Ýr Ottósdóttir varð þriðja í 1500 m hlaupi 5:42,06 mín. Enginn ÍR-ingur var á verðlaunapalli í 400 m hlaupi kvenna en Erna Dís Gunnarsdóttir var mjög nálægt því, náði 4. sæti og bætti sig í 60,30 sek. en hún átti best utanhúss 61,76 sek. Meyjasveit ÍR skipuð Anítu Hinriksdóttur, Veru Sigurðardóttur og Björgu Gunnarsdóttur keppti í 3x800 m boðhlaupi og reyndu þær við Íslandsmetið í greininni, það náðist ekki en þær hlupu 13 sekúndum hraðar en þegar þær urðu Íslandmeistarar á dögunum og eru allar í meyjaflokki á næsta ári og ná væntanlega metinu þá. ÍR átti marga keppendur úr meyja og sveinaflokki sem eru að fara að gera sig gildandi í keppni þeirra fullorðnu og ljóst að Örvar Ólafsson, Soffía Theodóra Tryggvadóttir og Þóra Guðfinnsdóttir eru að þjálfa upp mjög sterkt lið í þeim flokkum.

 

Norðurlandameistaramót Unglinga í Fjölþrautum

NM unglinga 22 ára og yngri í fjölþrautum fór fram á Kópavogsvelli helgina 13.-14. júní við ágætar aðstæður þrátt fyrir rigningu af og til. Mjög góður árangur náðist en Íslandsmetið í sjöþraut kvenna féll með glæsibrag þegar Helga Margrét Þorsteinsdóttir úr Ármanni hlaut 5721 stig og bætti metið um nærri 200 stig.

Börkur Smári Kristinsson átti jafna og ágæta þraut í flokki undir 20 ára, og braut 6000 stiga múrinn þegar hann fékk samtals 6013 stig. Börkur hefur ekki mikla reynslu í tugþrautinni og má vera mjög sáttur við sinn árangur en árangur hans í einstökum greinum var sem hér segir: 100 m hlaup 11,68/715 – langstökk 6,30/652 – kúluvarp 10,89/539 – hástökk 1,64/496 – 400 m hlaup 51,44/749 – 110 m grind 17,19/605 –– kringlukast 31,57/495 - stangarstökk 4,00/617  – spjótkast 41,47/463 - 1500m hlaup 4:39,78/682.

 

Einar Daði byrjaði vel enda í hörkuformi og því til alls líklegur. Hann var með forystu eftir fyrstu grein, hljóp hraðast í 100 m á 11,39 sek. en gerði síðan ógilt í öllum stökkunum í langstökki. Þar með var þrautin ónýt þó Einar tæki þátt í kúluvarpinu og hástökki. Einar Daði fer því með Þránni Hafsteinssyni þjálfara sínum í tugþraut í Tékklandi strax eftir Evrópubikarkeppnina um næstu helgi, þrautin fer fram á þriðjudag og miðvikudag. Dóróthea Jóhannesdóttir keppti í flokki 18 ára og yngri en hún er aðeins 15 ára í ár. Hún átti ágætar greinar fram að spjótkastinu en þar gerði hún ógilt í öllum tilraunum og féll þar með úr leik.

Reykjavíkurmeistaramót 10 ára og yngri

Reykjavíkurmeistaramót 10 ára og eldri var haldið á Laugardalsvelli 10. júní. Yngstu iðkendurnir stóðu sig frábærlega vel að vanda og eignaðist ÍR þarna 14 Reykjavíkurmeistara auk þess sem 10 silfurverðlaun og 6 bronsverðlaun komu í hús. Næsta mót hjá þessum aldursflokki er Goggi Galvaski sem fram fer helgina 20-21. júní í Mosfellsbæ

Helstu úrslit

Pollaflokkur

Þorvaldur Tumi Baldursson      60m hlaup        1. sæti  11,33 sek

                                               400m hlaup      1. sæti  1:27,83 mín

 

Tryggvi K Tryggvason  60m hlaup        2. sæti  14,54 sek

                                               Langstökk        1. sæti  2,08m

                                               Boltakast         1. sæti  23,54 m

 

Áki Hlynur Andrason               60m hlaup        3. sæti  14,61 sek

                                               400m hlaup      2. sæti  2:02,14 mín

                                               Langstökk        3. sæti  1,80 m

                                               Boltakast         3. sæti  14,70 m

Pæjuflokkur

Díana Svava Arnardóttir          60m hlaup        1. sæti  12,43 sek

                                               400m hlaup      1. sæti  1:44.17 mín

                                               Langstökk        1. sæti  2,49 m

                                               Boltakast         2. sæti  7,77 m

 

Sara Ísabel Gunnlaugsd.           60m hlaup        2. sæti 13,99 sek

                                               Langstökk        2. sæti  1,82 m

                                               Boltakast         1. sæti  9,15 m

 

Hnokkar

Árni Haukur Árnason               60m hlaup        2. sæti  9,73 sek

                                               600m hlaup      1. sæti  2:18.79

                                               Langstökk        1. sæti  3,66 m

                                               Kúluvarp          2. sæti 7,33 m

 

 

Þorsteinn Ívar Albertsson         60m hlaup        3. sæti  10,77 sek

                                               Kúluvarp          3. sæti  6,83 m

 

Hnátur

Tinna Sif Arnarsdóttir               60m hlaup        1. sæti  11,08 sek

                                               600m hlaup      1. sæti  2:33,26 mín

                                               Langstökk        1. sæti  3,05 m

                                               Kúluvarp          1. sæti  4,65 m

 

Elísabet Sunna Gunnarsd          60m hlaup        2. sæti  11,21 sek

                                               600m hlaup      2. sæti  2;37,83 mín

                                               Langstökk        2. sæti 2,84 m

 

Harpa Sigríður Ólafsdóttir        600m hlaup      3. sæti  2:38.85 mín

 

Fríða Rún Þórðardóttir

Varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR