5.1.2010
Janúarpistill 2010 fyrir Breiðholtsblaðið
Íþróttakarl og -kona úr röðum frjálsíþróttafólks
Jóhanna Ingadóttir og Einar Daði Lárusson frjálsíþróttakona og frjálsíþróttakarl ársins voru kjörin íþróttakona og íþróttakarl ÍR 2009.
Jóhanna Ingadóttir, 27 ára lang- og þrístökkvari, var annað árið í röð valin íþróttakona ÍR og á hún nafnbótina svo sannarlega skilið.
Árangur á mótum ársins var einstakur, fjórir Íslandsmeistaratitlar, 3 Bikarmeistaratitlar, 2 Landsmótsmeistaratitlar og Íslands- og Bikarmeistari með ÍR. Sigurvegari í langstökki í Evrópukeppni landsliða og 3. sæti Í þrístökki, Smáþjóðaleikameistari í þrístökki og annað sæti í langstökki. Árangur ársins færði hana í sæti annars besta lang- og þrístökkvari sem Ísland hefur átt í kvennaflokki frá upphafi.
Jóhanna hóf árið á því að vera valin inn í Ólympíuhóp Frjálsíþróttasambands Íslands með árangri sínum í langstökki og þrístökki og í framhaldi af því valdist hún inn í A-hóp ÍR-OL2012. Þetta gaf henni byr undir báða vængi sem hún hefur nýtt vel til afreka ársins. Stefnir hún ótrauð á áframhaldandi veru í þessum hópum, markmið ársins eru skýr með áframhaldandi afrek og framúrskarandi árangur og framtíðarmarkmiðið er lágmark á Ólympíuleikana í London 2012
Jóhanna er frábær íþróttamaður, á sama tíma frábær fulltrúi ÍR, frjálsíþrótta og ekki síst fyrirmynd ungra íþróttamanna því fagmennska og íþróttamannsleg framkoma er í öndvegi á öllum sviðum.
Einar Daði Lárusson, 19 ára tugþrautarmaður og grindahlaupari, var valinn íþróttakarl ÍR 2009 í fyrsta sinn og er hann virkilega vel að þeim titli kominn. Árangur ársins 2009 var einkar glæsilegur þrátt fyrir fótbrotið í byrjun árs og nokkuð mótlæti í tugþrautarkeppnum sumarsins. Hann varð Íslands- og Bikarmeistari í fjölda einstaklingsgreina og með ÍR auk þriggja Íslandsmeta svo ekki sé minnst á Norðurlandameistaratitil í 400m hlaupi í flokki 19 ára og yngri og 8. sæti á afrekaskrá í tugþraut á Evrópumælikvarða.
Einar Daði náði mikilvægum áfanga seinni hluta sumars þegar hann náði inn í A-hóp ÓL-hóps FRÍ og ÍR-OL2012 í tugþraut.
Markmið næsta árs eru skýr. Áframhaldandi stigvaxandi framfarir, að halda stöðu sinni í A-hóp FRÍ og Frjálsíþróttadeildarinnar, keppni með landsliði Íslands og lágmörk á Norðurlandamót. Lágmörk á stærri mót eins og EM og HM eru í sjónmáli og verður stefnt á þau ásamt stóra markmiðinu Ólympíuleikarnir í London 2012.
Einar Daði er glæsilegur íþróttamaður sem nýtur virðingar í frjálsíþróttaheiminum fyrir framgöngu sína, utan vallar sem innan, góðrar framkomu, jákvæðni og fagmennsku fram í fingurgóma. Hann er einnig mjög mikill og góður námsmaður sem útskrifast í vor frá Menntaskólanum í Reykjavík.
Úrvals- & Afrekshópur Ungmenna FRÍ
Þegar líður að lokum sögulegs árs í frjálsíþróttum hjá Frjálsíþróttadeild ÍR er vert að uppfæra upplýsingar um ýmsar hópa og árangra. Fyrst ber að nefna Úrvalshóp Ungmenna FRÍ en þar eiga ÍR ingar 44 íþróttamenn á aldrinum 15-22 ára. Í öðru lagi er það Afrekshópur Ungmenna FRÍ en þar á Frjálsíþróttadeildin 13 af 21 íþróttamönnum. Miðað er við löglegan árangur utan- og innanhúss á árunum 2008 og 2009. Þó svo að starfsemi hópanna sé ekki virk eins og sakir standa er haldið utan um hópinn bæði hjá deildinni og hjá FRÍ.
Óskum þeim sem náð hafa árangri inn í þessa hópa til hamingju með það og vonum að það sé aðeins fyrsta skrefið í afreksmennsku framtíðarinnar.
Listi yfir íþróttafólkið og árangur þeirra fer hér á eftir.
Afrekshópur
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, 1995
200m, 400m, þrístökk
Björg Gunnarsdóttir, 1994
800m
Chelsey Kristína Birgisdóttir, 1994
800m, 1500m
Dóróthea Jóhannsdóttir, 1994
100m, 200m, Hástökk, Þrístökk
Hjalti Garðarsson, 1993
Kringlukast
Guðrún Haraldsdóttir, 1993
Hástökk
María Ósk Felixdóttir, 1992
Sleggjukast
Hulda Þorsteinsdóttir, 1991
Stangarstökk
Valdís Anna Þrastardóttir, 1991
Spjótkast
Snorri Sigurðsson, 1991
800m
Einar Daði Lárusson, 1990
400m, 110m grind, 400m grind, Tugþraut
Guðmundur Sverrisson, 1990
Spjótkast
Sandra Pétursdóttir, 1989
Sleggjukast
Úrvalshópur
1995
Arnar Orri Sverrisson Arna Stefanía Guðmundsdóttir
Gunnar Guðmundsson Hekla Rún Ámundadóttir
1994
Magnús Reynir Rúnarsson Björg Gunnarsdóttir
Mikael Gunnlaugsson Chelsey Kristína Birgisdóttir
Kolbeinn Stefánsson Dóróthea Jóhannsdóttir
Fanny Hermundsdóttir Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir
Vera Sigurðardóttir
1993
Ástbjörn Haraldsson Guðrún Haraldsdóttir
Hjalti Garðarsson Heiður Þórisdóttir
Ingvi Þór Hermannsson Hilda Margrét Ragnarsdóttir
Sindri Lárusson
1992
Juan Ramón Borges Bosque María Ósk Felixdóttir
Sigurlaug Helgadóttir
1991
Adam Þór Þorgeirsson Hulda Þorsteinsdóttir
Snorri Sigurðsson Marta Sigrún Jóhannsdóttir
Stefán Árni Hafsteinsson Valdís Anna Þrastardóttir
1990
Björn Jóhann Þórisson Erna Dís Gunnarsdóttir
Börkur Smári Kristinsson Einar Daði Lárusson
Guðmundur Sverrisson Ingi Guðni Garðarsson
1989
Ólafur Konráð Albertsson Annie Mist Þórsdóttir
Ásdís Magnúsdóttir Helga Þráinsdóttir
Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir Sandra Pétursdóttir
1988
Þóra Kristín Pálsdóttir
Gamlárshlaup ÍR, haldið í 34. sinn.
Á gamlársdag var Gamlárshlaup ÍR þreytt í 34. sinn en hlaupið hefur farið fram árlega frá árinu 1976. Hlaupið er ræst á hádegi í miðri Túngötunni en áður var rásmarkið og endamarkið við ÍR-húsið sem þá stóð efst í Túngötunni, beint á móti Landakotsspítala. ÍR húsið stendur nú á Árbæjarsafni og er það í góðu ásigkomulagi og vel við haldið.
Fram til ársins 1998 vantaði 700m upp á að hlaupið næði 10 km en vegalengdin var þá lengd upp í 10 km. Fyrsta árið voru þátttakendur 10 talsins en árið 1991 voru þátttakendur í fyrsta sinn fleiri en 100. Síðan hefur þátttakan aukist jafnt og þétt, árið 2008 tóku 760 hlauparar þátt en í ár var nýtt met slegið þegar 937 keppendur hlaupinu sem er ekki síst að þakka gífurlegri aukning almennings á þessu hlaupi.
Flestir bestu hlauparar landsins taka þátt í hlaupinu en á síðari árum hefur fjölgað mjög þeim hlaupurum sem ljúka árinu með því að skokka 10 km í góðum hópi án þess að vera að hugsa um að bæta sinn tíma, og þá gjarnan mætt í skrautlegum búningum og mynda þannig hálfgerða festival stemmingu sem dregur að áhorfendur.
ÍR-Konur í top 10
3. sæti Aníta Hinriksdóttir (96) 40:07 mín
4. sæti Gerður Rún Guðlaugsd (72) 40:13 mín
5. sæti Eva Margrét Einarsd (71) 40:18 mín
10. sæti Gígja Gunnlaugsdóttir (82) 44:58 mín
11. sæti Brynhildur Ýr Ottósd (90) 45:01 mín
Konur 19 til 39 ára
3. sæti Gerður Rún Guðlaugsd (72) 40:13 mín
Konur 40 til 44 ára
1. sæti Hrönn Guðmundsdóttir (65) 41:06 mín
Konur 45 til 49 ára
1. Sæti Björg Árnadóttir (64) 46:24 mín
Konur 50 til 54 ára
1. Sæti Sigurbjörg Eðvarðsd (58) 41:10 mín
6. Sæti Jónína Kristín Ólafsd (57) 55:22 mín
Konur 55 til 59 ára
1. Sæti Anna Sigrún Björnsd (54) 52:23 mín
2. Sæti Svava Oddný Ásgeirsd (54) 55:07 mín
ÍR-Karlar í top 10
4. sæti Þórólfur Ingi Þórsson (76) 35:26 mín
6. sæti Birkir Marteinsson (71) 35:37 mín
10. Sæti Ingvar H Guðmunds (88) 36:59 mín
Flokkaúrslit, ÍR-ingar í top 3
Karlar 18 ára og yngri
2. sæti David Erik Mollberg (94) 43:15 mín
Karlar 40 til 44 ára
1. sæti Þorlákur Jónsson (65) 38:09 mín
Karlar 45 til 49 ára
3. sæti Sveinn Ásgeirsson (64) 39:35 mín
Karlar 50 til 54 ára
1. sæti Sigurjón Sigurbjörns (55) 37:11 mín
2. sæti Steinar Jens Friðgeirs (57) 37:24 mín
Karlar 60 til 69 ára
3. Sæti Jóhann H Jóhannsson (45) 46:48 mín Hljóp í 29. Sinn!
5. sæti Pétur Einar Pétursson (49) 49:00 mín
Karlar 70 ára og eldri
1. sæti Ketill Arnar Hannesson (37) 57:08 mín
Til hamingju ÍR-ingar með frábæran árangur, met hlaupið og fína framkvæmd á glæsilegum atburði sem við erum mjög stolt af.
Sindri Lárusson í Úrvalshóp ungmenna FRÍ
Á öðru jólamóti ÍR náði Sindri Lárusson (1993) inn í úrvalshóp ungmenna FRÍ með gullfallegu kasti í kúluvarpi 14.34 m, þetta er vel yfir lágmarkinu inn í hópinn sem er 13.70m. Sindri er framtíðarkastari bæði í kúluvarpi og kringlukasti og er fyrsta skrefinu náð með því að ná inn í Úrvalshópinn. Til hamingju Sindri.
Uppskeruhátíð Frjálsíþróttadeildar
Þann 20. desember var uppskeruhátíð Frjálsíþróttadeildarinnar haldin í ÍR-heimilinu. Frjálsíþróttakona og frjálsíþróttakarl ársins voru tilkynnt og eru það þau Jóhanna Ingadóttir og Einar Daði Lárusson sem verða glæsilegir fulltrúar Frjálsíþróttadeildar til kjörs á íþróttakonu og íþróttakarli ÍR sem tilkynnt verður 3. janúar. Jóhanna og Einar Daði eru verðugir fulltrúar deildarinnar en bæði áttu þau frábært ár 2009 auk þess að vera frábærar fyrirmyndir utanvallar sem innan. Jóhanna var kjörin íþróttakona ÍR fyrir árið 2008.
Við sama tækifæri var framfarabikarinn sem hjónin Svanhildur Hauksdóttir og Felix Sigurðsson gáfu til að verðlauna mestu framfarir hvers árs afhentur. Miðað er við stigaútreikninga og var það Björn J. Þórsson sem hlaut viðurkenninguna fyrir frábærar bætingar í 100m hlaupi á árinu 2009. Fyrir átti hann 12.25 sek en í lok sumars hafði hann hlaupið best á 11.18 sek sem eru 292 árangusstig skv. stigatöflu Alþjóða Frjálsíþróttasambandsins IAAF. Í öðru sæti var Marta Sigrún Jóhannsdóttir fyrir bætingar í 1500m hlaupi (255stig), í þriðja sæti Hafsteinn Birgir Einarsson fyrir 800m (252stig), í fjórða sæti var Einar Daði Lárusson fyrir bætingar í stangarstökki (237 stig) og í fimmta sæti Björn J. Þórsson fyrir bætingu í 200m hlaupi (230 stig).
Fyrsta Jólamót ÍR, 19. desember, 7 Íslandsmet
Góður árangur náðist á fyrsta Jólamóti ÍR í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Í 600 m hlaupi karla setti Ólafur Konráð Albertsson ÍR nýtt Íslandsmet 1:20,86 mín. Annar í hlaupinu varð Snorri Sigurðsson ÍR á 1:21,20 sem einnig er undir gamla Íslandsmetinu sem Björn Margeirsson FH setti 2007, 1:21,39 mín. Í sama hlaupi setti Arnar Orri Sverrisson ÍR piltamet, 1:27,98 mín. Þær Vera Sigurðardóttir, Heiður Þórisdóttir, Björg Gunnarsdóttir og Dóróthea Jóhannesdóttir settu Íslandsmet í meyjaflokki í 4x200 m boðhlaupi, 1:46,75 mín. og í sama hlaupi settu Kristín Liv Jónsdóttir, Elísa Pálmadóttir, Hekla Rún Ámundadóttir og Arna Stefanía Guðmundsdóttir telpnamet, 1:47,53 mín. Í stangarstökki karla var mikil stemming og þrír ÍR-ingar settu perónulegt met það voru þeir Einar Daði Lárusson ÍR (19 ára) og Stefán Árni Hafsteinsson ÍR (18 ára) bættu sinn árangur í 4,50 m og Börkur Smári Kristinsson ÍR (19 ára) stökk 4,40 m sem er hans besti árangur. Piltamet féll í stangarstökki þegar Óskar Markús Ólafsson UMFA stökk 3,40 m. Í strákaflokki setti Ólafur Werner Ólafsson Breiðabliki Íslandsmet í 200 m hlaupi, hljóp á 26,77 sek. Strákasveit Breiðabliks setti Íslandsmet í 4x200 m boðhlaupi, 1:58,87 mín. Öll úrslit verða sett inn á mótaforrit FRÍ. Óhætt er að segja að úrslit á þessu móti lofi góðu fyrir innanhússtímabilið. Árangur Ólafs og Snorra í 600 bendir til að búast megi við miklum bætingum hjá þeim í 800 m. Þá er uppgangur þeirra Einars Daða, Stefáns Árna og Barkar í stangarstökki bara rétt að byrja og næsta spurning hver þeirra verði fyrstur til að ná ÍR meti Sverris Guðmundssonar 4,60 m frá 2002
Annað jólamót ÍR 21. desember, 7 Íslandsmet í viðbót
Aldurflokkametunum hélt áfram að rigna inn þann 21. desember í Laugardalshöllinni.
Einar Daði Lárusson byrjaði mótið á að setja Íslandsmet í 60m grindahlaupi unglinga þegar hann hljóp á 8.30sek, fyrir átti Einar best 8.81 sek sem þá var Íslandsmet unglinga. Næsta met sem féll var í 400 hlaupi telpna er þar kom sá og sigraði Arna Stefanía Guðmundsdótti á tímanum 57.81 sek þetta var bæting á besta árangri hennar um meira en 4 sek innahúss. Gamla metið var var 59.81 sek og er því um glæsilega bætingu að ræða. Skammt er í metið í meyjaflokki 57.53 sek. Viðmið inn í B-hóp ÍR-OL2012 er 57.23 sek og er það einnig skammt í þann áfanga. Aníta Hinriksdóttir hljóp glæsilegt 1000m hlaup, hljóp á 3:06.67 mín og bætti sinn besta árangur um 7 sek. Þetta er Íslandsmet í flokki 12-13 ára en gamla metið var 3:15,7 mín sett árið 1983.
Arnar Orri Sveinsson setti met í 400m hlaupi pilta þegar hann hljóp á 54.12 sek og bætti sinn besta árangur og gamla metið sem var 55.22 sek síðan 2005. Í stelpnaflokki var einnig sett met en þar var á ferðinni Rannveig Rögn Leifsdóttir sem setti met í 400m hlaupi þegar hún hljóp á 64,40sek.
Að lokum settu stráka- og piltasveitir Breiðabliks met í 4 x 200m boðhlaupi. Piltasveitin hljóp á 1:42.31 mín en strákasveitin hljóp á 1:57,0 mín
Öll úrslit birtast í mótaforriti FRÍ innan tíðar.
Þriðja jólamót ÍR, 28. Desember, 6 Íslandsmet
Nýjum Íslandsmetunum hélt áfram að fjölga á síðasta innanhússmóti ársins 2009. Mótið var fjölmennt og mætti góður hópur að norðan til að taka þátt í mótinu og bæta sinn árangur svona rétt fyrir áramótin. Einnig var góður hópur frá Breiðabliki auk allra ÍR-inganna en alls voru 100 keppendur samankomnir í Laugardalshöllinni ásamt góðum hópi áhorfenda það var því fín stemming og góður bætingaandi.
Fyrsta met dagsins féll í 600m hlaupi þegar Arna Stefanía Guðmundsdóttir var enn og aftur á ferðinni en hún hefur verið iðin við að setja met á árinu. Hún hljóp stórglæsilegt hlaup, á 1:39.75 mín og bætti telpnamet Lindu Bjarkar Loftsdóttur FH síðan 1982 sem var 1:47,2 mín um 8 sek. Kristín Birna Ólafsdóttir sem meira er þekkt fyrir afrek sín í grindahlaupi og sjöþraut hljóp einnig mjög vel og var aðeins hársbreidd frá Íslandsmetinu í greininni sem er í eigu Stefaníu Hákonardóttur og er 1:35.40 mín.
Aníta Hinriksdóttir hefur einnig verið iðin við að setja metin en hún setti telpnamet í 3000m hlaupi þegar hún hljóp á 10:33.20 mín og bætti ársgamalt met Birnu Varðardóttur um næstum 1 mínútu.
ÍR meyjar 15-16 ára (reyndar með amk 2 telpum innanborðs) setti met í 4 x 400m boðhlaupi þegar þær hlupu á 4:10.23 mín en metið var 4:14,18 mín þær sem skipuðu sveitina voru Vera Sigurðardóttir, Björg Gunnarsdóttir, Kristín Lív Svabo Jónsdóttir og Arna Stefanía Guðmundsdóttir. ÍR drengir 17-18 ára settu met í sömu vegalengd þegar þeir hlupu á 3:33.74 mín, fyrra metið var í eigu FH drengja og var 3:40,65 mín síðan desember 2007.
Önnur met sem féllu voru met féll í stangarstökkinu þegar Óskar Markús Ólafsson Aftureldingu setti piltamet þegar hann stökk 3.50m og einnig þegar sveit Breiðabliks setti met í piltaflokki 13-14 ára í 4 x 200m boðhlaupi hlupu á 1:42.04 mín
Annar sérlega markverður árangur var stangarstökk Einars Daða Lárussonar þegar hann vippaði sér öruggur yfir 4.60m í stönginni og bætti sig um 10 cm síðan fyrir viku síðan, hann átti síðan góða tilraun við 4.70m. Fríða Rún Þórðardóttir hljóp einnig gott 3000m hlaup, 10:00,9 mín, ársbesti tími á Íslandi og besti tími hennar sjálfrar innanhúss síðan 2005.
Úrslit mótsins verða komin á mótaforrit FRÍ innan skamms.
Chelsey Sveinsson önnur í FootLocker Víðavangshlaupinu í Bandaríkjunum
Laugardaginn 12. desember keppti Chelsey Sveinsson í úrslitakeppni Foot Locker víðavangshlaupsins í San Diego í Kaliforníu. Chelsey rétt missti af sigrinum þegar hún var aðeins 2/100 á eftir sigurvegaranum Megan Goethals sem rétt „nappaði“ Chelsey á loka metrunum. Megan hljóp á 17:06,9 mín en Chelsey á 17:07,1 mín. Þetta er mjög góður árangur hjá Chelsey sem enn á eitt ár eftir í þessari keppni.
Um er að ræða keppni 40 stúlkna og 40 drengja á grunnskólaaldri (highschool) sem koma frá norður-, suður-, vestur- og austurhluta Bandaríkjanna. Chelsey sigraði einnig með nokkrum yfirburðum, undankeppnina í suðuhlutanum, en hún býr í Dallas Texas.
Árið 2007 varð Chelsey í 15. sæti og fyrir ári síðan náði hún 4. sæti í þessari sömu úrslitakeppni á þessum sama kúrsi sem þótti þá mjög erfiður. Chelsey þekkti kúrsinn því nokkuð vel. Árið 2007 fékk Chelsey viðurkenningu fyrir framúrskarandi árangur en hún var þá lang yngsti keppandinn. Í ár er aðeins ein af þeim 3 sem sigruðu hana enn inni í keppninni þar sem þær hafa útskrifast úr grunnskóla.
Heimasíða mótsins er http://footlockercc.com/ og þar er hægt að skoða úrslitin.
ÍR-ingar á topplistum í lengri hlaupunum
ÍR-ingar eru mjög áberandi á afreksránni í götuhlaupum fyrir árið 2009. Á lista yfir 25 bestu sem birtur er á www.hlaup.is er hlutfall ÍR-inga mjög hátt og ber vott um hið gróskumikla starf sem unnið er innan ÍR. Sumir á listanum eru í hópi millivegalengdahlaupara, aðrir í maraþonhópnum og síðan eru öflugir fulltrúar ÍR-skokks á listanum. Þjálfarar þessara hópa eru Burkni Helgason, Gunnar Páll Jóakimsson, Þorlákur Jónsson og Örnólfur Oddsson.
Sjá listi, viðhengi II