hreysti


valitor











































Lesa frétt
24.4.2010

Febrúarpistill 2010 fyrir Breiðholtsblaðið

Fréttir frá Frjálsíþróttadeild ÍR  
Meistaramót Íslands aðahluti 6.-7. febrúar
Helgina 6.-7. febrúar fór MÍ aðahluti fram í Laugardalshöllinni. Um 170 keppendur voru skráðir til leiks þar af 51 frá ÍR. ÍR-ingar kepptu í öllum 26 greinar mótsins nema hástökki karla og voru 1-6 ÍR-ingar í hverri grein, auk þess sem 2 sveitir karla og 2 sveitir kvenna hlupu í 4 x 400m boðhlaupum.   Alls unnust 10 Íslandsmeistaratitlar samanborið við 3 árið 2009 og voru ÍR-ingar á palli í 19 greinum af 26 sem verður að teljast frábær árangur. Þau sem hlutu gull voru: Jóhanan Ingadóttir í lang- og þrístökki, Snorri Sigurðsson í 400m, 800m og boðhlaupi, Arna Stefanía Guðmundsdóttir í 200m og boðhlaupi, Fríða Rún Þórðardóttir í 1500m, Fanney Björk Tryggvadóttir í stangarstökki og Helga Þráinsdóttir í hástökki og boðhlaupi. Vera Sigurðardóttir, Erna Dís Gunnarsdóttir, Helga Þráinsdóttir og Arna Stefanía Guðmundsdóttir sigruðu í 4 x 400m boðhlaupi. Í karla boðhlaupinu voru það Börkur Smári Kristinsson, Ólafur Konráð Albertsson, Adam Þorgeirsson og Snorri Sigurðsson sem hlupu til sigurs.   Þau Arna Stefanía Guðmundsdóttir, Jóhanna Ingadóttir og Snorri Siguðrsson voru atkvæðamestar ÍR-inga. Arna Stefanía vann til tveggja gullverðlauna, einna silfurverðlauna og tveggja bronsverðlauna, Snorri fékk þrjú gull, Jóhanna fékk tvö gull og eitt silfur og Helga Þráinsdóttir fékk tvö gull. Arna setti nýtt aldursflokkamet í bæði meyja, stúlkna og unglingaflokki í 400m hlaupi þegar hún hljóp á 57,20 sek. Aníta Hinriksdóttir bætti eigin aldursflokkamet bæði í 1500m og 3000m hlaupi þegar hún hljóp 1500m á 4:47.30mín og 3000m á 10:29,15 mín. Stórglæsilegur árangur þeirra stúlkna.   ÍR átti titil að verja í stigakeppni kvenna en sigur hafði unnist undanfarin 3 ár og stóð liðið undir væntingum sínum með fjórða sigrinum sem Íslandsmeistari félagsliða. Karlarnir höfðu orðið í öðru sæti síðustu 2 árin og svo varð einnig í ár en þó var bilið í FH liðið, sem bar sigur úr bítum ekki breitt, og spurning hvað hefði gerst ef allri ÍR karlarnir hefðu verið heilir en Einar Daði Lárusson gat ekki keppt.  Einnig voru heilladísirnar ekki með öllum ÍR keppendunum alla helgina en þrjár konur úr ÍR-liðinu náðu ekki heldur að skila sínu vegna meiðsla og óhappa.   Í heildarstigakeppninni átt liðið meistaratitil að verja eins og 2 síðustu ár og náðist markmiðið og gott betur þegar liðið sigraði með um það bil 12000 stiga mun á lið Fjölnis.   Góður stígandi hefur verið í árangri ÍR-inga sl. 4 helgar og er það vísir á enn frekari bætingar og fínan árangur á næstunni.Úrslit www.fri.is /mót / mótaforrit  
Styrkveitingar ÍSÍ, ungir og efnilegir íþróttamenn
Þann 29. janúar sl. var tilkynnt hverjir hlutu styrki úr afrekssjóði ÍSÍ www.isi.is Fimm ÍR-ingar úr frjálsíþróttadeildinni hlutu styrki en þau eru í stafrófsröð: Einar Daði Lárusson (1990) tugþrautarmaður og Íþróttamaður ÍR í karlaflokki, Guðmundur Sverrisson (1990) spjótkastari, Hulda Þorsteinsdóttir (1990) stangarstökkvari, Sandra Pétursdóttir (1989) sleggjukastari og Snorri Sigurðsson (1990) millivegalengdahlaupari. Það að hljóta slíka styrki er gífurlega mikil hjálp á leiðinni til afreksmennsku ekki síður vegna viðurkenningarinnar sem í því felst að tekið sé eftir því sem vel er gert. Til hamingju með að vera í hópi með bestu íþróttaungmennum á Íslandi.    
Meistaramót 35 ára og eldri, 13. – 14. febrúar
Það er ekki aðeins yngri ÍR-ingar sem standa sig vel og vinna til verðlauna. Á MÍ öldunga voru fjöldi ÍR-inga mættir til leiks og unnu alls 17 gullverðlaun og 6 silfurverðlaun auk þess að sigra stigakeppni félaganna með 90 stiga mun. Flest verðlaun hlutu Eva Margrét Einarsdóttir, þrenn gullverðlaun, Sigurður Hansen tvenn gullverðlaun, Hafsteinn Óskarsson tvenn gullverðlaun, Stefán Hallgrímsson tvenn gullverðlaun og Agnar Steinarsson tvenn gull- og tvenn silfurverðlaun, Sumarliði. Frábært að sjá svo öfluga eldri iðkendur etja kappi í íþróttagrein þar sem allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  
Viðurkenningar Framfara fyrir árið 2009
Síðan árið 2003 hafa Framfarir – hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara veitt árlegar viðurkenningar til kven- og karlhlaupara sem skarað hafa fram úr á árinu. Efnilegasti unglingurinn og mestu framfarirnar hafa einnig verið viðurkenndar svo og, og ekki síst Hlaupahópur ársins. Í ár hlutu fjórir ÍR-ingar viðurkenningar.   Í ár voru það Kári Steinn Karlsson Breiðabliki og Fríða Rún Þórðardóttir ÍR sem hlutu viðurkenninguna fyrir árangur sinn á liðnu ári. Þetta er þriðja árið í röð sem Kári Steinn er valinn besti hlauparinn og í sjötta sinn sem hann hlítur viðurkenningu frá Framförum en árin 2004, 2006, 2007 hafði hann sýnt mestu framfarirnar og árið 2005 var hann efnilegastur. Fríða Rún hlítur þessa viðurkenningu í annað sinn en hún var einnig kjörin besti kvenhlauparinn árið 2007.   Björg Gunnarsdóttir, 800m hlaupari úr ÍR var valin efnilegust og Ólafur Konráð Albertsson ÍR sem hleypur 800m, 1500m, 3000m og 3000m hindrun sýndi mestu framfarirnar. Við samas tilefni voru Framfarastyrkirnir afhentir en það voru þeir Snorri Sigurðsson ÍR og Ólafur Konráð Albertsson ÍR sem voru valdir úr hópi umsækjenda. Hlaupahópur ársins 2009 var öflugur hópur Ísfirðinga sem æft hafa undir öflugri stjórn ÍR-ingsins Mörthu Ernstsdóttur.  
Meistaramót Íslands 15-22 ára innanhúss - ÍR Íslandsmeistar í 7. sinn Meistaramót Íslands 15-22 ára fór fram helgina 30.-31. Janúar í Laugardalshöllinni en ÍR sendi 60 öfluga íþróttamenn til leiks. Þetta er mesti fjöldi sem ÍR hefur nokkurn tímann sent í þessa keppni og mesti fjöldi sem keppt hefur frá einu félagi á þessu móti. Heildarfjöldi keppenda var 218 og skráningar 678 þannig að að meðaltali var hver keppandi að taka þátt í  þremur greinum þessa tvo keppnisdaga. Frábær árangur náðist þar sem ÍR liðið sigraði heildarstigakeppnina með 200 stiga mun á næsta lið. Sigur vannst í öllum stigakeppnum einstakra aldursflokka nema í flokki sveina en þeir urðu í 3. sæti. Alls unnust 20 gullverðlaun, 17 silfurverðlaun og 22 bronsverðlaun hreint glæsileg frammistaða. Mikið var um bætingar hjá ÍR-ingunum og sú óvanalega staða kom upp á í meyjaflokki vannst þrefaldur ÍR-sigur í 4 greinum, 200m, 800m, hástökki og þrístökki.   Íslandsmeistarar í flokki 15-22 ára
Meyjar 15-16 ára
Arna Stefánía Guðmundsdóttir- 60m, 800m, 60m grind, þrístökki, boðhlaupi
Björg Gunnarsdóttir-boðhlaupi
Dóróthea Jóhannesdóttir-200m, langstökki, hástökki, boðhlaupi
Hekla Rún Ámundadóttir- kúluvarpi
Vera Sigurðardóttir - boðhlaupi  
Sveinar 15-16 ára
Arnar Orri Sverrisson - 800m  
Stúlkur 17-18 ára
Sigurlaug Helgadóttir - þrístökki  
Drengir 17-18 ára
Damian Frontczah - boðhlaupi
Ívar Jasonarson - boðhlaupi
Juan Ramon Borges Bosque - 200m, langstökki, boðhlaupi
Þór Stefánsson - boðhlaupi  
Ungkonur
Ásdís Eva Lárusdóttir - boðhlaupi
Erna Dís Gunnarsdóttir  - boðhlaupi
Helga Þráinsdóttir - hástökki, boðhlaupi
Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir - 60m
Hulda Þorsteinsdóttir - stangarstökki
Sara Björk Lárusdóttir - oðhlaupi  
Ungkarlar 19-20 ára
Adam Þór Þorgeirsson - boðhlaupi
Börkur Smári Kristinsson- boðhlaupi
Snorri Sigurðsson - 800m, boðhlaupi
Ólafur Konráð Albertsson - 1500m, boðhlaupi  
Öll úrslit mótsins má finna a www.fri.is / mót / mótaforrit og á heimasíðu  Frjálsíþróttadeildarinnar.  
14. Stórmót ÍR
Fjölmennasta innanhússfrjálsíþróttamót sem haldið hefur verið á Íslandi Stórmót ÍR í frjálsíþróttum hefur undanfarin ár verið fjölsóttasta ínnanhússmótið í frjálsíþróttum á Íslandi. Frábær þátttaka var á mótinu í ár sem haldið var í 14. sinn en það var haldið fyrst í tilefni af 90 ára afmæli ÍR 1997.   Keppt var í öllum aldursflokkum frá 8 ára og yngri og upp í karla og kvennaflokk við frábærar aðstæður í Laugardalshöllinni.  Flest besta frjálsíþróttafólk landsins mætti til leiks ásamt börnum og unglingum allstaðar að af landinu.  Þátttakendur voru samtals 761 frá 27 félögum og samböndum sem er þátttökumet og var þetta fjölmennasta frjálsíþróttamót sem haldið hefur verð á einni helgi innanhúss á Íslandi.  Fjölgun þátttakenda á mótinu hefur verið 100% síðan fyrir 4 árum síðan þegar nýja Laugardalshöllin var tekin í notkun.   Flestir keppendurnir komu frá ÍR eða 225 sem er mesti fjöldi sem eitt félag hefur sent til keppni í einu og sama mótinu frá upphafi frjálsíþróttastarfs á Íslandi. FH, Breiðablik, UMSS og Selfoss mættu einnig með fjölmenn lið.  Mikið ánægjuefni var að 22 ungir Færeyinga voru meðal þátttakenda og settu þau skemmtilegan svip á mótið.   Í keppni 8 ára og yngri var keppt samkvæmt nýju alþjóðlegu keppniskerfi IAAF, sem fyrst var prufukeyrt á  Silfurleikum ÍR fyrr í vetur við mikla ánægju keppenda og aðstandenda.   Alls féllu tólf mótsmet í karla- og kvennaflokkum auk fjölda mótsmeta í barna og unglingaflokkum sem voru talin í tugum. Jóhanna Ingadóttir ÍR var atkvæðmest í kvennaflokki, en hún sigraði í langstökki með 5,61m, þrístökki 12.43m og 60m grindahlaupi á 9,00 sek og setti mótsmet í tveimur síðarnefndu greinunum.  ÍR konur voru atkvæðamiklar í stökkgreinunum því því auk sigra Jóhönnu sigraði hin efnilega Hulda Þorsteinsdóttir  ÍR í stangarstökki með 3,65m og Helga Þráinsdóttir  ÍR í hástökki með stökk upp á 1,68m.  Báðar bættu sinn persónulega árangur.   Ásdís Hjálmsdóttir Ármanni sigraði í einvígi við Helgu Margréti Þorsteinsdóttur Ármanni í kúluvarpi en þær köstuðu 14,21 og 14,09m og Ásdís setti mótsmet.  Fríða Rún Þórðardóttir hljóp sitt besta 3000m hlaup í fimm ár og setti mótsmet á 9:57,33mínútum og Íris Anna Skúladóttir Fjölni sigraði í 1500m hlaupi á 4,59,21 sem einnig er mótsmet.  Efnilegar ungar stúlkur sigruðu í 200m, 400m og 800m og settu allar mótsmet.  Dóróthea Jóhannesdóttir ÍR hljóp 200m á 25,76sek, Erna Dís Gunnarsdóttir ÍR 400m á 60,36 og Stefanía Valdimarsdóttir hljóp 800m á 2:19,63 mín. Í karlakeppninni sigraði Arnór Jónsson Breiðabliki í 60m og 200m og setti mótsmet í báðum greinum.  Hljóp 60m á 7.04 og 200m á 22,73sek.  Félagi hans úr Breiðabliki Stefán Guðmundsson sigraði í 3000m hlaupinu á nýju mótsmeti 8:37,58 mín og ungur og efnilegur hlaupari úr FH Þorkell Einarsson sigraði í 400m hlaupinu á nýju mótsmeti 50,35 sek.  Þá náði Þorsteinn Ingvarsson HSÞ lengsta stökki ársins í langstökki þegar hann sigraði með stökki upp á 7,33m sem er hans besti árangur innanhúss. Framkvæmd mótsins tókst mjög vel þrátt fyrir metfjölda keppenda og þar af leiðandi mjög flókna framkvæmd en alls var keppt á 14 mismunandi stöðum samtímis á laugardagsmorgninum í Laugardalshöllinni.  Um 120 sjálfboðaliðar stóðu vaktina við framkvæmd mótsins um helgina.  Þátttakan, framkvæmdin og árangurinn gefur til kynna að framfaraskeið sé framundan í frjálsíþróttum á Íslandi og bætt innanhússaðstaða sé byrjuð að skila verulegum árangri í eflingu frjálsíþróttunum í landinu. Gera má ráð fyrir að um 2000 manns hafi lagt leið sína í Laugardalshöllina þegar keppendur, dómarar og áhorfendur  voru taldir saman.  Öll úrslit má sjá á heimasíðu FRÍ www.fri.is /mót/mótaforrit 
Kristín Líf Jónsdóttir, í Úrvalshóp Ungmenna FRÍ
Á Reykjavík International Games stökk Kristín Líf Jónsdóttir (1995) 1.61 m í hástökki. Þessi árangur er viðmið inn í Úrvalshóp ungmenna FRÍ og gott betur en viðmiðið er 1.55 m. Frábær árangur hjá Kristínu Líf sem svo sannarlega á framtíðina fyrir sér og ekki bara í hástökkinu heldur einnig í fleiri greinum. Til hamingju Kristín Líf.  
RIG, Fyrsta mót ársins 2010 - ÍR-ingar byrja vel
 Reykjavík International Games var haldið með pomp og prakt laugardaginn 16. Janúar í Laugardals-höllinni. 76 keppendur tóku þátt í mótinu þar af um 20 ÍR-ingar sem stóðu sig frábærlega að vanda.   Þrír ÍR-ingar lönduðu glæsilegum sigrum í sínum greinum. Helga Þráinsdóttir stökk 1.64 m í hástökki og átti góða tilraun við 1.67 m. Jóhanna Ingadóttir sigraði í langstökkinu með 5,77 m og einnig í þrístökkinu með 12.27m. Snorri Sigurðsson háði mikið einvígi við félaga sinn Ólaf Konráð í 800m en Snorri hafði betur, hljóp á 1:53.85 mín sem er bæting hjá honum bæði innan og utanhúss og nýtt unglingamet innanhúss en hann átti sjálfur eldra metið, 1:54.91 mín. Með þessum tíma tryggir Snorri sig inn í ÍR-OL2012 hópinn 2010. Ólafur hljóp einnig á sínum besta tíma innanhúss 1:54,80 mín en hann átti best 1:56,50 mín.   ÍR-ingar settu tvö aldursflokkamet til viðbótar þar voru á ferðinni þær Aníta Hinriksdóttir í 1500m hlaupi telpna en hún hljóp á 4:50.50 mín og bætti sig um 1 sekúndu en hún átti sjálf eldra metið síðan í í febrúar 2009, 4:51.10 mín. Þriðja aldursflokkametið setti Dóróthea Jóhannesdóttir í þrístökki meyja en hún stökk 11.47 m og bætti eldra metið um 2 cm en það var sett árið 1995 af Guðbjörgu Lilju Bragadóttur ÍR.   Þeir sem bættu sig á mótinu voru Snorri, Óli Konni, Aníta, Dóróthea, Vera Sigurðardóttir í 400m en hún hljóp á 61.36 sek átti best 61.56 sek. Einnig Ramón Borges í langstökki með 6.74 m átti best 6.54 m og því glæsileg bæting hjá honum og Björn J. Þórsson í 60m hljóp á 7.17 sek átti 7.21 sek best síðan í desember. Einnig Krístín Líf Jónsdóttir (1995) sem stökk 1,61m í hástökki og varð í 3. sæti með sömu hæð og sú í 2. sætinu. Með þessu stökk Kristín Líf sig inn í Úrvalshóp Unglinga FRÍ. Til hamingju Kristín Líf.  Fríða Rún Þórðardóttir bætti sig einnig en hún varð í 2. Sæti í 1500m á 4:38,12 mín aðeins sjónarmun á eftir færeysku stúlkunni Bjök. Þetta er besti tími Fríðu Rúnar innanhúss og 13. besti tíminn hennar frá upphafi.   Öll úrslit má sjá á heimasíðu FRÍ www.fri.is /mót/mótaforrit 
ÍR-ingar í landsliðshópi Frjálsíþróttasambands Íslands
Íþrótta- og afreksnefnd FRÍ hefur valið landsliðshóp sambandsins með hliðsjón af árangri keppenda á árinu 2009 en valið verður endurskoðað að loknu innanhússtímabilinu sem senn fer í hönd og stendur til loka febrúar. ÍR alls 14 íþróttamenn í hópnum, 8 konur og 7 karlar og á ekkert frjálsíþróttafélag svo marga fulltrúa. Þær Björg og Dóróthea veljast nú í landsliðshóp í fyrsta sinn en þær verða 16 ára á árinu. Börkur Smári og Ólafur Konráð eru einnig að veljast inn hópinn í fyrsta sinn. ÍR-ingar í landsliðshópnum eru: Einar Daði Lárusson, Dóróthea Jóhannesdóttir, Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir, Kristín Birna Ólafsdóttir, Ólafur Konráð Albertsson,  Björg Gunnarsdóttir,  Snorri Sigurðsson, Fríða Rún Þórðardóttir,  Þorbergur Ingi Jónsson, Jóhanna Ingadóttir Einar Karl Hjartarson, Hulda Þorsteinsdóttir, Sandra Pétursdóttir,  Börkur Smári Kristinsson 
Íslandsmeistarar úr röðum ÍR-inga 2009
56 frjálsíþróttamenn úr röðum ÍR-ingar hlutu viðurkenningar ÍBR fyrir Íslandsmeistaratitla sína fyrir árið 2009. Yfir 600 íþróttamenn hlutu viðurkenningar. Nöfn íþróttamannanna Aníta Hinriksdóttir,  Annie Mist Þórisdóttir, Arna Stefanía Guðmundsdóttir,  Ásdís Magnúsdóttir,  Björg Gunnarsdóttir,  Birna Þórisdóttir,  Bogey R. Leósdóttir, Brynhildur Ýr Ottósdóttir, Dóróthea Jóhannesdóttir, Elísa Margrét Pálmadóttir, Erna Dís Gunnarsdóttir, Fríða Rún Þórðardóttir, Guðný Árnadóttir, Heiður Þórisdóttir, Hekla Rún Ámundadóttir,  Helga Þráinsdóttir,  Hilda Margrét Ragnarsdóttir, Hrafnhild Eir Hermannsdóttir, Hulda Þorsteinsdóttir, Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir, Jóhanna Ingadóttir, Margrét Lilja Arnarsdóttir, María Ósk Felixdóttir, Marta Sigrún Jóhannsdóttir, Kristín Lív Svabo Jónsdóttir, Martha Ernstsdóttir, Petra Waage, Rannveig Dóra Baldursdóttir, Sandra Pétursdóttir, Sara Björk Lárusdóttir, Sigríður Karlsdóttir, Valdís Anna Þrastardóttir, Vera Sigurðardóttir, Þóra Kristín Pálsdóttir, Adam Þór Þorgeirsson, Benedikt Guðmundsson, Birkir Kristinsson, Björn J. Þórsson Frjálsíþróttir Brynjar Gunnarsson, Börkur Smári Kristinsson, Einar Daði Lárusson, Gunnar Guðmundsson, Gunnar Ingi Harðarson, Heimir Þórisson, Hilmar Örn Jónsson, Hjalti Garðarsson, Ingi Guðni Garðarsson, Jón Gunnar Björnsson, Juan Ramón Borges, Snorri Sigurðsson, Stefán Árni Hafsteinsson, Ólafur Konráð Albertsson, Pétur Gunnarsson, Skúli Gunnarsson, Sæmundur Ólafsson og Þorbergur Ingi Jónsson