27.12.2009
Desemberpistill 2005 fyrir Breiðholtsblaðið
Árið 2005
Eitt megin markmið frjálsíþróttadeildar ÍR er að vinna að öflugri barna- og unglingstefnu með áherslu á að allir hafi sömu möguleikar á að iðka íþróttir óháð utanaðkomandi þáttum eins og fjárhagsstöðu og heimilisaðstæðum.
Hinsvegar er okkur einnig ljóst að áhugi eldri iðkenda er mikill og er þá bæði um að ræða þá sem stunda lengri hlaup og hlaupa Laugarveginn og heilu og hálfu maraþon svo og þá sem eitt sinn iðkuðu frjálsar íþróttir og hafa ekki getað sleppt hendinni af gaddaskónum og kastáhöldunum. Þessum ÍR ingum er það ljóst að heilbrigð sál í hraustum líkama er það sem gefur lífinu gildi og bætir lífi í árin.
Gott ár ÍR-inga að baki í frjálsum
Í heildina séð var árið 2005 eitt besta árið í sögu frjálsíþróttadeildarinnar um langt árabil. Iðkendafjöldi fór stöðugt vaxandi og rúmlega 300 iðkendur greiddu æfingagjöld á árinu. Iðkendur 12-14 ára og yngri náðu öðru sæti í stigakeppni Íslandsmótsins í ágúst og 14 ára telpur urðu meistarar félagsliða í sínum árgangi. Auk þessa hafði unglingalið ÍR 15-22 ára algera yfirburði á Íslandsmótunum bæði innanhúss og utan. Á utanhúss meistara-mótinu fékk liðið 316 stig sem var 120 stigum meira en næsta lið á undan. Sveinar og meyjar 15-16 ára og stúlkur 17-18 ára sigruðu í stigakeppni félaga bæði innanhúss og utan á Íslands-mótunum og einnig í Bikarkeppni 16 ára og yngri.
ÍR á nú 25 unglinga á aldrinum 15-20 ára sem hafa náð lágmörkum inn í Úrvalshóp FRÍ sem er um fjórðungur allra sem eru í hópnum en í honum eru ungmenni af öllu landinu. Einnig á ÍR 7 af 30 í svokölluðum afrekshópi ungmenna FRÍ en það eru allra efnilegustu unmenni landsins í frjálsíþróttum.
ÍR átti einn keppanda á HM 17 ára og yngri sem fram fór í Maroccó og þrjá á Olympíuhátið Evrópuæskunnar fyrir 16 - 17 ára í sumar. Þrír ÍR-unglingar kepptu á Norðurlandamóti unglinga í ágúst og tveir á Norðurlandamóti unglinga í fjölþrautum.
Meistaraflokkur ÍR hreppti síðan annað sætið í Bikarkeppni FRÍ í 1. deild og gerir sig nú líklegan til ógna veldi FH-inga. Sama sæti náðist á Meistaramóti Íslands í karla- og kvennaflokki þar sem ÍR varð í öðru sæti í heildarstigakeppni mótsins.
ÍR-ingar stóðu sig vel í keppnum á erlendri grundu með landsliði Íslands en í frjálsíþrótta-keppninni á Smáþjóðaleikunum í Andorra átti félagið þrjá keppendur og í Evrópu-bikarkeppni landsliða fjóra.
Uppbygging undanfarinna ára er nú augljóslega farin að skila sér í bættum árangri meistaraflokks og stefnt er að því að ÍR verði sterkasta frjálsíþróttafélag landsins á 100 ára afmæli félagsins árið 2007.
Blómlegt vetrarstarf framundan í frjálsum við frábærar aðstæður
Stöðugur uppgangur frjálsíþróttadeildar ÍR mun halda áfram í vetur eins og undanfarna vetur m.a. í nýrri og glæsilegri Laugardalshöll. Í október verður tekinn þar í notkun fyrsti alþjóðlegi innanhússfrjálsíþróttavöllur landsins með 200m hlaupabrautum og öllu sem til þarf til alþjóðlegs mótahalds og æfinga á öllum getu og aldursstigum. Með bættir aðstöðu verður loks aðstaða til að fjölga iðkendum verulega hjá frjálsíþróttadeild ÍR og bjóða öllum æfingaflokkum sem geta æft í Laugardalnum upp á góða aðstöðu til æfinga og keppni. Enn vantar þó verulega upp á að frjálsíþróttir hafi sæmandi aðstöðu til æfinga í Breiðholti og vonandi að úr því verði bætt með nýju íþróttahúsi á ÍR-svæðinu.
Alls verða 11 þjálfarar við störf hjá deildinni í vetur og þar af eru 9 sem hafa starfað hjá deildinni undanfarin ár. Soffía Tryggvadóttir, Albert Magnússon, Hörður Gunnarsson og Örvar Ólafsson sjá um þjálfun flokka 14 ára og yngri. Þráinn Hafsteinsson, Jón Oddsson, Þórdís Gísladóttir, Martha Ernstsdóttir, Sverrir Guðmundsson og Óskar Thorarensen sjá um þjálfun unglingaflokks og meistaraflokka og Gunnar Páll Jóakimsson verður áfram þjálfari skokkkhóps ÍR.
Nýir iðkendur eru alltaf velkomnir til að taka þátt í frjálsíþróttum í góðum félagsskap við góðar aðstæður undir stjórn valinkunnra þjálfara.
Mikið hefur verið um að vera hjá eldri iðkendum frjálsra íþrótta hjá ÍR. ÍR-skokk undir góðri stjórn Gunnars Páls Jóakimssonar hefur sótt hin ýmsu hlaup víðsvegar um landið. Helst má nefna Laugarvegshlaupið og Reykjavíkur maraþon en í þessum hlaupum átti
ÍR- skokk fjölda keppenda. Einnig hafa hlauparar frá ÍR skokk farið í Mývatnsmaraþon og í Barðasneshlaupið auk hlaupa á erlendri grundu.
Í ágúst tóku tveir ÍR-ingar þátt í heimsmeistaramóti öldunga sem fram fór í San Sebastian á Spáni. Þetta voru þau Stefán Hallgrímsson, sem keppir í flokki 55-59 ára og Fríða Rún Þórðardóttir sem er á sínu fyrsta ári í flokki 35-40 ára. Stefán er gamalreyndur kappi í þessari keppni og margfaldur heims- og Evrópumeistari í tugþraut og sjöþraut.
Fríða Rún er aftur á móti nýgræðingur í flokki öldunga en hefur keppt um áraraðir í frjálsum íþróttum og þar af í um 10 ár með ÍR og er hún enn í A-landsliði Íslands og keppti ma. fyrir Ísland á Smáþjóðaleikunum nú í vor. Stefán reið á vaðið í tugþrautinni í keppni hinna 5 Íslendinga sem þarna voru staddir og átti ágætan fyrridag. Seinni dagurinn byrjaði ekki vel þegar Stefáni fipaðist í grindahlaupinu og datt. Hann lét samt enga bilbug á sér finna og efldist svo við þetta mótlæti að hann náði stórgóðum árangri bæði kringlukasti og spjótkasti og endaði í 2. sæti í keppninni þrátt fyrir að fá fékk stig fyrir grindahlaupið. Það er því ljóst að með smá heppni hefði Stefán náð að sigra í annað sinn í röð á heimsmeistaramóti í tugþraut. Fríða Rún hóf keppni í 5000m hlaupi og varð í 8. sæti af 16 keppendum á tímanum 17:46.41 mín, hennar ársbesta tíma og ársbesta tíma íslenskrar konu, þetta er einnig hennar besti tími síðan 2003. Næsta grein var 800m hlaup en þar þurftu konurnar að hlaupa undanrásir og úrslit vegna fjölda keppenda en alls 18 konur hlupi í tveimur riðlum. Fríða Rún náði 5. besta tíma í undanrásunum en náði frábæru hlaupi með miklum endaspretti í úrslitunum og varð í 3. sæti með ársbesta tíma, 2:18.10 mín. Þetta er þriðja besta árstíma íslenskrar konu og hennar besti tími síðan 2003. Lokagreinin var 1500m hlaup og þar var Fríða Rún einnig þar í eldlínunni en fyrir hlaupið var hún skráð með 3. besta tímann. Þegar 200m voru eftir var Fríða Rún í 5. sæti og lokuð inn af tveimur öðrum keppendum. Hún náði þó að komast fram úr þeim og endaði í 2. sæti af 16 á tímanum 4:38.40 mín sem er eins og í 800m hlaupinu, þriðji besti árstími íslenskrar konu og hennar besti árangur síðan 2003.. Tímarnir í 800m og 1500m hlaupunum eru án efa Íslandsmet í þessum flokki en líklegt er að Martha Ernstdóttir, sem einnig keppir fyrir ÍR eigi betri tíma í 5000m hlaupi.
Nýlega fór meistaramót öldunga fram á Kópavogsvelli. Alls tóku 29 keppendur, þar af 7 frá ÍR þátt í mótinu. Ágætur árangur náðist í mörgum greinum og flokkum á mótinu. Agnar Steinarsson sem keppir í flokki 40-45 ára sigraði í 800m hlaupi, kúluvarpi, kringlukasti og langstökki. Hann varð svo í 2. sæti í 100m hlaupi og í hástökki. Í flokki 50-54 ára sigraði Elías Sveinsson í kúluvarpi, spjótkasti, sleggjukasti, kringlukasti og lóðkasti. Stefán Hallgrímsson sigraði í spjótkasti í flokki 55-59 ára. Jón H. Magnússon sem keppir í flokki 65-69 ára sigraði í kúluvarpi, spjótkasti, kringlukasti, lóðkasti og sleggjukasti. Jón. Þ. Ólafsson sigraði í kringlukasti í flokki 60-64 ára. Jón Ögmundur Þórmóðsson sem einnig keppir í flokki 60-64 ára sigraði í leggjukasti og lóðkasti. Að lokum sigraði Marteinn Guðjónsson í lóðkasti 80-84 ára. Það má því segja að ÍR-ingar hafi hirt mestann hluta verðlaunanna sem í boði voru í kastgreinum. Í stigakeppninni fékk FH 171 stig en ÍR kom næst með 122 stig það má því segja að þessir 7 keppendur hafi virkilega staðið fyrir sínu.
Uppgangur er í öldungastarfinu á Reykjavíkursvæðinu og hefur Íslandi verið valið til að sjá um að halda Norðurlandamót Öldunga innanhúss árið 2007 í hinni nýju glæsilegu höll sem verið er að leggja síðustu hönd á núna þessa dagana.
Fríða Rún Þórðardóttir, varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR
Þráinn Hafsteinsson, yfirþjálfari frjálsíþróttadeildar ÍR