hreysti


valitor











































Lesa frétt
27.12.2009

Desemberpistill 1 2006 fyrir Breiðholtsblaðið

Hauststarfið hjá Frjálsíþróttadeild ÍR.

Hauststarfið hjá frjálsíþróttadeildinni gengur eins og í sögu og er fín mæting á æfingar og mánaðarlega fundi sem haldnir eru til að fara yfir mánuðinn á undan og velja æfingafélaga mánaðarins. Stelpur og strákar æfa saman í frjálsum og hefur það reynst mjög vel og kennir þeim að umgangast hvort annað og vinna saman sem eitt lið en það er undirstaða þess árangurs sem unglingalið deildarinnar hafa sýnt í gegnum árin og leitt til þeirra Íslandsmeistaratitla sem unnist hafa gegnum tíðina.

 

Silfurleikar ÍR 18. nóvember í Laugardalshöll.

Silfurleikar ÍR voru haldnir í tilefni þess að í nóvember voru liðin 50 ár síðan Vilhjálmur Einarsson varð í 2. sæti í þrístökki á Ólympíuleikunum í Melbourne í Ástralíu en Vilhjálmur keppti fyrir ÍR á þessum árum. Þó svo að mörg ár séu liðin hafa fáir Íslendingar leikið þetta eftir en um einstakt afrek er að ræða.

Silfurleikarnir eru ætlaðir íþróttamönnum 16 ára og yngri og verður keppt í fjölmörgum greinum, þar á meðal þrístökki í flokkum 11-16 ára og verður það gert eftirleiðis á þessu móti. Silfurleikarnir komu í stað haustleika ÍR sem notið hafa mikilla vinsælda undanfarin ár en árið 2005 sendu 17 félög keppendur á leikana alls 308 keppendur. Í ár var bætt um betur og voru yfir 460 keppendur skráðir til leiks frá 18 félögum. Skráningar voru 1550 talsins sem þýðir að hver keppandi keppti að meðaltali þátt í 3,5 greinum. Þetta er met þáttaka og í raun fjölmennasta innanhússmót sem haldið hefur verið í frjálsum íþróttum á einum degi. Keppendur frá ÍR voru um 130 talsins og var það mesti fjöldi sem keppt hefur fyrir ÍR á einu móti.

Helstu afrek ÍR-inga eru að sjálfsögðu Íslandsmetin sem féllu en af sjö metum sem féllu settu ÍR-ingar 5. Dórothea Jóhannsdóttir setti tvö Íslandsmet en hún keppir í flokki stelpna 11-12 ára. Fyrst bætti hún Íslandsmetið í þrístökki þegar hún stökk 10.48m og stuttu seinna bætti hún einnig Íslandsmetið í 200m hlaupi 12 ára stelpna þegar hún hljóp á 28.29 sek. Björg Gunnarsdóttir ÍR bætti Íslandsmetið í 800m hlaupi í flokki 11-12 ára þegar hún hljóp á 2:37.83 mín. Vinkona Bjargar Kristín Líf Jónsdóttir bætti síðan met Bjargar í næsta riðli og hljóp á 2:37.59. Einnig var árangur Einars Daða Lárussonar athyglisverður í flokki sveina, en hann stökk m.a. 1,95 metra í hástökki og reyndi síðan að bæta 10 ára gamalt met Einars Karls Hjartarsonar ÍR í sveinaflokki, en það er 2 metrar sléttir. Einar Daði reyndi við 2,01 metra en það gekk ekki að þessu sinni, en ekki er ólíklegt að hann nái að slá metið á þessu ári. Einar Daði sigraði einnig í 60m á 7,32 sek, 60m grindahl. á 8,60 sek. og í þrístökki, þar sem hann stökk 13,69 metra. Einar Daði er mikið efni í fjölþrautamann eins og sjá má af úrslitunum.

Skoða má úrslitin í heild á www.fri.is/mótaforrit

 

Afrekshópur FRÍ

Snorri Sigurðarson (1991) ÍR bættist í afrekshóp FRÍ með árangri sínum í 800m hlaupi þegar hann hljóp á 2:04.63 mín á Silfurmóti ÍR. Þetta er mikil bæting hjá Snorra en hann átti best 2:11 mín. Snorri er 7. ÍR-ingurinn sem kemst í afrekshóp FRÍ.

 

Á döfinni hjá Frjálsíþróttadeildinni

Gamlárshlaup ÍR verður haldið í 31. sinn á Gamlársdag og hefst hlaupið um hádegibil við Ráðhús Reykjavíkur.

 

Frjálsíþróttadeild ÍR