29.12.2009
Desemberpistill 2009 fyrir Breiðholtsblaðið
Dóróthea Jóhannesdóttir ný inn í ÍR-OL2012 hópinn
Dóróthea Jóhannesdóttir, 15 ára frjálsíþróttastúlka, náði þann 21. Nóvember sl. B-viðmiði inn í ÍR-OL2012 hóp Frjálsíþróttadeildar ÍR. Árangrinum náði hún í 60m spretthlaupi á Silfurleikum ÍR en tíminn sem hún hljóp á var 7,97 sekúndur sem var bæting á hennar besta árangri um 17/100s sem er töluvert í svo stuttu hlaupi. Dóróthea á mjög frambærilegan árangur í fleiri greinum og er með lágmark í Afrekshóp unglinga Frjálsíþróttasambands Ísland í 100m, 200m, langstökki, hástökki og þrístökki sem segir mikið til um getu hennar og fjölhæfni. Dóróthea er í efsta sæti á afrekaskrá 2009 í meyjaflokki í 100m og 200m utanhúss og í hástökki innanhúss.
Besti árangur
Innanhúss Utanhúss
60m 7.97s 8.59s
100m 12.62s
200m 26.53s 25.71s
100m grind 15.71s
Langstökk 5.25m 5.24m
Hástökk 1.65m 1.60m
Þrístökk 11.50m
Sjöþraut 3,828stig
Dóróthea hefur skrifað undir samning við Frjálsíþróttadeildina og er myndi tekin við það tækifæri. Með henni á myndinni eru Margrét Héðinsdóttir formaður Frjálsíþróttadeildar ÍR og Örvar Ólafsson yfirþjálfari unglinga og einn þriggja þjálfara Dórótheu en Þóra Guðfinnsdóttir og Soffía Theodóra Tryggvadóttir eru einnig hennar þjálfarar og sér Þóra aðallega um spretthlaups hlutann.
Deildin óskar Dórótheu og hennar fjölskyldu til hamingju með þennan áfanga en lesa má um afreksprógramið á heimasíðu Frjálsíþróttadeildar ÍR, www. irsida.is / Frjálsar / afreksmál.
14. Silfurleikar ÍR
14. Silfurleikar ÍR í frjálsíþróttum fóru fram í Laugardalshöllinni 21. Nóvember en mótið hefur verið stærsta barna- og unglingamót hausttímabilsins í frjálsíþróttum á Íslandi alla tíð síðan. Silfurleikarnir er haldnir til að minnast einstaks árangurs Vilhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum í Melbourne í nóvember 1956 þegar hann hlaut silfuverðlaun í þrístökki og hefur þrístökki verið gert mjög hátt undir höfði á mótinu af þeim sökum.
Keppendur
571 keppendur á aldrinum 5-16 ára mættu til leiks frá 20 samböndum og félögum. Flestir voru keppendurnir frá ÍR eða 185 talsins, FH ingar voru 80 og Breiðablik sendi 70 keppendur. Ármenningar og Fjölnismenn voru nærri 50 talsins auk þess sem fjöldi öflugra og efnilegra krakka utan af landi sýndu góða takta. Skráningar voru 1769 talsins sem þýðir að hver keppandi hafi að meðaltali teki þátt í þremur greinum en ef að þátttakendur í þrautabrautinni eru dregnir frá þá kemur í ljós að keppendur 9 ára og eldri hafi að meðaltali verið að taka þátt í 3,8 grein hver keppandi.
Árangur & Íslandsmet
Þó svo að sigur og árangur sé ekki aðal keppikeflið heldur að taka þátt og eiga góða stund með fjölskyldunni og vinunum þá er góður árangur ávalt skemmtilegur bónus. Þrjú Íslandsmet féllu og komu tveir ÍR-ingar þar við sögu. Það voru þau Arna Stefanía Guðmundsdóttir 14 ára sem sett nýtt íslenskt meyjamet í þrístökki 11,33 m og bætti gamla metið um hvorki meira né minna en 56 cm. Hún setti einnig met í 200m hlaupi 26.21 sek og bætti gamla metið um 4/100 sek. Arnar Orri Sveinsson 14 ára í 200m hlaupi 24.81 sek en gamla metið var 24.88 sek.
Þeir ÍR-ingar sem voru hvað atkvæðamestir voru
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, 14 ára
Sigraði í 60m, 60m grindahlaupi, 200m, 800m, hástökki, þrístökki
Arnar Orri Sveinsson, 14 ára
Sigraði í 200m, 800m, 3. sæti í 60m, 2. sæti í kúluvarpi
Árni Haukur Árnason, 10 ára
Sigraði í 60m & langstökki
Dóróthea Jóhannesdóttir, 15 ára
Sigraði í 60m, 200m, hástökki
Hekla Rún Ámundadóttir, 14 ára
Sigraði í kúluvarpi, 3. sæti í 60m, 2. sæti í þrístökki
Gunnar Ingi Harðarson, 13 ára
Sigraði í 60m, 200m, hástökki, þrístökki
Jóhanna Kristín Jóhannesdóttir, 15 ára
2. sæti í 60m grindahlaupi, 3. sæti í 60m
Kristín Lív Jónsdóttir, 14 ára
2. sæti 60 m, 2. sæti í 60m grindahlaupi, 2. sæti í 200 m, 2. sæti í 800m,
2. sæti í hástökki, 3. sæti í þrístökki
Aðrir sem sigruðu í sínum greinum
Aníta Hinriksdóttir, 13 ára í 800m, 2:29,15 mín
Björg Gunnarsdóttir, 16 ára í 800m, 2:24,13 mín
Hilda Margért Ragnarsdóttir, 16 ára í kúluvarpi þar sem hún bætti sig um 60 cm með kast upp á 11.51m
Dóróthea Jóhannesdóttir ný inn í ÍR-OL2012 hópinn
Dóróthea Jóhannesdóttir 16 ára hljóp 60m á 7,97 sek sem er undir B-viðmiði fyrir ÍR-OL2012 sjá www.irsida.is / frjálsar / afreksmál. Glæsilegur árangur hjá Dórótheu sem átti mjög góða helgi, sigraði í 60m, 200m þar sem hún hljóp á 25.94 sek og hástökk með 1.60m.
Úrvals- og Afrekshópur ungmenna
Arna Stefanía Guðmundsdóttir bætti við grein inn í afrekshóp ungmenna í þrístökki 11.33 m.
Þeir Magnús Reynir Rúnarsson og Kolbeinn Stefánsson náðu báðir langþráðum viðmiðum inn í úrvalshóp ungmenna FRÍ. Magnús Reynir í 200m hlaupi á tímanum 24.48 sek og Kolbeinn í 800m hlaupi 2:11.40 mín.
Alþjóðlegt keppnisfyrirkomulag fyrir þau yngstu
Nýtt fyrirkomulag var tekið upp í keppni 8 ára og yngri og var um að ræða nýtt alþjóðlegt keppnisfyrirkomulag þar sem sett var upp svokölluð þrautabraut þar sem börnin takast á við mismunandi þrautir í formi spretthlaupa, grindahlaupa, þolhlaupa, stökka og kasta. Yngstu börnin keppa eingöngu í tíu manna liðum og enginn einstaklingsárangur var skráður en allir keppendur fengu verðlaunapening sem viðurkenningu fyrir þátttökuna. Íslendingar eru meðal þeirra fyrstu til að aðlaga sig að nýju keppnisfyrirkomulagi Alþjóða frjálsíþróttasambandsins IAAF sem nú er verið að kynna út um allan heim. 83 pæjurog 62 pollar tóku þátt í þrautabrautinni ásamt fjölda foreldra og liðsstjóra sem fylgdu þeim í gegnum þrautirnar.
Það er ljóst að þrátt fyrir kreppu og erfiðleika þá eru Silfurleikarnir í stöðugri sókn og skipa mikilvægan sess í frjálsíþróttastarfi í landinu. Góð samverustund ungra og eldri enda geta allir tekið þátt í frjálsum.
Öll úrslit má finna undir www.fri.is / mót / mótaforrit
Uppskeruhátíð á döfinni
Uppskeruhátíð 2009 hjá meistara- og unglingaflokki frjálsíþróttadeildar verður haldin sunnudaginn 20. desember kl. 16 í ÍR-heimilinu. Þar verður slegið á létta strengi, viðurkenningar afhentar og boðið verður upp á léttar veitingar. Samkoman er frábært tækifæri til að hrista betur saman meistaraflokkinn og unglingaflokkinn, mynda stemningu fyrir innanhústímabilið og fagna árangri liðins árs í góðra vina hópi.
Á döfinni
1.Jólamót ÍR
Haldið laugardaginn 19. desember 2009 og hefst kl. 12:00
Karlar: 60m, 200m, 600m, stangarstökk, langstökk, kúluvarp+ sveinar+pilta, 4x200m boðhaup
Konur: 60m, 200m, 600m, þrístökk, kúluvarp+meyja, hástökk, 4x200m boðhlaup
2.Jólamót ÍR
Haldið mánudaginn 21. desember og hefst kl. 18:00
Karlar: 60m grind, 60m, 400m, 1000m, hástökk, þrístökk
Konur: 60m grind, 60m, 400m, 1000m, langstökk, stangarstökk
3. Jólamót ÍR
Haldið mánudaginn 28. desember og hefst kl. 18:00
Karlar: 60m, 800m, stangarstökk, langstökk, kúluvarp, 4x400m boðhlaup
Konur: 60m, 800m, langstökk, þrístökk, hástökk, 4x400m boðhlaup
Fríða Rún Þórðardóttir
Varaformaður Frjálsíþróttadeildar ÍR