29.12.2009
Ágústpistill 2009 fyrir Breiðholtsblaðið
Frjálsíþróttadeild ÍR Bikarmeistarar í 44. Bikarkeppni Frjálsíþróttasambands Íslands
Helgina 7. – 8. ágúst stöðvaði ÍR 16 ára sigurgöngu FH þegar liðið sigraði 44. Bikarkeppni FRÍ með 180 stig og 17 stigum meira en lið FH. Bikarinn fer því aftur í Breiðholtið eins og til stóð. Það var þó ekki aðeins stóri bikarinn sem ÍR-ingar tókum með sér í Breiðholtið. Kvennalið ÍR sigraði stigakeppnina með 91 stig á móti 66 stigum FH en lið Fjölnis-Ármanns varð í 3. sæti með 57 stig. Karlalið ÍR bætti sig töluvert frá síðasta ári og endaði í 2. sæti á eftir FH með 89 stig, aðeins 8 stigum minna en sigurvegararnir.
ÍR átti hreint frábæra daga og verðskuldaði svo sannarlega sigurinn en keppnisliðið sjálf og klappliðið í stúkunni átti Laugardalsvöllinn þessa tvo daga í fínu veðrið þó svo að nokkur mótvindur hafi gert keppendum erfiðara fyrir.
ÍR eignaðist fjölda Bikarmeistara um helgina og fjöldi persónulegra meta leit dagsins ljós auk Bikarmets Söndru Pétursdóttur í sleggjukastinu en hún kastaði 53.43 m.
Helstu úrslit:
Sandra Pétursdóttir varð í 1. sæti í sleggjukasti 53.43m, hennar þriðji besti árangur til þessa og mótsmet eins og áður segir. Hún keppti einnig í kringlukasti varð 4. með 33,86 m og 4. í mjög sterkri kúluvarpskeppni með 11.08m. Vigfús Dan Sigurðsson varð í 3. sæti í sleggjukasti 42.98m, flottur árangur hjá Fúsa.
Kristín Birna Ólafsdóttir sigraði bæði í 100m grindahlaupi á 15.28 sek og í 400m grindahlaupi á 62.59 sek.
Einar Daði Lárusson sigraði í 110m grindahlaupi í gífurlega spennandi hlaupi, á 15.38 sek og einnig í 400m grindahlaupi á 53,17 sek sem er 8. besti árangur Íslendings í greininni frá upphafi. Einar sigraði svo einnig í langstökkinu með stökki upp á 7.17m. Hann varð svo í 2. sæti í 200m á 22.75 sek sem er hans ársbesti tími og þriðji besti árangur Íslendings í ár.
Heimir Þórisson varð þriðji í þrístökkinu með 13,47m sem er við hans besta árangur en vindurinn var aðeins og mikill.
Hulda Þorsteinsdóttir kom sá og sigraði í stangarstökkinu stökk 3.40m og sigraði með miklum yfirburðum. Hún var aðeins óheppin að fara ekki hærra en hún lenti í óhappi þegar hún reyndi við 3,60m. Stefán Árni Hafsteinsson mætti ákveðinn til leiks í sömu grein og stökk 4.20m og varð í 2. sæti.
Pétur Guðmundsson var 2. í kúlunni með 15,01 m sem er sem er besti árangur hans utanhúss í ár og einnig varð hann 2. í kringlunni með 46.61 m sem er hans annar besti árangur á árinu. Frábært hjá Pétri að ná svo góðum árangir sjálfur með fjölda topp íþróttamanna í baráttu á sama tíma og hann sjálfur er að keppa.
Valdís Anna Þrastardóttir varð 3. í spjótkastinu eins og lagt hafði verið upp með, kastaði 41.78 m. Pálmi Pétursson kastaði spjótinu fyrir ÍR og varð hann í 3. sæti með 54.06 m sem er besti árangur hans í ár
800m hlaup kvenna tók á taugar áhorfenda en Björg Gunnarsdóttir stóð fyrir sínu að vanda og kom fyrst í mark eftir gífurlega spennandi hlaup og frábæran endasprett, og tíminn 2:21,34mín sem er alveg við hennar besta. Ljóst er að það er aðeins tímaspursmál hvenær Björg dettur undir 2:20 mín.
Snorri Sigurðsson barðist eins og hetja í 800m hlaupinu og varð í 2. sæti á 1:57.49 mín innan við einni sek á eftir sigurvegaranum. Snorri hljóp einnig glæsilegt 400m hlaup, varð í 2. sæti á 50,90 sek sem er besti árangur hans utanhúss í greininni en hann átti best 52.45 sek síðan í Gautaborg í ár.
Einar Karl Hjartarson kom og stökk fyrir ÍR eftir margra ára fjarveru og það var eins og hann hefði aldrei farið frá okkur. Fór heila 2.10 m, 20 cm hærra en hans helsti keppinautur og átti fínar tilraunir við 2.13m en rétt felldi. Einar Karl átti hug og hjörtu áhorfenda enda ekki á hverjum degi sem ráin fer yfir 2 metrana.
Jóhanna Ingadóttir sigraði í langstökk með 6.04m og einnig í þrístökki með 12.71m og skellti sér svo í hástökk og stökk þar 1.63 m og varð í 2. sæti sem er jöfnun á hennar besta árangri síðan árið 2000.
Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir hljóp 100m og 200m með stæl og varð í 3. sæti í báðum greinum á 12.84 sek í 100m og 26.18 sek í 200m í ansi stífum mótvindi. Björn J. Þórisson varð 5. í 100m hlaupi karla á 11.82 sek.
Fríða Rún Þórðardóttir sigraði með yfirburðum í 1500m á 4:44.02 mín og í 3000m á 10:09.82 mín sem er mjög svipur árangur og á Landsmóti UMFÍ. Stefán Már Ágústsson varð í 5. sæti í 1500m hlaupi á 4:26,66 mín.
Ólafur Konráð Albertsson var gífurlega öflugur í 3000m hindrun sem reyndar er ekki hefðbundin keppnisgrein hjá honum en hann sýndi frábært keppnisskap og uppskar 2. sæti, tímann 9:39,66 mín og bætingu um næstum heila mínútu en hann átti best 10:33 mín fyrir. Í 5000m hlaupinu hóf hann endasprett sinn með rúmlega 500m í mark (og héldu sumir að hann hefði ruglast í hringatalningunni) en hann hélt þó sprettinum með glæsilegu móti, kom þriðji í mark á frábærum tíma 15:43.46 mín sem er þriðji besti tími Íslendings í þessari vegalengd á árinu og hans langbesti tími til þessa.
Erna Dís Gunnarsdóttir varð í 4. sæti í 400m á 59.72 sek sem er 10/100 frá hennar besat flott hlaup hjá Ernu Dís sem bætir sig í hverju 400m hlaupinu á fætur öðru.
Í boðhlaupunum sýndu ÍR-ingar fína takta.
Karlaliðið skilaði 2. sætinu í 4 x 100m boðhlaupi 8/100 sek á undan liði Fjölnis/Ármanns. Sveitina skipuðu þeir Juan Ramon Borges, Björn J. Þórsson, Ívar Jasonarson og Einar Daði Lárusson. Konurnar urðu fyrstar í mark á 48.98 sek, en sveitina skipuðu Dóróthea Jóhannesdóttir, Birna Þórisdóttir, Jóhanna Ingadóttir og Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir
Í 1000m boðhlaupi (100m, 200m, 300m, 400m) börðust ÍR-karlarnir hrikalega og urðu í 2. sæti á eftir FH á 1:59,78 mín. Helgi Björsson, Björn Jóhann, Snorri og Einar Daði skipuðu sveitina.
ÍR-konurnar kláruðu síðan daginn með tákrænum sigri þegar Kristín Birna kom yfir marklínuna eftir glæsilegt hlaup þeirra Birnu Þórisdóttur, Hrafnhildar og Ernu Dísar. Tíminn 2:18.57 mín.
Unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki 31. júlí – 2. ágúst
Aldrei fyrr hafa eins mörg ungmenni verið skráð til keppni á Unglingalandsmótinu eins og í ár en alls tóku um 1550 keppendur þátt í hinum fjölmörgu keppnisgreinum. 586 keppendur voru skráðir í frjálsíþróttakeppnina eða um 1/3 af keppendum landsmótsins sem verður að teljast frábær þátttkaka og bera þess augljós merki að frjálsar eru á uppleið á Íslandi. Keppnin fór fram á hinum glæsilega frjálsíþróttavelli UMSS á Sauðárkróki og fjölmenntu ÍR-inga undir merkjum ÍBR og áttu saman góðar stundir í heilbrigðu umhverfi.
Alls unnu ÍR-ingar til 10 gullverðlauna, 7 silfurverðlauna og 4 bronsverðlauna á mótinu og fara helstu úrslit hér á eftir.
Hekla Rún Ámundadóttir sigraði í langstökki, hástökki, kúluvarpi og spjótkasti í flokki 14 ára telpna.
Arna Stefanía Guðmundsdóttir sigraði í 80m hlaupi, 80m grindahlaupi og 800m hlaupi í flokki 14 telpna. Hún varð í 2. sæti í hástökki, langstökki og spjótkasti.
Dóróthea Jóhanesdóttir sigraði í hástökki, varð í 2. sæti í 100m og langstökki 15-16 ára meyja.
Aníta Hinriksdóttir sigraði í 800m hlaupi í flokki 13 ára telpna
Björg Gunnarsdóttir sigraði í 800m hlaupi í flokki 15-16 ára meyja
Kolbrún Eva Gránz varð í 3. sæti í 60m hlaupi í flokki 12 ára stelpna.
Gunnar Ingi Harðarson varð í 2. sæti í 80m hlaupi 13 ára pilta og einnig í hástökki.
Margrét Lilja Arnarsdóttir varð í 3. sæti í 80m grindahlaupi 14 ára telpna
Ástbjörn Haraldsson varð í 3. sæti í 800m hlaupi 15-16 ára sveina
Petra Waage varð í 3. sæti í spjótkasti 13 ára telpna.
Heimsmeistaramót Öldunga í Lathi
ÍR-ingarnir Stefán Hallgrímsson og Halldór Matthíasson sem keppa í 60 ára flokki luku í dag keppni í tugþraut á Heimsmeistaramóti öldunga í Lathi í Finnlandi en 21 keppandi lauk keppninni. Stefán kom sá og sigraði en hann hlaut 7463 stig og sigraði með 122 stigum. Stefán hljóp 100m á 14,00 sek, stökk 4,81m í langstökki, kastaði 12,22 m í kúluvarpi, stökk 1,51 m í hástökki og hljóp 400m á 64,57 sek. Í grindahlaupinu kom Stefán í mark á 19,69 sek, kastaði 43,20m í kringlukasti, stökk 3,00 m í stangarstökki, kastaði 40,20m í spjótkasti og hljóp 1500m á 5:49,21 mín. Frábær árangur hjá Stefán.
Halldór Matthíasson sem nýverið skipti yfir í ÍR varð í 10. sæti með 5805 stig. Halldór hljóp 100m á 15,40 sek, stökk 4,14m í langstökki, kastaði 10,45 m í kúluvarpi, stökk 1,42 m í hástökki og hljóp 400m á 71,71 sek. Í grindahlaupinu kom Halldór í mark á 22,94 sek, kastaði 43,02m í kringlukasti, stökk 2,70 m í stangarstökki, kastaði 36,76m í spjótkasti og hljóp 1500m á 6:49,33 mín. Flottur árangur og gott að vera um miðju á þessu glæsilega heimsmeistaramóti. Úrslit má finna á http://wma2009.org
Evrópumeistaramót 19 ára og yngri.
Hulda Þorsteinsdóttir stökk 3.65 m í stangarstökki á Evrópumeistaramóti 19 ára og yngri og varð í 19. sæti í keppninni. 12 stúlkur fóru áfram í úrslit og þurfti 3.80m til að komast áfram. Árangurinn er 15 cm undir hennar besta árangri, en mjög ásættanlegt á svo stóru móti sem EM er. Reynslan af því að keppa á þessu mótinu er mikil og frábær í reynslupokann fyrir framtíðina.
Þrautin leit mjög vel út hjá Einari Daða Lárussyni sem var með 8. besta árangurinn fyrir keppnina. Hann var til skiptis í 7. – 8. sæti og í harðri keppni við mótherja sína um 5. – 8. sætið þrátt fyrir mikinn hita og nokkuð stífann vind. Einar var við sinn besta árangur í flestum greinum og með frábæra bætingu í 400m hlaupi. Því miður tókst Einari Daða ekki að fara yfir byrjunarhæð sína, 3.80m, í stangarstökkinu sem var 8. greinin hætti hann því keppni. Það sannast enn og aftur að það má ekkert smáatriði klikka í tugþrautarkeppni, frekar en öðrum íþróttum, en sérstaklega svekkjandi þegar svona langt er liðið á þrautina.
13. Laugarvegshlaupið, ÍR-ingur með gull og met !
ÍR-ingar halda áfram að standa í eldlínunni helgi eftir helgi. Nú um helgina fór Laugarvegurinn fram í 13. sinn. Metfjöldi keppenda tók þátt en 322 hlauparar lögðu af stað í þessa miklu 55 km þrekraun sem 313 tókst að ljúka. Aðstæður voru ágætar, 10-15°C og sól á köflum, þó rigndi aðeins á keppendur í Þórsmörkinni framan af en minna þegar flestir keppendur voru að ljúka hlaupinu. Meiri snjór vará leiðinni en verðið hefur undanfarin ár og eykur það enn á gildi þess árangurs hversu fáir þurftu að hætta í hlaupinu (8 manns) og einnig árangri hlaupara sem var í heildina mjög góður.
Fyrstur í mark varð Þorbergur Ingi Jónsson sem að undanförnu hefur verið meira þekktur fyrir styttri brautarhlaup og verið landsliðsmaður í 800m, 1500m og 5000m. Þorbergur setti glæsilegt met á leiðinni 4:20.32 klst og bætti fyrra metið um 19 mín en þetta er í fyrsta sinn sem Þorbergur keppir í Laugarveginum. Annar í mark var Guðmundur Sigurðsson sem einnig var að hlaupa í fyrst sinn, Guðmundur var á glæsilegum tíma 4:54:15 klst. Fjórði í mark var Gauti Höskuldsson 5:04:40
Fjöldi ÍR-skokkara tók þátt og urðu eftirtaldar sveitir í 2. og 15. sæti en ÍR-skokk hefur æft undir stjórn Gunnars Páls Jóakimssonar sem einnig þjálfar Þorberg Inga.
16:39:19 klst Gauti Höskuldsson 5:04:40 klst
Sigurður Hjalti Sigurðarson 5:45:39 klst
Sigurður Þórarinsson 5:49:00 klst
8:41:43 klst Sif Jónsdóttir 5:57:45 klst
Þóra Björg Magnúsdóttir 6:10:41 klst
Ómar Torfason 6:33:17 klst
Óshlíðin, þrefaldur ÍR-sigur í karlakeppninni
ÍR-ingar náðu glæsilegum árangri í Óshlíðarhlaupinu og Vesturgötunni 17. og 19. júlí sl. Óshlíðin er hlaupin frá Bolungarvík til Ísafjarðar en 36 hlauparar luku hlaupinu sem var mikil fjölgun frá árinu 2008 en þá luku 22 manns hlaupinu.
ÍR átti fyrstu þrjá karla í mark auk þess sem Martha Ernstsdóttir sigraði með glæsibrag í hálfu maraþoni kvenna. Tími Mörthu var 1:22.51 klst. Valur Þórsson kom fyrstur karla í mark á 1:13,09 klst sem er hans næstbesti hálfmaraþontími en í fyrra hljóp hann á 1:16.14 klst. Birkir Marteinsson varð annar á 1:16,56 klst og Þorlákur Jónsson varð 3. á 1:20,08 klst.
Óshlíðarhlaupið er liður í hlaupahátíð sem fram fór á vestfjörðum um helgina en á sunnudeginum var Vesturgatan svokölluð hlaupin í 4. sinn en það er 24 km utanvegahlaup sem vaxið hefur í sniðum ár frá ári en árið 2008 luku 50 keppendur hlaupinu en nú 110 manns. Valur Þórsson varð þar í 1. sæti á 1:38,50 klst nokkuð á undan næsta keppanda, Sigurjón Sigurbjörnsson varð 3. á 1:46.34 klst og Burkni Helgason 4. á 1:49,30 klst. Martha var að sama skapi með yfirburði í hlaupinu en hún kom í mark á 1:51,10 klst.
10. Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar, Hjalti Garðarsson meðal keppenda
Fimm íslenskir frjálsíþróttamenn kepptu á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Tampere í Finnlandi 20. – 26. júlí. Einn ÍR-ingur, Hjalti Garðarsson ÍR var valinn til keppninnar að þessu sinni. Hjalti keppti í kringlukasti og varð hann í 19. sæti með 43,90m en hefði þurft að kasta yfir 49m til að komast í úrslit. Hjalti er að stíga sín fyrstu skref í alþjóðlegri keppni og var þetta stórmót mikill skóli þar sem allt er í mjög föstum skorðum á móti sem þessu en flestir ef ekki allir af bestu ungmennum Evrópu í þessum aldursflokki keppa þar sín á milli. Öll úrslit má finna á heimasíðu mótsins www.tampere.fi
Á döfinni
Meistaramót Íslands 11-14 ára Höfn 15. – 16. ágúst
Meistaramót 35+ Reykjavík 15. – 16. ágúst
Reykjavíkurmaraþonið Reykjavík 22. ágúst
Norðurlandamót 19 ára og yngri Finlandi 22.- 23. ágúst
Fríða Rún Þórðardóttir
Varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR