valitor











































Lesa frétt
29.12.2009

Júnípistill 2009 fyrir Breiðholtsblaðið

   Fréttir frá Frjálsíþróttadeild ÍR

 

 

XIII Smáþjóðaleikarnir á Kýpur

13. Smáþjóðaleikarnir fóru fram dagana 1. – 6. júní í Nicosiu á Kýpur. Fimm ÍR-ingar skipuðu hið 20 manna íslenska keppnislið og hlutu þau alls sjö verðlaun sem er frábær árangur og þriðjungur þeirra verðlauna sem íslenska liðið vann til. Mikill hiti og töluverður vindur einkenndi mótið sem helst hafði áhrif á lengri hlaupin en annars voru aðstæður góðar og hörð keppni. Árangur ÍR-inga var eftirfarandi.

                                                                                                                                                             Vindur

Jóhanna Ingadóttir                   1. sæti              Þrístökk           12,75 m           (2,0m/s)

                                                                                              13,26 m           (2,4m/s)

                                               2. sæti              Langstökk        5.99m              (0,8m/s)

 

Fríða Rún Þórðardóttir 2. sæti              10000m           37:20,76 mín

                                               4. sæti              5000m             18:35.00 mín

 

Einar Daði Lárusson                3. sæti              Hástökk           1.95m

                                               4. sæti              Stangarstökk    4.20m             

                                               4. sæti              4 x 100m boðhlaup

                                               5. sæti              4 x 400m boðhlaup

 

Hrafnhild Eir Hermóðsd           3. sæti              200m               25,39 sek        (-0,2m/s)

                                               4. sæti              100m               12,75 s                        (-0,7m/s)

                                               3. sæti              4 x 100m boðhlaup

 

Þorbergur Ingi Jónsson            4. sæti              1500m             4:00,09 mín

                                                8. sæti              800m               1:58,15 mín     

                                               5. sæti              4 x 400m boðhlaup

 

Heimasíða mótsins er http://www.cyprus2009.org.cy en þar má skoða öll úrslit mótsins.

 

Hulda Þorsteinsdóttir með verulegar bætingar!

Hin 18 ára Hulda Þorsteinsdóttir náði þann 6. júní þriðja besta árangri íslenskarar konu í stangarstökki þegar hún stökk yfir 3,70 metra á móti í Keverlar í Þýskalandi. Hún bætti þar sinn besta árangur utanhúss um hálfan metra, en hún átti best 3,20m frá árinu 2007. Hulda stökk í vetur 3,60 metra innanhúss, en hún sleit krossbönd í stangarstökkskeppni fyrir ári síðan og er búin að ganga í gegnum miklar raunir síðan þá. Eins og áður segir er þetta þriðji besti árangur í stangarstökki kvenna frá upphafi, aðeins Þórey Edda Elísdóttir FH Íslandsmethafi í greininn sem stokkið hefur hæst 4,60m og Vala Flosadóttir ÍR og bronsverðlaunahafi á Ólympíuleikunum árið 2000 og stökk hæst 4,50m hafa stokkið hærra.

Hulda hefur notið góðrar handleiðslu Þóreyjar Eddu í vetur og er það greinilega að skila sér. 

Hulda stefnir á að ná lágmarki fyrir EM unglinga 19 ára og yngri, sem fram fer í Novi-Sad 23.-26 júlí, en lágmarkið inn á það mót er 3,80 metrar og keppir hún á tveimur mótum til viðbótar í Þýskalandi dagana 11. og 14. júní fyrst í Duisburg og síðan Mannheim.

Með þessum árangri er Hulda búin að stökkva sig inn í ÍR-OL2012 hópinn en einnig afrekshóp unglinga Frjálsíþróttasambands Íslands.

Fínn árangur á kastmóti ÍR, 4 júní

Fínn árangur náðist á kastmóti ÍR sem haldið var 4. júní. Hæst bar árangur Maríu Óskar Felixdóttur en hún kastaði sleggjunni 42,86 metra, sem er aðeins 59 sm frá Íslandsmeti Söndru Pétursdóttur ÍR í flokki stúlkna 17-18 ára auk þess sem þetta er viðmið í Afrekshóp ungmenna FRÍ. Sandra Pétursdóttir kastaði sleggjunni 52,88 metra sem er skammt frá Íslandsmeti henni sem hún setti í mars sl. Valdís Anna Þrastardóttir byrjaði sumarið vel með 45,45 metra, sem er rétt tæplega meter frá hennar besta árangri frá sl. ári. Þá stórbætti Guðmundur Sverrisson árangur sinn í spjótkasti en hann kastaði hvorki meira né minna en 61,44 metra, en hann átti best 53,98 metra frá árinu 2007

 

María Ósk Felixdóttir í Afrekshóp Ungmenna FRÍ

Með árangri sínum á kastmóti ÍR náði María Ósk Felixdóttir að kasta sig inn í Afrekshóp ungmenna Frjálsíþróttasambands Íslands þegar hún kastaði sleggjunni 42.86 m en lágmarkið er 42.00 m.

 

Norðurlandameistaramót Unglinga í Fjölþrautum

NM unglinga 22 ára og yngri í fjölþrautum fer fram á Kópavogsvelli helgina 13.-14. júní.

Alls eru 49 keppendur skráðir til leiks, en keppt er í þremur aldursflokkum í tugþraut karla og sjöþraut kvenna (17 ára og yngri, 18-19 ára og 20-22 ára). Ísland sendir 13 keppendur til leiks og þar af eru þrír ÍR-ingar en það eru þau Dóróthea Jóhannesdóttir sem keppir í flokki 17 ára og yngri en þar eru 13 stúlkur skráðar til leiks og Einar Daði Lárusson og Börkur Smári Kristinsson sem keppa í flokki 18-19 ára en þar eru 10 keppendur skráðir til leiks. Einar Daði hefur oft keppt á þessu móti áður en þau Dóróthea og Börkur taka þátt í fyrsta sinn. Hægt verður að fylgjast með mótinu á www.fri.is / mótaforrit 

Af hinum þjóðunum senda Svíar flesta keppendur eða 17 talsins, Finnar næstflesta eða 12, þá koma Norðmenn með 4 og Danir reka lestina með 3 keppendur.

Reykjavíkurmeistaramót 15 ára og eldri

Reykjavíkurmeistaramót 15 ára og eldri var haldið á Laugardalsvelli 26. og 27. maí sl.

ÍR eignaðist þarna 9 Reykjavíkurmeistara auk þess sem 7 silfurverðlaun og 7 bronsverðlaun komu í hús. Þátttaka í mótinu var ekki mikil þar sem töluverður fjöldi íþróttafólks var enn í prófum en af árangurinum sem náðist er ljóst að mikil og góð vinna hefur verið lögð inn í vetur og veit það á gott vor og sumar

 

Helstu úrslit

Sigurður Kristinsson                 100m hlaup sveina       1. sæti  12,77 sek

                                               Langstökk sveina         2. sæti 5,22 m

                                               Kúluvarp sveina           3. sæti  8,12 m

Dóróthea Jóhannesdóttir          100m hlaup meyja        1. sæti  12,69 sek

                                               200m hlaup meyja        2. sæti  26,19 sek

                                               Langstökk meyja         2. sæti 4,88 m

                                               Kúluvarp meyja           3. sæti 7,99 m

Heiður Þórisdóttir                    Langstökk meyja         3. sæti 4,40 m

Hilda Margrét Ragnarsdóttir     Kúluvarp meyja           1. sæti 10,31 m

Börkur Smári Kristinsson         100m hlaup karla         3. sæti  11,70 sek

                                               Kúluvarp karla 3. sæti  9,36 m

Birna Þórisdóttir                      100m hlaup kvenna      2. sæti  13,00 sek

Erna Dís Gunnarsdóttir 200m hlaup kvenna      3. sæti  28,09 sek

Magnús Reynir Rúnarsson        200m hlaup sveina       2. sæti 

Kolbeinn Stefánsson                200m hlaup sveina       3. sæti

Björn J. Þórisson                     200m hlaup karla         2. sæti  23,46 sek

Örvar Ólafsson                        Hástökk karla              1. sæti  1,70 m   

Mikael Gunnlaugsson               Langstökk sveina         1. sæti 5,27 m

                                               Kúluvarp sveina           1. sæti  9,94 m

Valdís Anna Þrastardóttir         Spjótkast kvenna         1. sæti 44,18 m

                                               Kúluvarp kvenna          2. sæti  9,63 m

Jón Valgeir Williams                Kúluvarp karla 1. sæti  11,46 m

Ármann Óskarsson                  Spjótkast karla            1. sæti 42,37 m

 

 

 

 

Skólaþríþraut FRÍ og Iceland Express

Frjálsíþróttasamband Íslands í samvinnu við Iceland Express stóð fyrir skólaþríþraut FRÍ 21. maí sl. Á mótinu keppa ungmenn úr 6. og 7. bekk grunnskóla fyrir sinn skóla en nokkrir ÍR-ingar tóku þátt í mótinu og var árangur þeirra eftirfarandi.

 

6. bekkur stelpur
2. sæti Salvör Jónsdóttir Ísberg Grandaskóli 1997
4. sæti Eva Bergrín Ólafsdóttir Vogaskóli 1997
 
7. bekkur telpur
3. sæti Bogey Ragnheiður Leósdóttir Breiðholtsskóli 1996
7. sæti Gréta Sóley Arngrímsdóttir Laugalækjarskóli 1996
10. sæti Petra Waage Seljaskóli 1996
 
7. bekkur piltar
2. sæti Gunnar Ingi Harðarson Laugalækjarskóli 1996
4. sæti Jón Gunnar Björnsson Grandaskóli 1996
 
Stigakeppni samkvæmt stigatöflu FRÍ

Í þessum hluta keppninnar er árangri allra keppenda í hverri grein sem þeir keppa í raðað eftir stigatöflu Frjálsíþróttasambands Íslands. Þar var Gunnar Ingi Harðarson með 4. besta árangur pilta fyrir 200m hlaup á tímanum 27.15 sek og 955 stig og 5. besta árangur pilta fyrir hástökk og 1,58 m og 946 stig. Þær stöllur Gréta Sóley Arngrímsdóttir og Bogey Ragnheiður Leósdóttir voru með 4. – 5. besta árangur stúlkna fyrir hástökk, 1,45 m og 972 stig en þær stukku sömu hæð.

 

 

 

 

 

ÍR-OL2012, Undirskrift, 18. maí

Frjálsíþróttadeild Íþróttafélags Reykjavíkur setti í byrjun árs af stað metnaðarfullt afreksprógram, ÍR-ÓL2012, til viðbótar við það öfluga barna- og unglingastarf sem deildin hefur haldið úti til fjölda ára. Þetta afreksprógram er sjálfsögð viðbót við starf okkar hingað til og felur í sér skipulagt ferli þar sem hágæðaþjálfun á afreksfólki okkar, úr hendi vel menntaðra og reyndra þjálfara, fer saman með faglegri samvinnu við aðra fagaðila. Fagaðila úr röðum sjúkraþjálfara, næringarfræðinga, sálfræðinga og nuddara ásamt öllum þeim smærri þáttum sem varða leiðina til afreka framtíðarinnar til að mynda, félagslegir þættir, samvera og utanumhald. Annar þáttur sem vert er að nefna er einnig sá drifkraftur sem hlíst af áhuga utanaðkomandi og jákvæðrar umfjöllunar fjölmiðla.

Markmiðið með stefnunni er að fylgja skipulögðu afreksprógrami til fjögurra ára það sem lokatakmarkið er að þrír frjálsíþróttamenn úr röðum ÍR skipi Ólympíulið Íslands í London árið 2012 en það ár eru 100 ár liðin síðan ÍR átti fyrst keppanda á Ólympíuleikum í frjálsíþróttum.

 

Það þarf heilt þorp til að ala upp barn ....og heilt frjálsíþróttafélag til að búa til Ólympíufara, það þarf mikla vinnu & samstöðu til að búa til Ólympíuverðlaunahafa og munum við byggja á þessum gildum.

 

Undirskrift samninga Frjálsíþróttadeildarinnar við íþróttafólkið fór fram þann 18. maí og var meðfylgjandi mynd tekin við það tilefni en eftirfarandi íþróttamenn skrifuðu undir samning við þetta tækifæri. Á myndina vantar Söndru Pétursdóttur sleggjukastara, Kristínu Birnu Ólafsdóttur sjöþrautarkonu og Chelsey Kristínu Birgisdóttur sem staddar og búsettar eru erlendis við æfingar og keppni.

 

Nafn                                        Keppnisgrein

Chelsey Kristína Birgisd           Millivegalengdir

Einar Daði Lárusson                Tugþraut, grindahlaup, stökk

Fríða Rún Þórðardóttir Langhlaup

Guðrún Haraldsdóttir               Hástökk

Helga Þráinsdóttir                    Hástökk

Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir     Spretthlaup

Jóhanna Ingadóttir                   Langstökk, þrístökk

Kristín Birna Ólafsdóttir           Sjöþraut, grindahlaup

Pétur Guðmundsson                 Kúluvarp, kringlukast

Sandra Pétursdóttir                  Sleggjukast

Snorri Sigurðsson                    Millivegalengdir

Valdís Anna Þrastardóttir         Spjótkast

Þorbergur Ingi Jónsson            Millivegalengdir

 

Íslandsmet í 100 km hjá Sigurjóni Sigurbjörnssyni

Sigurjón Sigurbjörnsson keppti í 100 km hlaupi í fyrsta sinn laugardaginn 6. júní í Reykjavík. Þetta er í annað sinn sem keppt er í 100 km hlaupi hér á landi en nokkrir Íslendingar hafa tekið þátt í 100 km hlaupum í ýmsum löndum. Besta tímann átti Ágúst Kvaran 8 klst. 43 mín og 8 sekúndur en hann hafði tvisvar hlaupið undir 9 klst. og sá eini sem það hafði gert. Sigurjón bætti þennan Íslansmetstíma um rúmar 19 mínútur en lokatími hans var 8:23:45 klst. Frábær bæting hjá Sigurjóni.
Meistaramót Íslands í fjölþrautum 23. – 24. maí, Þorlákshöfn

Börkur Smári Kristinsson varð um helgina Íslandsmeistari í tugþraut karla með 5623 stig. Árangur hans í einstökum greinum ásamt stigum fyrir hverja grein var (100 m 12,19/614 – langstökk 6,46/688 – kúluvarp 9,71/468 – hástökk 1,73/569 – 400 m 53,10/677 –

110 m grind 17,70/553 – kringlukast 30,45/473 – stangarstökk 3,60/509 – spjótkast 40,29/446 – 1500m 4:48,80/626 ). 

Mikill vindur hamlaði keppendum mikið þessa helgi og er árangur Barkar því mjög athyglisverður. Hann keppir aftur í tugþraut á 13. og 14. júní á Norðulandameistaramótinu í fjölþrautum sem fram fer í Kópavogi.

Í sjöþraut meyja voru tveir keppendur frá ÍR og stóðu þær sig með sóma, náðu öðru og þriðja sætinu. Dóróthea Jóhannesdóttir varð í 2. sæti með 3828 stig og Hekla Rún Ámundadóttir varð í 3. sæti með 3389 stig. Árangurinn þeirra í einstökum greinum var sem hér segir. Dóróthea Jóhannesdóttir ÍR (1994)(100m grind 16,48/657 – hástökk 1,50/621 – kúluvarp 7,95/396 –

200 m 27,78/648 – langstökk 5,05/573 - spjótkast 26,72/415 - 800m 2:44,94/518).

Hekla Rún Ámundadóttir ÍR (1995) (100m grind 18,93/397 – hástökk 1,50/621 – kúluvarp 10,50/562 – 200m 30,54/445 – langstökk 4,85/519 – spjótkast 31,26/500 – 800m 3:02,18/345)

 

Meistaramót Íslands í lengri boðhlaupum 23. – 24. maí, Þorlákshöfn

Meistaramót Íslands í lengri boðhlaupum, 3x800 m kvenna og 4x800 m og 4x1500 m karla var haldið í Þorlákshöfn 23. og 24. maí samhliða fjölþrautarkeppninni. Lið ÍR-sigraði í öllum boðhlaupunum. Í kvennaflokki var meyjasveit ÍR Íslandsmeistari á 7:41,69 mín eftir góða keppni við A-sveit ÍR sem hljóp á 7:42,21 mín. Íslandsmeistarasveitina skipuðu þær Aníta Hinriksdóttir, Björg Gunnarsdóttir og Vera Sigurðardóttir. Silfursveitina skipuðu þær Þóra Kristín Pálsdóttir, Erna Dís Gunnarsdóttir og Fríða Rún Þórðardóttir. Litlu munaði að ÍR væri með þrjár kvennasveitir en B-sveitin fór af stað en náði ekki að klára hlaupið vegna meiðsla.

ÍR var eina sveitin í 4x800m boðhlaupi karla en sigursveitina skipuðu Adam Þorgeirsson, Ólafur Konráð Albertsson, Snorri Sigurðsson og Þorbergur Ingi Jónsson. Sigurtími þeirra var 8:32,16 mín. Í 4x1500 hlupu Ólafur, Snorri, Þorbergur og Birkir Marteinsson. Sigurtími þeirra var 17:35,03 mín. Á myndinni er sigursveitin í 4x1500 m.

Flottur árangur hjá ÍR-ingum um helgina.

 

 

Fríða Rún Þórðardóttir

Varaformaður frjálsíþróttadeildar ÍR