24.4.2010
Aprílpistill 2010 fyrir Breiðholtsblaðið
Fréttir frá Frjálsíþróttadeild ÍR
95. Víðavangshlaup ÍR á Sumardaginn fyrsta
Hið árlega Víðavangshlaup ÍR var haldið á Sumardaginn Fyrsta í 95. sinn. Enn eitt metið var sett í þáttöku en alls kláruðu 459 hlauparar þessa 5 km sem hlaupnir eru frá Ráðhúsi Reykjavíkur, upp Skothúsveg, kringum bæði litlu og stóru tjörnina, framhjá Ráðhúsinu og upp Suðurgötuna, aftur kringum litlu tjörnina og til baka sem leið liggur að Ráðhúsinu og markinu. Veðrið var ágætt, heldur kalt en sól og ekki svo hvasst. Sigurvegari var Björn Margeirsson FH á 15.31 mín, Þorbergur Ingi Jónsson ÍR kom mjög skammt á eftir honum í 2. Sæti á 15:34 mín og Sigurbjörn Árni Arngrímsson HSÞ 3. á 15:41 mín. Þorbergur varð einnig annar árið 2009 og hljóp þá á 1 sek betri tíma eða 15:33 mín. ÍR-ingarnir Snorri Sigurðsson, Ólafur Konráð Albersson og Birkir Marteinsson urðu í 4., 7. og 9. Sæti, þar sem Snorri færði sig nú upp um 1 sæti síðan í fyrra og bætti sig um 6 sek. Í kvennaflokki sigraði Íris Anna Skúladóttir Fjölni á 18:03 mín, Fríða Rún Þórðardóttir ÍR varð 2. á 18:29 mín og Arndís Ýr Hafþórsdóttir Fjölni varð 3. á 18:36 mín. Aníta Hinriksdóttir ÍR varð 4. á 18:48 mín sem er 10 sek betri tími en 2009. Aníta sigraði í flokki 13-15 ára, Fríða Rún í flokki 40-49 ára, þar sem Hrönn Guðmundsdóttir varð 2. á 20:03 mín og Sigurbjörg Eðvarðsdóttir sigraði í flokki 50-59 ára á 20:22 mín. Gaman er að segja frá því að Sigurjón Andrésson sem fæddur er 1941 var að hlaupa í 35. sinn í röð í þessu hlaupi og var honum klappað lof í lófa enda ekki á hverjum degi sem slíkt á sér stað.
Afrekskvennasjóður ÍSÍ og Íslandsbanka styrkir frjálsíþróttakonur úr ÍR
Fjórar helstu afrekskonur Frjálsíþróttadeildar ÍR hlutu rausnarlegan styrk úr Afrekskvennasjóði ÍSÍ og Íslandsbanka. Sótt var um fyrir afrekskonurnar Huldu Þosteinsdóttur stangarstökkvara, Jóhönnu Ingadóttur lang- og þrístökkvara, Kristínu Birnu Ólafsdóttur grindahlaupara og sjöþrautarkonu og Söndru Pétursdóttur sleggjukastara. Þær eru allar að undirbúa sig af kappi fyrir stóru mót sumarsins og sem er aðeins eitt skref í átt að Ólympíuleikunum 2012. Deildin óskar þeim stöllum og þjálfurum þeirra innilega til hamingju með styrkinn en ekki síst þá viðurkenningu sem í honum felst. Deildin færir ÍSÍ og Íslandsbanka sínar bestu þakkir fyrir að standa svo vel að baki afrekskonum í íþróttum.
Chelsey Sveinsson, sigursæl á 83. Texas Relays í USA
Chelsey átti frábæra helgi á Texas Relays um páskahelgina, líkt og fyrir ári síðan. Hún var valin kona mótsins, annað árið í röð, fyrir yfirburðar sigra sína bæði í 2 mílna hlaupi (3200m) og 1600m hlaupi. Chelsey hljóp 2 mílurnar á fyrri degi mótsins á 10:07,15 mín við fullkomnar aðstæður, þetta var bæting á eigin mótsmet sem var 10.12.11 mín síðan í fyrra en það er hennar besti tími. Athygli vakti að hún var 32 sek á undan næstu stúlku. Þegar 1600m hlaupið fór fram var hins vegar meiri vindur en Chelsey lét það ekki aftra sér frá því að hlaupa algert sólo hlaup á 4:51,33 mín, 9 sek á undan næstu, 69s, 74s, 76s voru splittin hennar. Mótsmetið hennar síðan 2008 er 4:44,70 mín. Sjá má Chelsey í 1600m hlaupinu og skoða öll úrslit mótins
hér
Kristín Birna hleypur á 59.54 sek við íslenskar aðstæður í Norður Karólínu
Kristín Birna Ólafsdóttir heldur áfram að hlaupa vel á mótum í Bandaríkjunum. Um helgina hljóp hún 400m grindahlaup á móti í Raleigh í Norður Karolínu á tímanum 59.54 sek og varð í 2. Sæti af 58 keppendum. Hlaupið vannst á 59.29 sek sem er 15/100 hægar en Kristín hefur hlaupið á best í ár en hún hljóp á á 59,04 sek um sl. helgi. 59,54 sek er hennar 5. Besti tími frá upphafi. Mark W. Johnson unnusti Kristínar stökk vel í stangarstökkinu, 5.45 m sem er aðeins 5 cm frá hans besta utanhúss. Það er ljóst að þau eru bæði í feiknarformi. Kristín Birna Ólafsdóttir og Mark W. Johnson byrjuð að keppa í USA. Kristín Birna Ólafsdóttir og unnusti hennar Mark W. Johnson hafa verið iðin við að keppa á mótum í Bandaríkjunum. Helgina 20.-21. mars hljóp Kristín Birna 100m og 400m grindahlaup á Shamrok invitational. Í 100m hlaupinu hljóp hún á 12.42 sek sem er hennar besti árangur samkvæmt afrekaskrá FRÍ. Í 400m grindahlaupi hljóp hún á 59.04 sek er meira en 1 sek hraðar en hún hefur áður opnað tímabilið með. Kristín á best 58.82 sek en 59.04 sek er hennar næstbesti tími frá upphafi. Athygli vekur að ef að skoðuð eru lágmörk FRÍ fyrir EM utanhúss í Barcelona í sumar má sjá að Kristín Birna er aðeins 29/100 úr sekúndu frá B-lágmarkinu sem er 58,75 sek og gildir það lágmark aðeins ein íslensk kona hleypur á þeim tíma eða hraðar. Ef fleiri hlaupa hraðar en 58.75 sek þarf að hlaupa á 57.80 sek til að komast á mótið. Úrslit mótsins má sjá
hér. Helgina 13-14. Mars kepptu þau einnig og þar hljóp Kristín Birna 200m á 25.38sek sem er hennar þriðji besti árangur utanhúss og Mark stökk 5.35 m í stangarstökki sem er glæsileg opnun á tímabilinu. Mark á best 5.50m utanhúss síðan í fyrra og 5.40m innahús en hann stökk 5.25m núna í febrúar. Úrslit þess móts má finna
hér, Kristíner skráð sem Christine Johnson. Kristín og Mark flytjast heim til Íslands núna um mánaðarmótin.
María Ósk Felixdóttir með met í sleggjukasti 47.79 m
Það er ljóst að kven sleggjukastarnir eru á fínni siglingu og hafa æft vel í vetur en fyrsta mót ársins í sleggjukasti var haldið 20. mars í Laugardalnum. María Ósk Felixdóttir (1992) sett nýtt stúlknamet með kasti upp á 47.79 m sem er rúmum 2 m lengra en metið sem hún átti sjálf og setti sl. sumar á Landsmóti UMFÍ á Akureyri. María á augljóslega helling inni. Sandra Pétursdóttir sigraði með kasti upp á 51.53 m en hún á best 54.19 m sem er Íslandsmet í kvenna-, ungkvenna- og unglingaflokki sett árið 2009. Aðaheiður María Vigfúsdóttir Breiðabliki varð 2. með 48,75 m en hún á best 51.25m síðan 2008.