valitor











































Lesa frétt
24.4.2010

Marspistill 2010 fyrir Breiðholtsblaðið

Fréttir frá Frjálsíþróttadeild ÍR 
Niðurstaða innahúss tímabilsins
Það er ljóst að það er öflugt starf í gangi hjá frjálsíþróttadeild ÍR. Á innanhússtímabilinu, sem stendur frá byrjun janúar til byrjun mars, hefur ÍR unnið allar heildarstigakeppnir innanhússtímabilsins með yfirburðum. MÍ 11-14 ára, MÍ 15-22 ára, MÍ karla og kvenna, MÍ öldunga og Bikarkeppni FRÍ.  Þar með endurtóku ÍR-ingar leikinn frá innanhússtímabilinu árið 2008 en nú með enn meiri yfirburðum en þá. Nú tekur við uppbyggingartímabil og hjá mörgum, 10 daga æfingabúðir um páskana. MÍ 11-14 ára, ÍR sigurvegari í heildarstigakeppninni. Hinir galvösku 11-14 ára íþróttamenn ÍR stóðu sig með miklum sóma um helgina eins og árið 2009. Liðið sigraði í heildarstigakeppni félaganna með alls 571 stig auk þess sem piltar 14 ára og telpur 13 ára sigruðu sínar stigakeppnir. Telpur 14 ára og stelpur 11 ára urðu í öðru sæti.   ÍR þjálfararnir héldu frábærlega vel utan um sinn stóra hóp og flestir tóku þátt í boðhlaupum þar sem ÍR var með alls 13 boðhlaupssveitir. Þannig var botninn selginn í frábært mót og frábæra helgi þar sem samheldni og gleði ríkti.   Þeir sem urðu Íslandsmeistarar voru: Aníta Hinriksdóttir-800m, Anthoni Þórir Santos - langstökk, Guðbjartur Bjarnason - 60m, 60m grindahlaup, Hilmar Örn Jónsson - kúluvarp, 3kg, Ingibjörg Dana Vignisdóttir - hástökk, Thelma Lind Kristjánsdóttir - langstökk. Strákaflokkur, 11 ára: 4 x 200m boðhlaup. Telpnaflokkur, 13 ára: 4 x 200m boðhlaup.  Piltaflokkur, 14 ára: 4 x 200m boðhlaup.   Auk þessa unnust í heildina 10 silfur og 10 brons.   Flott helgi hjá ÍR-ingum og góð lok á frábæru innanhússtímabili hjá ÍR!  
Hulda Þorsteinsdóttir með bætingu og HM lágmark
 Hulda Þorsteinsdóttir stökk á 3,95 m á innanfélagsmóti ÍR í Laugardalshöll 11. mars. Hulda hefur bætt sig vel í vetur en vantað herslumuninn þar til í dag á að ná 3,95 m sem er lágmark á HM unglinga sem haldið verður í Kanada í júlí í sumar. Hulda hefur æft undir leiðsögn methafans Þóreyjar Eddu Elísdóttur og er það samstarf farið að skila miklum árangri. Næsta takamark Huldu er að rjúfa 4 m múrinn en þess má geta að hún átti góðar tilraunir við 4,05 m á þessu móti. Hulda verður 19 ára á árinu.  
Meistaramót Íslands 11-14 ára, 13-14. Mars     
 Yngsti aldurshópurinn í frjálsum íþróttum, 11-14 ára, keppir á sínum hluta Meistaramóts Íslands í Laugardalshöllinni um helgina.  379 keppendur frá 19 félögum og samböndum eru skráðir til leiks og 60 boðhlaupssveitir. Mestur fjöldi kemur frá ÍR og sameiginlegu liði HSK og Selfoss. Alls eru um 1500 skráningar sem þýðir að hver keppandi tekur þátt í 4-5 greinum. Keppnin stendur frá kl. 10 báða dagana en líkur um kl. 15 á sunnudaginn. ÍR-ingar er hvattir til að leggja leið sína í Laugardalshöllinni og styðja við bakið á hinu unga frjálsíþróttafólki.  
Stefán Hallgrímsson í 3. sæti í fimmtarþraut á HM innanhúss
 Stefán Hallgrímsson varð í 3. Sæti í flokki 60-65 ára á Heimsmeistaramóti öldunga innanhúss í Kamloops BC.  í Kanada. Stefán hlaut alls 3972 stig. Þrautina sigraði John Hawkins frá Kanda með 4090 stig, í öðru sæti var Valdis Lela Lettlandi með 4048 stig. Það var því mjótt á munum en þessir 3 íþróttamenn skiptust á að vera í efstu sætunum í  hverri grein. Í 60m grind hljóp Stefán á 10.25 sek og sigraði, hann var 3. í hástökki með 1.52m, 3. í langstökki með 4,58m, 2. í kúluvarpi með 11.65m og að lokum sigraði Stefán 1000m hlaupið á 3:33.49 mín.  
Reykjavíkumeistaramót 15  ára og eldri
 Á Reykjavíkurmeistaramóti 15 ára og eldri lönduðu liðsmenn ÍR 22 Reykjavíkurmeistaratitlum auk fjölda silfur- og bronsverðlauna . Töluvert af bætingum leit dagsins ljós. Fyrst ber að nefna árangur Heklu Rúnar Ámundadóttur sem kastaði 3 kg kúlunni 12.12 m og bætti sig um ½ meter. Árangurinn er viðmið í Afrekshóp Ungmenna FRÍ. Aðrir sem bættu sig voru Arna Stefanía Guðmundsdóttir í langstökki þegar hún stökk 5.20m, Arnar Orri Sverrisson í 800m 2:07.60 mín og 24,62 sek og Kolbeinn Stefánsson sem bætti sig í 800m hlaupi, hljóp á 2:08,64 mín og bætti sig um 2 ½ sek. 
Þeir sem urðu Reykjavíkurmeistarar voru:
Arnar Orri Sverrisson, Björn Jón Bragason,  Börkur Smári Kristinsson, Guðni Þór Guðnason, Ívar Kristinn Jasonarson, Juan Ramon Borges Bosque, Leó Gunnar Víðisson, Vigfús Dan Sigurðsson,  Arna Stefanía Guðmundsdóttir,  Bogey Ragnheiður Leósdóttir,  Fríða Rún Þórðardóttir, Heiður Þórisdóttir, Hekla Rún Ámundadóttir, Helga Þráinsdóttir,  Hulda Þorsteinsdóttir,  Kristín Lív Svabo Jónsdóttir             
Fjölmennum aðalfundi frjálsíþróttadeildarinnar lokið
Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar ÍR fyrir árið 2009 var haldinn í Laugardalshöllinni í kvöld. Fjölmenni var, en yfir 50 manns sátu fundinn. Auk venjulegrar aðalfundarstarfa þar sem viðamikil skýrsla um starfið árið 2009 var flutt, var formaðurinn Margrét Héðinsdóttir endurkjörin auk stjórnar og varastjórnar en hana skipa Fríða Rún Þórðardóttir varaformaður, Helga Jensen gjaldkeri, Bryndís Ernstsdóttir meðstjórnandi, Ásgeir Baldur Böðvarsson meðstjórnandi. Varastjórn; Sigrún Kristi´n Barkardóttir, Jóhannes Freyr Baldursson.   Veittar voru viðurkenningar fyrir íþróttaárangur ársins 2009. Ársskýrslu deildarinnar má lesa hér

Bikarkeppni FRÍ innanhúss
Frjálsíþróttadeild ÍR átti tvö öflug lið í keppninni um Bikarmeistaratitilinn innanhúss 2010 og urðu ÍR-ingar öruggir sigurvegarar með 132 stig, næst kom sameiginlegt lið Ármanns og Fjölnis með 111,5 stig og í þriðja sæti urðu sigurvegarar síðasta árs, FH með 110,5 stig. Í karlaflokki var  ÍR í öðru sæti, aðeins 4,5 stigum á eftir FH en í kvennaflokki vann ÍR yfirburðasigur með 75 stig, 16 stigum meira en næst lið Fjölnir/Ármann. ÍR eignaðist alls 10 Bikarmeistara sem þýðir sigur í 10 greinum af 25 og fjöldi bætinga leit dagsins ljós. Í þremur greinum vannst tvöfaldur ÍR sigur; þrístökki , Jóhanna Ingadóttir og Sigurlaug Helgadóttir, stangarstökki Hulda Þorsteinsdóttir og Fanney Björk Sigurðardóttir og í 1500m Fríða Rún Þórðardóttir og Aníta Hinriksdóttir   Þeir ÍR-ingar sem urðu Bikarmeistarar voru:
Dóróthea Jóhannesdóttir: 200m  á 25,57 sek
Jóhanna Ingadóttir:  langstökk, 5.51 m  og þrístökk, 12.37 m
Hulda Þorsteinsdóttir: stangarstökk, 3.80 m
Fríða Rún Þórðardóttir: 1500m  á 4:42.50 mín
Arna Stefanía Guðmundsdóttir:  400m á 56,94 sek 
Ísl. met 4 x 400m boðhlaup á 3:57.31 mín. Sveitina skipuðu: Vera Sigurðardóttir, Erna Gunnarsdóttir, Helga Þráinsdóttir og Arna Stefanía Guðmundsdóttir  
Snorri Sigurðsson:  400m á 49,92 sek            
Ólafur Konráð Albertsson: 800m á 1:54.66 mín
4 x 400m boðhlaup, 3:22.90 mín. Sveitina skipuðu: Börkur Smári Kristinsson, Adam Þór Þorgeirsson, Ólafur Konráð Albertsson og Snorri Sigurðsson  
Reykjavíkumeistaramót 11-14 ára
 Á Reykjavíkurmeistaramóti 11-14 ára eignaðist ÍR 32 Reykjavíkurmeistara auk fjölda silfur- og bronsverðlauna og bætinga sem litu dagsins ljós.   Margir voru að keppa í fyrsta sinn og augljóst var að leikgleðin réði ríkjum þrátt fyrir  harða keppni í mörgum greinum. Það er mikilvægt að hægt sé að skapa verðug verkefni fyrir þennan aldurshóp, ekki það að keppnin skiptir öllu máli, hún kryddar hversdaginn og dregur að foreldra, ömmur, afa og aðra aðstandendur sem efalaust gegna lykil hlutverki í íþróttaiðkun barna á þessum aldri.   Til hamingju ÍR-ingar  
Hulda Þorsteinsdóttir og Bogey R. Leósdóttir með met og bætingar í stangarstökki
Hulda Þorsteinsdóttir stökk á dögunum 3,85 m í stangarstökki sem er þriðji besti árangur íslenskrar konu frá upphafi. Hún á góðar tilraunir við 3.95 m sem er lágmark á HM unglinga 19 ára og yngri sem fram fer í sumar. Þessi árangur er lágmark bæði inni í B-hóp ÍR-OL2012 fyrir árið 2010 og einnig inn í afrekshóp Ungmenna FRÍ. Aldursflokkamet Völu Flosadóttur ÍR  í þessum flokki er 4.20m síðan árið 1997 en það met er því rétt innan seilingar hjá Huldu en hún er á fyrra ári í flokknum.   Á sama móti bætti Bogey Ragnheiður Leósdóttir telpnamet Huldu í stangarstökkinu um 15 cm þegar hún stökk 3.05m sem er í fyrsta sinn sem hún stekkur yfir 3.00m. Þessi árangur er vel yfir viðmiðinu inn í úrvalshóp ungmenna FRÍ og aðeins 15 cm frá lágmarki inn í afrekshóp ungmenna FRÍ.   Það er greinilegt að sú gífurlega mikla rækt sem lögð hefur verið í stangarstökksþjálfun hjá ÍR ma. með ráðningu Þóreyjar Eddu Elísdóttur Ólympíufara og Íslandsmethafa og sjálfboðastörfum Kristjáns Gissurarsonar við þjálfunina, sem er að skila góðum árangri en ekki síður aukningu í fjölda þeirra sem æfa stangarstökk markvisst.  
Jóhanna með góðan árangur í Kaupmannahöfn, gull og silfur 
Jóhanna Ingadóttir stökk 12,43 m í þrístökki á innanhússmóti Spörtu í Kaupmannahöfn þann 20. Febrúar. Hún átti mun lengra stökk hárfínt ógilt og er greinilega í bætingaformi. Daginn eftir stökk hún 5.66 m í langstökki og varð í 2. sæti aðeins 8 cm á eftir sigurvegaranum Jessie Ipsen. Þorsteinn Ingvarsson HSÞ, æfingafélagi Jóhönnu, stökk lengst 7.21 m og varð í 4. Sæti en sigurvegarinn var Morten Jensen sem stökk heila 8.04m. 
Meistaramót Íslands í fjölþrautum 20. – 21. Febrúar
Á MÍ í fjölþrautum átti ÍR sex keppendur. Bestum árangri náði Arna Stefanía Guðmundsdóttir (1995) en hún sigraði með yfirburðum í fimmtarþraut meyja 15-16 ára þegar hún hlaut 3.200 stig, 400 stigum meira en sú í 2. sæti. Hún bætti  sig í 60 m grindahlaupi þegar hún hljóp á 9,56 sek og í kúluvarpi og bætti sig í þrautinni um 750 stig síðan 2009. Rannveig Dóra Baldursdóttir varð í 6. Sæti í meyjaflokkmeð 2420 stig og aðeins örfáum stigum frá bronsinu. Hún bætti sig í hástökki stökk 1.51m. Helga Þráinsdóttir keppti í kvennaflokki og varð 4. með 2685 stig, hún bætti sig í kúluvarpi, grindahlaupi og 800m. Arnar Orri Sverrisson varð í 3. Sæti í sveinaflokki í sinni fyrstu sjöþraut með 3457 stig. Leó Gunnar Víðisson varð í 4. Sæti með 3047 stig og bætti sig í stangarstökki með 3.40m og Mikael Louis Gunnlaugsson 6.  með 1745 stig en hann þurfti að hætta keppni vegna meiðsla.   Stórbæting í 800 m hlaupi hjá Ólafi Konráð. Þriðji besti árangur í karlaflokki innanhúss. Ólafur Konráð Albertsson hljóp mjög vel í 800 m hlaupi karla sem fram fór samhliða meistaramóti Íslands í fjölþrautum 20. Febrúar s.l. Tími hans var 1:52,35 mín sem er stórbæting en hann átti best 1:54,80 síðan janúar s.l. Þetta er aldursflokkamet í flokki ungkarla 21 - 22 ára og 3. besti árangur karla frá upphafi.