Lesa frétt
1.1.2012
Fyrirlestur Sigga ÍR skokkara um þátttöku sína í IronMan
Sigurður Sigurðsson ÍR skokkari tók þátt í IronMan Florida (IMF) 5. nóvember sl. og hélt um miðjan desember fyrirlestur fyrir ÍR skokkara um undirbúninginn og sjálfa keppnina.
Í upphafi undirbúningstímans lagði Siggi upp með 12 mánaða æfingaáætlun þar sem miðað var við amk 4 æfingar á viku í hverri grein. Þegar upp var staðið reyndist æfingartímabilið standa yfir í 44 vikur. Á tímabilinu voru hlaupnir um 1821 km, 250 km syntir og 4570 km hjólaðir. Til gamans þá reiknaðist Sigga til að heildar tímafjöldi æfinga jafngildi 30% starfi. Sundið reyndist mesta fyrirhöfnin, enda byggir það mikið til á tækni en ekki magn æfinga.
Auk þess að fjalla um undirbúninginn fyrir keppnina þá fengu hlustendur að sjálfsögðu að heyra um sjálfan keppnisdaginn og upplifun Sigga af stemmingunni, kvíðanum, spenningnum, gleðinni og sigurvímunni. 18 Íslendingar skráðu sig til leiks í IMF,12 hófu keppni og luku allir keppni með sóma. Íslendingar voru fjórða fjölmennasta þjóðin á keppninn. IMF er miðlungs þyngdarflokki af IronMan keppnunum og er sundleggurinn sá fjórði þyngsti.
Siggi náði A og B markmið sínum þ.e. að ljúka keppni og ljúka keppni innan 12 tíma. Frábær árangur hjá okkar manni !!
| Röð |
árangur í aldursflokki |
sund |
hjól |
hlaup |
lokatími |
| 60/20/7 |
55/M55-59 |
01:27:53 |
05:42:36 |
03:58:42 |
11:26:14 |