Lesa frétt
4.1.2012
Árangur ÍR skokkara í gamlárshlaupi ÍR
ÍR skokkarar fjölmenntu í Gamlárshlaup ÍR á Gamlársdag, ýmist sem þátttakendur eða til þess að leggja hönd á plóg við undirbúning og framkvæmd hlaupsins. Björg Kristjánsdóttir varð efst í aldursflokki kvenna 55-59 og Anna Sigrún Björnsdóttir í þriðja sæti. Grétar Einarsson varð í öðru sæti í aldursflokki karla 60 ára og eldri.
Björg Árnadóttir hlaut búningaverðlaun þetta árið en hún hljóp sem súmóglímukappi í félagsskap með þeim félögum Karíus og Baktusi. Sögur herma að Karíus og Baktus mæti gjarnan á æfingar hjá ÍR skokk. Í fréttatíma RÚV á gamlársdag birtust nokkrir félagar okkar á skjánum [skoða frétt - ca á mín. 13.30].
Nánari upplýsingar um frammistöðu ÍR skokkara:
Gamlárshlaup ÍR
Reykjavík, 31. desember 2011
Vegalengd: 10 km
Karlar 19 til 39 ára
35 41:54 Gísli Páll Reynisson 1973
80 48:00 Bjarki Kristinsson 1985
81 48:00 Ágúst Kristinsson 1973
Karlar 40 til 44 ára
11 40:35 Karl Arnar Aðalgeirsson 1967
52 50:35 Sigurður Freyr Jónatansson 1969
Karlar 45 til 49 ára
63 55:01 Halldór Þórarinsson 1962
71 56:39 Sigurður Arnar Jónsson 1964
Karlar 50 til 54 ára
15 46:16 Jón Grímsson 1959
26 49:36 Páll Haraldsson 1958
33 50:55 Björn Ragnarsson 1958
Karlar 55 til 59 ára
6 48:49 Árni Gústafsson 1954
11 55:01 Sigurður Hjalti Sigurðarson 1956
Karlar 60 ára og eldri
2 45:28 Grétar Einarsson 1949
Konur 19 til 39 ára
31 52:18 Helga Viðarsdóttir 1974
Konur 45 til 49 ára
4 47:15 Sigrún Kristín Barkardóttir 1964
16 54:53 Björg Árnadóttir 1964
17 54:56 Unnur Árnadóttir 1966
23 55:44 Þóra Gréta Þórisdóttir 1964
Konur 50 til 54 ára
7 53:08 Hafrún Friðriksdóttir 1961
10 55:51 Sigurlaug Hilmarsdóttir 1958
14 61:02 Bára Ásgeirsdóttir 1959
Konur 55 til 59 ára
1 48:53 Björg Kristjánsdóttir 1956
3 50:55 Anna Sigrún Björnsdóttir 1954
5 55:42 Svava Oddný Ásgeirsdóttir 1954