hreysti


valitor











































Æfingaáætlanir
6.5.2012

Vikan 7. maí til 12. maí 201

Mánudagur:  Veðurútlit, gola, sól,  hiti  ca. + 4 °C til + 6 °C
Mæting og liðkandi æfingar við ÍR-heimili kl. 17:30

Skokkað út í Elliðaárdal, upp í "hólmann", stoppað í "rjóðrinu".

Aðalhluti:  Hlaup með hraðabreytingum...nánar útfært á æfingu eftir aðstæðum.Skokkað til baka í ÍR-heimili ...

Teygjur + Styrkingaræfingar. Hlaupnir verða samtals ca. 11-13 km á æfingunni.

-------------------------------------------------------------

Miðvikudagur:Veðurútlit, gola,  hiti  ca. + 3 °C til + 5 °C 
Mæting og liðkandi æfingar við ÍR-heimili kl. 17:30

Skokkað verður út í Kópavogsdal, stoppað til móts við fótboltavöllinn....léttar teygjur !!  

Reiknað er með að hlaupa aðalhlutann út á Kársnes og til baka í gegnum Fossvoginn, með hraðabreytingum. Margir möguleikar á að stytta hlaupaleið, breyta hlaupaleið, t.d. hlaupafram og til baka, eða lengja lengja hlaupaleið !!

Aðalhluti:  Hlaup með hraðabreytingum...nánar útfært á æfingu.Skokkað til baka í ÍR-heimili ...Teygjur + Styrkingaræfingar.

Hlaupnir verða samtals ca. 10-14 km á æfingunni.

-------------------------------------------------------------------

Laugardagur:    Veðurútlit ágætt..hægviðri, úrkoma og  hiti ca. + 7  til  + 9 °C

Mæting við Sundlaugina í Breiðholti kl. 9:00

Hlaupaleið ákveðin á laugardag og tekið tillit til færðar og veðurs...! Líklegt að hlaupið verði í Heiðmörkina eins og síðasta laugardag.
Vegalengdir frá u.þ.b.  11 km til  21 km..!!!

Eldri æfingaáætlanir