valitor











































Vormót ÍR
Vormót ÍR er haldið í júní ár hvert og var fyrst haldið árið 1943. Keppt er í karla og kvennaflokki á mótinu.

Vormót ÍR og Kaldalshlaupið árið 2011 fer fram á Laugardalsvelli miðvikudaginn 8. júní og hefst kl. 18:00

1. Skráningar:
Skráning keppenda fer fram í mótaforriti FRÍ
Keppendur eru beðnir að skrá sig fyrir miðnætti sunnudaginn 5. júní.

2. Keppnisstaður og tímaseðill:
Keppni fer fram á Laugardalsvelli, miðvikudaginn 8. júní og hefst kl. 18.00.
Drög að tímaseðli eru kominn inn á mótaforritið  og endanlegur tímaseðill kemur mánudaginn 6. júní.

3. Keppnisgreinar:
Karlar: 100m, 200m, 400m, 800m, 3000m (Kaldalshlaupið), langstökk, hástökk, stangarstökk, kúluvarp, spjótkast og sleggjukast.
Konur: 100m, 200m, 400m, 800m, 1500m, 100m grindahlaup, þrístökk, hástökk, stangarstökk, spjótkast og sleggjukast.

4. Skráningargjald og uppgjör:
Skráningargjaldið er 1.250 kr á hverja keppnisgrein og skal greiða áður en keppni hefst.Vinsamlega greiðið þátttökugjöld inn á reikning Frjálsíþróttadeildar ÍR og sendið kvittun með tölvupósti á gjaldkera Frjálsíþróttadeildar ÍR, Helgu Jensen, helgaje@internet.is
Reikningsnúmer: 115-26-14004 kt. 421288 2599
Félögin eru vinsamlegast beðin um að gera upp í einu lagi fyrir sína keppendur.

5. Nafnakall:
Nafnakall fer fram á keppnisstað 20 mínútum áður en keppni hefst í viðkomandi grein, nema í hlaupagreinum en þá fer nafnakall fram við ráslínu 10 mínútum fyrir hlaup.

6. Stökk og köst:
Allir keppendur fá 3 tilraunir og síðan fá þeir 8 bestu 3 tilraunir til viðbótar. Endurraðað verður í stökk/kaströð áður en þeir 8 bestu halda áfram keppni og fyrir síðustu umferð úrslitakeppninnar.
Gert er ráð fyrir að í upphitun fái allir keppendur tvö upphitunarstökk/upphitunarköst.

7. Hlaup:
Tímar í riðlum gilda.

8. Byrjunarhæðir í hástökki og stangarstökki:
Hástökk:
Konur: 1,40m – 1,45m – 1,50m – 1,55m – 1,58m o.s.frv.
Karlar: 1,70m - 1,75m – 1,80m – 1,85m – 1,88m o.s.frv.
Stangarstökk:
Konur: 2,40m – 2,60m – 2,80m – 3,00m – 3,10m – 3,20m o.s.frv.
Karlar: 3,00m – 3,20m – 3,40m – 3,60m – 3,80m – 3,90m o.s.frv.

9. Verðlaun:
Fyrstu þrír í hverri grein hljóta verðlaun. Stefnt er að verðlaunaafhendingu strax að lokinni keppni í hverri grein og eru keppendur beðnir um að vera til taks.

10. Veitingar:
Keppendum verður boðið upp á grillaðar pylsur og drykk í mótslok. Þjálfurum og gestum mótsins býðst að kaupa pylsur og drykk á kostnaðarverði.

20. Frekari upplýsingar:
Margrét Héðinsdóttir margret1301@gmail.com s 821-2172






Síðast uppfært 23.maí.2011