Víðavangshlaup ÍR
Það var árið 1916 að ÍR-ingar stofnuðu til víðavangshlaups að enskri fyrirmynd. Hlaupið hefur verið haldið árlega síðan og mun vera sá íþróttaviðburður hér á landi sem á sér lengsta samfellda sögu. Helgi Jónasson í Brennu var í fararbroddi þeirra ÍR-inga og stjórnaði fyrstu hlaupunum. Hlaupið varð strax einn af meginviðburðum í dagskrá sumardagsins fyrsta í Reykjavík. Hlaupaleiðin hefur jafnan verið tengd miðbæ Reykjavíkur þó hlaupaleiðin hafi breyst alloft og einnig aðstaða öll í miðbænum. Nú er ekki mikinn víðavangs að finna á þeim slóðum og er hlaupið í dag á malbikuðum stígum og götum. Það hefur jafnan þótt mikill sigur að koma fyrstur í mark í Víðavangshlaupi ÍR. Oftast hefur Ágúst Ásgeirsson ÍR sigrað í þessu sögufræga hlaupi, eða átt sinnum alls. Næstur honum kemur Sigmar Gunnarsson UMSB með sjö sigra. Undir stjórn Guðmundar Þórarinssonar jókst þátttaka mjög í Víðavangshlaupi ÍR á áttunda áratugnum og þá tóku konur fyrst þátt. Fyrsti sigurvegari kvenna var Lilja Guðmundsdóttir ÍR en næstu 5 ár sigraði Ragnhildur Pálsdóttir UMSK/KR. Martha Ernstsdóttir ÍR hefur unnið flesta sigra í kvennaflokki en átta sinnum hefur hún verið fyrsta konan í mark í Víðavangshlaupi ÍR.
Fyrsta hlaupið 1916
Fyrsta Víðavangshlaup ÍR hófst við Austurvöll á sumardaginn fyrsta sem bar upp á skírdag. Hlaupið var suður Tjarnargötu og yfir mýrina sunnan við Tjörnina, eftir Laufásvegi og inn að Hlíð. Þaðan var haldið yfir tún og út á Laugaveg á móts við Gasstöðina, niður Laugaveg og hlaupið endaði í Austurstræti á móts við Pósthúsið.
Þátttakendur voru 9 og sigurvegarinn var Jón Kaldal Jónsson myndsmíðanemi, annar Ólafur Sveinsson prentari og þriðji Ottó Bj. Arnar símritari. Múgur og margmenni var samankominn við Austurvöll til þess að horfa á hlaupið.
Tíunda hlaupið 1925
Nú voru hlauparar 20 og hlaupaleiðin sú sama og í fyrri hlaupum. Tekið er fram í blöðum að færðin hafi verið slæm á Laufásveginum en batnaði er á leið skeiðið. Hallgrímur Jónsson Ármanni kom fyrstur í mark, Geir Gígja KR varð annar og þriðji Magnús Eiríksson. Magnús keppti fyrir Íþróttafélag Kjósarsýslu og unnu ÍK menn sveitakeppnina og Hjaltestedbikarinn. Hlaupararnir komu allir að marki og voru lítið þrekaðir að sjeð varð, og var þeim heilsað með miklum fögnuði af áhorfendum segir í Morgunblaðinu í frétt af hlaupinu.
Tuttugasta hlaupið 1935
Þátttakendur í þessu afmælishlaupi voru 15 og voru Borgfirðingar fjölmennir. Þeir höfðu sigur í sveitakeppninni og unnu þar með Morgunblaðsbikarinn. Sigurvegari var Gísli Albertsson frá Hesti.
Þrítugasta hlaupið 1945
Fyrstur að marki var Haraldur Björnsson KR eftir mikla keppni við Óskar Jónsson ÍR sem varð annar og þriðji varð Hörður Hafliðason Á. Hlaupaleiðinni hafði verð breytt nokkuð. Hlaupið endaði á þessum árum í Lækjargötu eða Fríkirkjuvegi til að hlaupararnir þurfi sem minnst að hlaupa á malbikuðum vegi og eins til að fyrirbyggja eins mikla þröng meðal áhorfenda. Í þessu afmælishlaupi hófst hlaupið uppi á Öskjuhlíð og lauk fyrir framan Miðbæjarbarnaskólann, um 4,1 km að lengd. Jón Kaldal, sigurvegari í fyrsta hlaupinu og einn mesti afreksmaður Íslands í langhlaupum flutti erindi um víðavangshlaup í útvarpi þennan dag og hvatti til að víðavangshlaup yrðu iðkuð um land allt.
Fertugasta hlaupið 1955
Til leiks mættu 24 hlauparar og luku allir keppni. Hlaupið hófst og því lauk í Hljómskálagarðinum. Sigurvegari varð Svavar Markússon KR. Kristján Jóhannsson ÍR varð nú annar en hann hafði sigrað þrjú árin á undan. Þriðji varð Stefán Árnason Á. ÍR sigraði í 3ja og 5 manna sveitakeppni. Stjórn ÍR hélt keppendum, starfsmönnum og ýmsum forystumönnum íþróttahreyfingarinna kaffisamsæti eftir hlaupið. Jakob Hafstein formaður ÍR veitti verðlaun og voru verðlaun sérstaklega glæsileg í þessu afmærlishlaupi. Meðal þeirra sem héldu ræður voru Benedikt Waage, formaður ÍSÍ, Brynjólfur Ingólfsson formaður FRÍ, Björn Ólafsson fyrrv. ráðherra, Erlendur Ó. Pétursson formaður KR, Jens Guðbjörnsson formaður Ármanns og Jón Stefánsson formaru UMSE.
Fimmtugasta hlaupið 1965
Samkvæmt frétt í Morgunblaðinu horfðu þúsundir manna á þetta afmælishlaup en keppendur voru 33 og luku allir keppni. Hlaupið hófst vestanvert í Hljómskálagarðinum og hlaupið var um garðinn og vestur að prófessorabústöðunum um mýrina og aftur inn í garðinn og endaði hlaupið við Menntaskólann við Lækjargötu. Sigurvegari var Kristleifur Guðbjörnsson KR, annar Agnar Levý KR og þriðji Halldór Guðbjörnsson KR, bróðir Kristleifs.
Sextugasta hlaupið 1975
Sigfús Jónsson ÍR sigraði í þessu sextugasta Víðavagnshlaupi ÍR og í kvennaflokki Ragnhildur Pálsdóttir UMSK. Sigfús hafði árin á undan þurft að láta í minni pokann fyrir félaga sínum Ágústi Ásgeirssyni en nú sigraði Sigfús af miklu öryggi á undan þeim Jóni Diðrikssyni UMSB og Ágústi Ásgeirssyni ÍR. Hlaupið hófst í Hljómskálagarðinum við Skothúsveg. Hlaupið var yfir Hringbrautina og yfir í Vatnsmýrina. Á bakaleiðnni var hlaupið norður Tjarnargötu yfir Vonarstræti og inn í Aðalstræti og lauk hlaupinu í Austurstræti, um 4,2 km leið. Alls luku 56 hlauparar keppni, þar af 9 konur.
Sjötugasta hlaupið 1985
Sigurður Pétur Sigmundsson FH, Íslandsmetahafinn í maraþonhlaupi, sigraði í þessu 70. Víðavangshlaupi ÍR. Í öðru sæti varð Jón Diðriksson FH og Hafsteinn Óskarsson ÍR í þriðja sæti. Í kvennaflokki kom Hrönn Guðmundsdóttir ÍR fyrst í mark. Metþátttaka var í hlaupinu er 94 hlauparar luku keppni. Hlaupaleiðin var í stórum dráttum sú sama og tíðkaðist á þessum árum. Hlaupið hófst í Hljómskálagarðinum, hlaupinn var hringur um Vatnsmýrina, komið aftur inn í Hljómskálagarðinn og að þessu sinni var endaspretturinn í Tjarnargötunni.
Áttugasta hlaupið 1995
Borgfirðingurinn Sigmar Gunnarsson sigraði í 80. Víðavangshlaupi ÍR en í öðru sæti varð Gunnlaugur Skúlason UMSS, sigurvegarinn frá 75. hlaupinu. Í þriðja sæti varð Daníel Smári Guðmundsson Á. Í kvennaflokki sigraði Anna Jeeves ÍR og var þetta hennar þriðji sigur í röð. Metþáttaka var í afmælishlaupinu er 284 hlauparar luku keppni.
Nítugasta hlaupið 2005
Aðstæður voru mjög góðar í 90. Víðavangshlaupi ÍR þetta árið en 200 þátttakendur luku keppni. Kári Steinn Karlsson UMSS sigraði í hlaupinu, hans fyrsti sigur Víðavangshlaupi ÍR. Í kvennaflokki vann Íris Anna Skúladóttir Fjölni sinn annan sigur í hlaupinu.
Sigurvegarar í Víðavangshlaupi ÍR frá upphafi
|
Ár
|
Karlar
|
Konur
|
1916
|
Jón J.Kaldal
|
ÍR
|
|
|
1917
|
Jón J.Kaldal |
ÍR
|
|
|
1918
|
Ólafur Sveinsson
|
ÍR
|
|
|
1919
|
Ólafur Sveinsson
|
ÍR
|
|
|
1920
|
Þorgils Guðmundsson
|
UMFA og D
|
|
|
1921
|
Guðjón Júlíusson
|
UMFA og D |
|
|
1922
|
Guðjón Júlíusson |
UMFA og D |
|
|
1923
|
Guðjón Júlíusson |
UMFA og D
|
|
|
1924
|
Geir Gígja
|
KR
|
|
|
1925
|
Hallgrímur Jónsson
|
Á
|
|
|
1926
|
Geir Gígja |
KR
|
|
|
1927
|
Geir Gígja |
KR
|
|
|
1928
|
Geir Gígja |
KR
|
|
|
1929
|
Jón Þórðarson
|
KR
|
|
|
1930
|
Viggó Jónsson
|
GR
|
|
|
1931
|
Oddgeir Sveinsson
|
KR
|
|
|
1932
|
Gísli Finnsson
|
KV
|
|
|
1933
|
Bjarni Bjarnason
|
ÍB
|
|
|
1934
|
Bjarni Bjarnason
|
ÍB
|
|
|
1935
|
Gísli Albertsson
|
ÍB
|
|
|
1936
|
Sverrir Jóhannsesson
|
KR
|
|
|
1937
|
Sverrir Jóhannsesson |
KR
|
|
|
1938
|
Sverrir Jóhannsesson |
KR
|
|
|
1939
|
Sverrir Jóhannsesson |
KR
|
|
|
1940
|
Haraldur Þórðarson
|
Stj.Dals.
|
|
|
1941
|
Óskar Á. Sigðursson
|
KR
|
|
|
1942
|
Sigurgeir Ársælsson
|
Á
|
|
|
1943
|
Haraldur Þórðarsson
|
Á
|
|
|
1944
|
Sigurgeir Ársælsson
|
Á
|
|
|
1945
|
Haraldur Björnsson
|
KR
|
|
|
1946
|
Þórður Þorgeirsson
|
KR
|
|
|
1947
|
Þórður Þorgeirsson
|
KR
|
|
|
1948
|
Stefán Guðmundsson
|
Á
|
|
|
1949
|
Stefán Guðmundsson |
Á
|
|
|
1950
|
Stefán Guðmundsson |
Á
|
|
|
1951
|
Stefán Guðmundsson |
Á
|
|
|
1952
|
Kristján Jóhannsson
|
ÍR
|
|
|
1953
|
Kristján Jóhannsson
|
ÍR
|
|
|
1954
|
Kristján Jóhannsson
|
UMSE
|
|
|
1955
|
Svavar Markússon
|
KR
|
|
|
1956
|
Stefán Árnason
|
UMSE
|
|
|
1957
|
Kristján Jóhannsson
|
ÍR
|
|
|
1958
|
Haukur Engilbertsson
|
UMSB
|
|
|
1959
|
Haukur Engilbertsson
|
UMSB
|
|
|
1960
|
Kristleifur Guðbjörnsson
|
KR
|
|
|
1961
|
Kristleifur Guðbjörnsson |
KR
|
|
|
1962
|
Kristleifur Guðbjörnsson |
KR
|
|
|
1963
|
Kristleifur Guðbjörnsson |
KR
|
|
|
1964
|
Þórarinn Arnórsson
|
ÍR
|
|
|
1965
|
Kristleifur Guðbjörnsson |
KR
|
|
|
1966
|
Halldór Guðbjörnsson
|
KR
|
|
|
1967
|
Halldór Guðbjörnsson |
KR
|
|
|
1968
|
Örn Agnarsson
|
UÍA
|
|
|
1969
|
Þórður Guðmundsson
|
UBK
|
|
|
1970
|
Halldór Guðbjörnsson |
KR
|
|
|
1971
|
Halldór Guðbjörnsson |
KR
|
Lilja Guðmundsdóttir
|
ÍR
|
1972
|
Ágúst Ásgeirsson
|
ÍR
|
Ragnhildur Pálsdóttir
|
UMSK
|
1973
|
Ágúst Ásgeirsson |
ÍR
|
Ragnhildur Pálsdóttir |
UMSK
|
1974
|
Ágúst Ásgeirsson |
ÍR
|
Ragnhildur Pálsdóttir |
UMSK
|
1975
|
Sigfús Jónsson
|
ÍR
|
Ragnhildur Pálsdóttir |
UMSK
|
1976
|
Ágúst Ásgeirsson |
ÍR
|
Ragnhildur Pálsdóttir |
KR
|
1977
|
Ágúst Ásgeirsson |
ÍR
|
Thelma Björnsdóttir
|
UBK
|
1978
|
Jón Diðriksson
|
UMSB
|
Thelma Björnsdóttir |
UBK
|
1979
|
Ágúst Ásgeirsson |
ÍR
|
Thelma Björnsdóttir |
UBK
|
1980
|
Ágúst Þorsteinsson
|
UMSB
|
Guðrún Karlsdóttir |
UBK
|
1981
|
Ágúst Ásgeirsson |
ÍR
|
Guðrún Karlsdóttir |
UBK
|
1982
|
Gunnar Páll Jóakimsson
|
ÍR
|
Hrönn Guðmundsdóttir
|
UBK
|
1983
|
Hafsteinn Óskarsson
|
ÍR
|
Ragnheiður Ólafsdóttir
|
FH
|
1984
|
Sigurður P. Sigmundsson
|
FH
|
Unnur Stefánsdóttir
|
HSK
|
1985
|
Sigurður P. Sigmundsson |
FH
|
Hrönn Guðmundsdóttir
|
ÍR
|
1986
|
Jón Diðriksson
|
FH
|
Martha Ernstsdóttir
|
Á
|
1987
|
Már Hermannsson
|
UMFK
|
Steinunn Jónsdóttir
|
Á
|
1988
|
Jóhann Ingibergsson
|
FH
|
Martha Ernstsdóttir |
ÍR
|
1989
|
Már Hermannsson
|
UMFK
|
Martha Ernstsdóttir |
ÍR
|
1990
|
Gunnlaugur Skúlason
|
UMSS
|
Martha Ernstsdóttir |
ÍR
|
1991
|
Toby Tanser
|
GBR
|
Martha Ernstsdóttir |
ÍR
|
1992
|
Toby Tanser
|
KR
|
Hulda Pálsdóttir
|
ÍR
|
1993
|
Sigmar Gunnarsson
|
UMSB
|
Anna Jeeves
|
ÍR
|
1994
|
Sigmar Gunnarsson |
UMSB
|
Anna Jeeves
|
ÍR
|
1995
|
Sigmar Gunnarsson |
UMSB
|
Anna Jeeves
|
ÍR
|
1996
|
Sigmar Gunnarsson |
UMSB
|
Laufey Stefánsdóttir
|
FH
|
1997
|
Sigmar Gunnarsson |
UMSB
|
Bryndís Ernstsdóttir
|
ÍR
|
1998
|
Sigmar Gunnarsson |
UMSB
|
Marha Ernstsdóttir
|
ÍR
|
1999
|
Sveinn Margeirsson
|
UMFT
|
Anna Jeeves
|
ÍR
|
2000
|
Daníel Smári Guðmundsson
|
ÍR
|
Fríða Rún Þórðardóttir
|
ÍR
|
2001
|
Sveinn Ernstsson
|
ÍR
|
Marhta Ernstsdóttir
|
ÍR
|
2002
|
Sveinn Margeirsson
|
UMFT
|
Rannveig Oddsdóttir
|
LR
|
2003
|
Björn Margeirsson
|
Breiðablik
|
Martha Ernstsdóttir |
ÍR
|
2004
|
Björn Margeirsson
|
FH
|
Íris Anna Skúladóttir
|
Fjölnir
|
2005
|
Kári Steinn Karlsson
|
UMSS
|
Íris Anna Skúladóttir |
Fjölnir
|
2006
|
Kári Steinn Karlsson |
Breiðablik
|
Krisjana Ósk Krisjánsdóttir Howard
|
ÍR
|
2007
|
Kári Steinn Karlsson |
Breiðablik
|
Íris Anna Skúladóttir |
Fjölnir
|
2008
|
Þorbergur Ingi Jónsson
|
Breiðablik
|
Arndís Ýr Hafþórsdóttir
|
Fjölnir
|
2009
|
Karoly Varga
|
FH
|
Arndís Ýr Hafþórsdóttir |
Fjölnir
|
2010
|
|
|
|
|
Um hlaupið á
Hlaup.is
Síðast uppfært: 20.8.2010