valitor











































Víðavangshlaup ÍR
Á sumardaginn fyrsta verður Víðavangshlaup ÍR þreytt í 96. sinn.  Víðavangshlaup ÍR var fyrst hlaupið árið 1916 að enskri fyrirmynd. Hlaupið hefur verið árviss viðburður og mun vera sá íþróttaviðburður hér á landi sem á lengsta samfelda sögu.

Tími og staðsetning

21. apríl nk., kl. 12:00 við Ráðhús Reykjavíkur.

Vegalengd

5 km

Skráning

Forskráning á hlaup.is og í Iðnó  frá 10:30 til 11:45 á hlaupadag. 

Forskráðir sig geta sótt gögnin sín í anddyri Frjálsíþróttahallarinnar í Laugardal daginn fyrir hlaupdag. Annars verða gögn afhent í Iðnó fimmtudaginn 21. apríl  á milli kl. 10 og 11:45.

Þátttökugjöld

Forskráðir: 1.500 kr. fyrir 16 ára og eldri (f. 1994 og fyrr), 500 kr. fyrir 15 ára og yngri (f. 1995 og síðar).
Skráning á keppnisstað á hlaupdag:  2.000 kr fyrir 16 ára og eldri, 500 kr. fyrir yngri.

Hlaupaleið

Hlaupið er í kringum Tjörnina í miðborg Reykjavíkur.  Rásmark er við Ráðhús Reykjavíkur, hlaupið upp Tjarnargötuna, til vinstri inn á Skothúsveg, kringum syðri hlutaTjarnarinnar, beygt til vinstri og meðfram Hringbraut, þaðan inn á Fríkirkjuveg, beygt til vinstri inn á Vonarstræti og það hlaupið til enda. Beygt til vinstri og upp Suðurgötuna, inn á Skúthúsveg, aftur kringum syðri hluta Tjarnarinnar, beygt til vinstri og meðfram Hringbraut, þaðan inn á Fríkirkjuveg og hann hlaupinn að Skothúsvegi, beygt inn á Skothúsveg, beygt af honum til hægri inn á Tjarnargötu og niður Tjarnargötuna en markið er við Ráðhúsið Reykjavíkur.

Kort af Víðavangshlaupi ÍR á GoogleMaps.

Tímataka

Hefðbundin (skeiðklukkur, markklukka).

Merkingar

Kílómetrar og beygjur eru vel merkt með fánum. Annars eru þátttakendur hvattir til að kynna sér vel leiðarkort við skráningu í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Drykkjarstöðvar

Boðið er upp á Powerade drykki að hlaupi loknu.

Aldursflokkar

Keppt er í karla- og kvennaflokki í aldursflokkum
12 ára og yngri,
13-15 ára,
16-18 ára,
19-39 ára,
40-49 ára,
50-59 ára,
60-69 ára og
70 ára og eldri.

Einnig er keppt í þriggja manna sveitakeppni.

Verðlaun

Veitt eru verðlaun fyrir fyrstu þrjá í mark í karla- og kvennaflokki og fyrsta karl og fyrstu konu í mark í öðrum flokkum.

Einnig verðar dregnir út útdráttarvinningar og allir þátttakendur yngri en 15 ára frá þátttökuverðlaunapening.

Verðlaunaafhending

 Við Ráðhúsi Reykjavíkur strax að hlaupinu loknu.

Salerni og fatageymsla

Í Iðnó.

Aðrar upplýsingar

Athugið að mælst er til þess af öryggisástæðum að keppendur noti ekki iPod eða önnur álíka tæki í hlaupinu.  Einnig er mælst til þess að þátttakendur hlaupi ekki með hlaupakerrur eða álíka (baby joggers).

Powerade mótaröðin

Frjálsíþróttafélögin í Reykjavík, Reykjavíkurmaraþon og Powerade standa saman að mótaröð hlaupa í sumar sem nefnist Powerade mótaröðin. Mótaröðin var sett á laggirnar sumarið 2009 og hefur gengið mjög vel.

Hlaupin fimm sem mynda Powerade mótaröðina 2011 eru:
  • VÍÐAVANGSHLAUP ÍR: Sumardaginn fyrsta 22. apríl, 5 km
  • FJÖLNISHLAUPIÐ: 20. maí, 10 km og 1,8 km skemmtiskokk
  • MIÐNÆTURHLAUP POWERADE: 23. júní, 10 km - 5 km - 3 km
  • ÁRMANNSHLAUPIÐ: 13. júlí, 10 km
  • REYKJAVÍKURMARAÞON ÍSLANDSBANKA: 21. ágúst, 42,2 km - 42,2 km boðhlaup - 21,1 km - 10km - 3 km
Glæsilegir ferðavinningar frá ferðaskrifstofunni VITA eru í boði fyrir flest stig samanlagt í hlaupunum fimm í karla og kvennaflokki. Í öllum hlaupunum verða Powerade drykkjarstöðvar, verðlaun og aðgöngumiðar í sund. Þá verður dregið um verðlaun meðal allra keppenda mótaraðarinnar eftir Reykjavíkurmaraþonið.

Nánari upplýsingar um Powerade mótaröðina er að finna á http://www.marathon.is/powerade

Ábyrgðarmenn

Sigðurður Þórarinsson, hlaupsstjóri.  Netfang: sigurdur_thorarinsson@hotmail.com
Sigurður Guðmundsson, hlaupsstjóri

Síðast uppfært 29.03.2011