Saga Stórmóts ÍR
Stórmót ÍR er haldið í janúar ár hvert. Það var fyrst haldið árið 1997 á 90 ára afmæli félagsins. Fyrstu árin var Stórmótið einungis boðsmót en það breyttist árið 2000. Mótið hefur verið fyrir alla aldurshópa. Fjöldi þátttakenda hefur aukist ár frá ári eins og sjá má á eftirfarandi línuriti.