Gamlárshlaup ÍR verður þreytt í 37. sinn á gamlársdag. Skapast hefur hefð fyrir því að hlauparar mæti í hinum ýmsu búningum og eru veitt verðlaun fyrir bestu búningana.
Í fyrra var hlaupið flutt frá Ráðhúsinu í Hörpuna og hlaupaleiðinni breytt. Þessi breyting gafst mjög vel og almenn ánægja með hana meðal hlaupara. Því verður sami háttur hafður á í ár.
Tímasetningar
Hlaupið er haldið á Gamlársdag og er ræst stundvíslega klukkan 12:00.
Staðsetning
Rásmarkið er á Sæbrautinni fyrir utan Hörpuna.
Skráning
Forskráning á hlaup.is til miðnættis 30. desember og eru þátttakendur hvattir til nýta sér það.
Hægt verður að skrá sig á hlaupdag í Hörpunni frá kl. 10:00 þar til 15 mínútum fyrir hlaup, keppendur eru vinsamlegast beðnir um að virða það. Athugið að skráningargjald hækkar fyrir þá sem skrá sig á hlaupdag og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig.
Þeir sem forskrá sig fyrir kl. 16:00 sunnudaginn 30. desember geta sótt gögnin sín í Hörpunni á milli kl. 18 og 19:30 sunnudaginn 30. des. Annars verða gögn afhent í Hörpunni mánudaginn 31. desember milli kl. 10 og 11:45.
Þátttökugjöld
Forskráðir:
1.800 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 1996 og fyrr)
1.000 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 1998 og síðar)
Skráning á keppnisstað:
2.300 kr fyrir 16 ára og eldri
1.300 kr fyrir 15 ára og yngri
Vegalengd
10 km
Hlaupaleið
Rásmark er á Sæbrautinni fyrir framan Hörpuna. Hlaupið er austur Sæbraut, niður Sægarða (við Holtagarða), norður Vatnagarða og áfram upp Klettagarða inn á Sæbraut aftur. Endamarkið er á planinu fyrir framan Hörpuna. Hér má nálgast kort af leiðinni.
Tímataka
Flögutímataka. Skila þarf tímatökuflögum eftir hlaup. Byssutími gildir til úrslita og röðunar í sæti.
Merkingar
Kílómetrar og beygjur eru vel merkt með keilum, flöggum og umferðarmerkjum. Þátttakendur eru þó hvattir til að kynna sér vel leiðina, m.a. hér á síðunni og í Hörpunni á keppnisdegi.
Drykkjarstöðvar
Við Vatnagarða (u.þ.b. 5,5 km) verður boðið upp á vatn. Einnig verður boðið upp á Powerade drykki að hlaupi loknu.
Aldursflokkar
Keppt er í 8 flokkum karla og kvenna (alls 16 flokkar):
15 ára og yngri
16 -18 ára
19-39 ára
40-44 ára
45-49 ára
50-54 ára
55-59 ára
60 ára og eldri
Verðlaun og verðlaunaafhending
Þátttakendur yngri en 15 ára fá þátttökuverðlaun. Veitt eru verðlaun fyrir þrjá fyrstu í mark í karla- og kvennaflokki og fyrsta karl og konu í öðrum flokkum. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta karl- og kvenbúninginn.
Verðlaunaafhending fer fram í Hörpunni kl. 13.
Verðlaunaafhending
Í Hörpunni að loknu hlaupi.
Salerni og fatageymsla
Í Hörpunni. Engin ábyrgð er tekin á fatnaði eða öðru sem skilið er eftir í Hörpunni eða annars staðar á hlaupaleiðinni.
Aðrar upplýsingar
Þar sem um götuhlaup er að ræða og umferð er mikil á hluta leiðarinnar eru þátttakendur beðnir að sýna varúð. Brautarvarsla verður við þau gatnamót þar sem umferð er þyngst.Mælst er til þess að öryggisástæðum að þátttakendur noti ekki iPod eða önnur álíka tæki í hlaupinu. Einnig er mælst til þess að þátttakendur hlaupi ekki með hlaupakerrur eða álíka (baby joggers)
Ábyrgðarmenn
Sigðurður Þórarinsson
Sigurður Guðmundsson
Síðast uppfært 15.12.2012