Verðlaun
Öllum nemendum er safnað saman til verðlaunaafhendingar. Best er að láta þau sitja á gólfinu á afmörkuðum stað fyrir framan verðlaunapall.
Viðurkenning er veitt 10 efstu í hverri grein í stelpna- og strákaflokki í öllum aldursflokkum. Verðlaunapeningur er veittur fyrir fyrstu þrjú sætin í hverri grein nema í boðhlaupi þar eru eingöngu veitt verðlaun fyrir fyrsta sætið. Skólinn sem flest stig hlýtur samtals í stráka - og stelpnaflokki telst vera Breiðholtsmeistari, t.d. 7. bekkjar, í frjálsíþróttum, og hlýtur farandbikar til varðveislu í eitt ár. Sá skóli sem flest stig hlýtur samanlagt í öllum árgöngum hlýtur veglegan farandbikar til varðveislu í eitt ár og nafnbótina Breiðholtsmeistari í frjálsum íþróttum það árið.
Verðlaunin eru afhent á staðnum strax að lokinni keppni. Mikilvægt er að hafa nægan mannskap og gott skipulag í úrslitavinnslu til að ekki komi til þess að það þurfi að bíða eftir úrslitum eftir að keppni lýkur.