Gátlisti
□Samráð við skólana (grunnskólana og HR) um tímasetningu vorið áður, ath. skóladagatölin
□Panta höllina vorið áður hjá ÍBR
□Sækja um styrki fyrir mótið til ÍTR, ÍBR og FRÍ auk annara sem okkur dettur í hug
□Senda póst í skólana mánuði fyrir mót og minna á mótið
□Panta verðlaunapeninga mánuði fyrir mót og líma aftan á þá
□Senda póst í skólana tveim vikum fyrir mót og biðja um nemendalista
□Setja nemendalista og númer í umslög merkt skólunum
□Í vikunni fyrir mót sækja bikarana í skólana og pússa þá upp
□Útbúa viðurkenningarskjal fyrir fyrstu 10 sætin
□Hafa samband við starfsmenn hallarinnar 3 til 4 dögum fyrir mót til að ákveða uppröðun í salnum. Tveir kúluvarpshringir og allar langstökksgryfjur opnar.
□Daginn fyrir mót ganga úr skugga um að salurinn sé í lagi og tímatökugræjur virki. Ath. að girða af 60m hlaupabrautina og gera ráðstafanir til að
stangarstökksdýnan verði ekki leiktæki.
Hafa tiltæk í höllinni starfsmannavesti, skriftarspjöld, penna, hlaupavesti í fjórum litum a.m.k. 2 eintök af hverjum lit, 6málbönd og tvær litlar keilur fyrir kúluvarpið.
□Girða af pláss svo myndatakan í markinu truflist ekki.
□Gæta þess að eftirfarandi sé til tímanlega fyrir mótið
- skot í startbyssu
- strimill í strimilkukku
- hvítir límmiðar 8 stk á A4 stærð ekki með kanti á örkinni, 100 arkir
- gylltir límmiðar til að setja aftan á verðlaunapeninga150 stk.
- 20 umslög
- verðlaunapeningar 72 gullpeningar, 32 silfur- og bronspeningar
- yfirfara sjúkratöskuna