Breiðholtsmót í frjálsum
Breiðholtsmótið í frjálsum 2011
Mótinu 2011 hefur verið aflýst þar sem skólarnir sjá sér ekki fært að taka þátt í því.
Um Breiðholtsmótið í frjálsum
Breiðholtsmótið í frjálsum var fyrst haldið í október
2008. Mótið er samstarfsverkefni Frjálsíþróttadeildar ÍR, Íþróttafræðisviðs Háskólans í
Reykjavík og grunnskólanna í Breiðholti. Markmiðið með móti eins og þessu er tvíþætt:
-
Að
gefa börnum í gunnskólunum í Breiðholti kost á því að kynnast frjálsum
íþróttum á jákvæðan hátt og gefa þeim tækifæri til að taka þátt í
skemmtilegu móti annað hvort sem keppendur, aðstoðarfólk eða í námstengdri
vinnu á mótinu.
-
Fjölga
iðkendum í frjálsum íþróttum úr hverfinu okkar, Breiðholtinu.
Það er einróma álit þeirra sem komið hafa með nemendahópa
á mótið að það hafi tekist afar vel og gleðin og keppnisskapið verið
allsráðandi.
Breiðholtsmótið
er fyrir nemendur í 4. - 7. bekk í grunnskólunum í Breiðholti það er;
Breiðholtsskóla, Fellaskóla, Hólabrekkuskóla, Seljaskóla og Ölduselsskóla.
Mótið er einstaklingskeppni, keppni á milli skóla og vettvangur þeirra sem ekki
geta eða vilja keppa til að vinna námstengd verkefni á mótinu.
Í 4. og 5. bekk er fjölþrautakeppni 8 til 12 manna liða en í 6. og 7. bekk eru um hefðbundið frjálsíþróttamót að ræða
Frjálsíþróttadeild
ÍR framkvæmir mótið í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og grunnskólana í
hverfinu.
Mótið
er haldið í Laugardalshöllinni og í íþróttahúsi í Breiðholtinu og stendur í fjóra daga. Hver árgangur mætir
einn dag ásamt kennurum sínum.
Síðast uppfært 15.9.2011