hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
1.9.2012

Þrír ÍR-ingar staddir á Írlandi yfir helgina

Pétur og SindriÞetta eru þeir: Hilmar Örn Jónsson sleggjukastari, Sindri Lárusson kúluvarpari og Pétur Guðmundsson kastþjálfari ástamt Erni Davíðssyni spjótkastara frá FH. Þetta er kastlandskeppi við Írland og Sviss sem fer fram í bænum Templemore skammt frá Dublin.

Þeir hafa átt góðan dag. Sindri kastaði 15,48 m í kúluvarpi og hafnaði í 2 sæti. Hilmar Örn kastaði sleggjunni 54,95 m og varð í 5 sæti. Þessi árangur hjá drengjunum ekki langt frá þeirra besta. Örn sigraði svo spjótkastið með kasti upp á 65,50 m. Þeir kepptu svo allir í kringlukasti. Sindri kastaði 43,86m, Örn 42,80 m og Hilmar Örn 40,87m og er þetta bæting með 2 kg kringlu hjá þeim Sindra og Hilmari. Pétur þjálfari mun svo halda námskeið í kúluvarpi fyrir unga heimamenn.

Við óskum þeim til hamingju með árangurinn.