29.1.2012
Stórmót ÍR - frábæru móti lokið - nýtt Íslandsmet í 400 m hlaupi karla
 |
Trausti Stefánsson á Evrópubikar sl. sumar. Ljósm. Helgi Björnsson |
16. Stórmóti ÍR lauk í dag. Hápunktar mótsins voru nýtt Íslandsmet í 400 m hlaupi karla og Færeyjamet í þrístökki karla. Trausti Stefánsson úr FH setti Íslandsmetið í 400 m hlaupinu en hann kom í mark á 48,23 sekúndum eftir hörku keppni við Ívar Jasonarson ÍR sem kom í mark á 48,53 sekúndum. Össur Debes Eiriksfoss setti Færeyjamet í þrístökki þegar hann stökk 14,05 m og vann þrístökkið. Tvö aldursflokkamet litu einnig dagsins ljós á mótinu en þau settu Hilmar Örn Jónsson ÍR í flokki 16 til 17 ára pilta þegar hann varpaði kúlunni 16,28 m og Þórdís Eva Steinsdóttir FH þegar hún hljóp 600 m á 1:46,36 mínútum.
ÍR - ingar unnu til fjölmargra verðlauna og margar persónulegar bætingar litu dagsins ljós. Þeir ÍR - ingar sem unnu til gullverðlauna á mótinu voru:
Flokkur 11 ára
Guðbörg Jóna Bjarnadóttir, 60 m hlaup - 9,55 sekúndur
Sigurður Einarsson, hástökk - 1,30 m
Helgi Sigurðsson, kúluvarp - 9,20 m
Flokkur 13 ára
Birta Konráðsdóttir, stangarstökk - 1,70 m
Flokkur 15 ára
Thelma Lind Kristjónsdóttir, 60 m hlaup - 8,25 sekúndur, langstökk - 5,16 m, þrístökk 10,87 m og kúluvarp - 10,96 m
Málfríður Anna Eiríksdóttir, 400 m hlaup - 67,64 sekúndur
Hanna Þráinsdóttir, hástökk - 1,55 m
16 - 17 ára flokkur
Arna Stefanía Guðmundsdóttir, 60 m hlaup - 8,10 sékúndur, 200 m hlaup - 25,70 sekúndur, 60 m grindahlaup - 9,17 sekúndur, langstökk - 5,41 m
Aníta Hinriksdóttir, 400 m - 57,49 sekúndur
Arnar Orri Sveinsson, 800 m - 2:02,09 mínútur
Kristín Liv Svabo Jónsdóttir, hástökk - 1,65 m
Hilmar Örn Jónsson, kúluvarp - 16,28 m
Flokkur 18 -19 ára
Sindri Lárusson, kúluvarp - 14,77 m
Karla og kvennaflokkar
Hrafnhild Eir Hermóðsdóttir, 60 m hlaup - 7,69 sekúndur og 200 m hlaup - 25,16 sekúndur
Ívar Kristinn Jasonarson, 200 m hlaup - 22,34 sekúndur
Fríða Rún Þórðardóttir, 3000 m hlaup - 10:23,65 mínútur
Tómas Zoega Geirsson, 3000 m hlaup - 8:56,87 mínútur
Jóhanna Ingadóttir, þrístökk - 12,68 m
Hilda Margrét Ragnarsdóttir, stangarstökk - 2,90 m
Mark W. Johnson, stangarstökk - 4,90 m
Einar Daði Lárusson, kúluvarp - 13,74 m
Framkvæmd mótsins tókst með ágætum enda góður hópur foreldra, þjálfara, eldri iðkenda og velunnara deildarinnar sem sáu um framkvæmdina.
Frjálsíþróttadeild ÍR þakkar öllum keppendum þátttökuna. Starfsmönnum þökkum við árangursríkt samstarf á mótinu.
Öll úrslit má finna á mótaforriti FRÍ