hreysti


valitor











































Lesa frétt
28.1.2012

Stórmót ÍR - frábær fyrri dagur

Það voru 776 keppendur frá 23 félögum skráðir til leiks þegar 16. Stórmót ÍR var sett kl. 9 í morgun. Í byrjun dags var keppt á 28 stöðum samtímis í báðum sölum Laugardalshallar. Það voru ræstir samtals 130 riðlar í hlaupum og um 80 sjálfboðaliðar lögðu sitt af mörkum margir allan daginn.
Um 140 krakkar 10 ára og yngri spreyttu sig í hinum ýmsu greinum í fjölþraut barana. Þar mátti sjá gleði í hverju andliti og ekki vantaði keppnisskaðið í unga fólkið. Það tóku allir stoltir á móti sinni viðurkenningu í lok þrautarinnar.
Fjölmargir ÍR - ingar unnur til verðlauna og margir sigruðu í sinni grein. Enn fleiri bættu sinn besta árangur. Hranfhild Eir Hermóðsdóttir sló mótsmet í 60 m hlaupi þegar hún hljóp á 7,69 sekúndum. Þessi tími er 7 besti tími sem íslensk kona hefur náð.
Öll úrslit mótsins má sjá í mótaforriti FRÍ.
Mótið heldur áfram á morgun og hefst þá kl. 10 og stendur til 16:30.