hreysti


valitor











































Lesa frétt
25.1.2012

Skráningarfrestur framlengdur á Stórmóti ÍR

Þar sem erfiðleikar voru í skráningu á Stórmót ÍR í gærkvöldi var skráningarfestur framlengdur til kl 18. í dag.
Nú þegar eru ríflega 700 keppendur  frá 22 félögum og sérsamböndum skráðir til leiks og þar af eru 181 frá ÍR. Vinir okkar í Færeyjum koma með 47 manna lið á mótið og þeim hefur fjölgað ár frá ári.
Mót af þessari stærð krefst gríðarlega mikils undirbúnings og fjölda fólks til að framkvæma mótið. Þessa vinnu framkvæma sjálfboðaliðar úr röðum foreldra, iðkenda, þjálfara og velunnara deildarinnar með þeim hætti að mótin okkar hafa vaxið og dafnað ár frá ári og greinilegt að þau eru orðin einn af föstu punktunum í tilveru þeirra sem æfa frjálsar. Nú þegar hafa um 100 manns skráð sig til starfa og margir vinna alla helgina svo Stórmót ÍR rísi undir nafni og haldi áfram að vera fjölmennasta frjásírþóttamót ársins hér á landi.
Hvetjum alla til að kíkja við í höllinni og anda að sér stemningunni á fjölmennast frjálsíþróttamóti landsins.