hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
30.6.2012

Sindri Lárusson náði lágmarki á HM U20

Sindri Lárusson kastaði 18,12 m í kúluvarpi (6 kg kúla) í Kópavogi í dag. Hann átti mörg góð köst og næst lengsta kast hans var 17,66 m. Sindri er búinn að stórbæta sig í sumar, síðast í 17,66 m í Mannheim  á dögunum. Sindri hefur náð fjölmörgum köstum yfir 17,50 m á síðustu mótum þannig að hann og Pétur Guðmundsson þjálfari hans voru sannfærðir um að Sindri ætti góða möguleika á að ná 18 metra kasti, en lágmarkið á HM 19 ára og yngri er 18 metrar.  Til hamingju Sindri og Pétur.