hreysti


valitor











































Lesa frétt
20.1.2012

RIG - ÍR með 28 keppendur

Á morgun laugardaginn 21. janúar fer fram í Laugardalshöll frjálsíþróttahluti Reykjavík International Games. Mótið er í beinni útsendingu sjónvarps og hefst kl. 14:30.
RIG mótið er boðsmót þar sem öllu sterkasta frjálsíþróttafólki landsins er boðin þátttaka ásamt völdum erlendum keppendum. ÍR - ingar eru með 28 keppendur á mótinu en ekkert félag státar af öðrum eins fjölda. Næsta félag er með 15 keppendur. Það verður spennand að sjá hvernig okkar fólki gengur í keppni við erlendu gestina.
Mótið er samstarfsverkefni Frjálsíþróttasambands Íslands og Reykjavíkurfélaganna. Um 60 sjálfboðaliðar sjá um að allt gangi snurðulaust fyrir sig. Þar af eru 24 ÍR - ingar.
Við hvetjum alla til að koma í höllina og hvetja okkar fólk. Frítt er fyrir börn yngri en 16 ára. Aðgangseyrir fyrir aðra er 1000 kr.
Áfram ÍR