hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
9.8.2012

Reykjavíkurmeistaramót 11 til 14 ára seinni dagur

Seinni degi Reykjavíkurmeistaramóts 11 til 14 ára lauk á Laugardalsvelli í kvöld. ÍR-ingar sigruðu í dag í 13 greinum af 28 sem keppt var í og samtals sigruðu krakkarnir því í 30 greinum af 52 sem er frábær árangur hjá þeim. Margar góðar bætingar litu dagsins ljós. 

ÍR-ingar sáu um framkvæmd mótsins að þessu sinni. Það voru þjálfarar 11 til 14 ára krakkanna sem skipulögðu mótið og fengu foreldra þeirra í lið með sér. Þessi hópur stóð sig frábærlega og þökkum við þeim kærlega fyrir þeirra framlag.

Öll úrslit mótsins má finna á mótaforriti FRÍ.