hreysti

valitor











n1_logo_grunni






















Lesa frétt
22.7.2012

NM og Baltic meistaramót 20-22 ára, Guðmundur í 3. sæti og með 5. besta árangur Íslendings frá upphafi


Gummi 3. á NMBalticGuðmundur Sverrisson varð rétt í þessu 3. í spjótkasti með enn eina glæsilegu bætinguna. Hann kastaði 74.09 m, og bætti sig um heila 2 metra. Frábær árangur hjá Guðmundi sem er nú með 5. besta árangur Íslendings í spjótkasti frá upphafi. Aðeins, núverandi þjálfari hans Einar Vilhjálmsson, Sigurður Einarsson og Sigurður Matthíasson sem voru upp á sitt besta á árunum 1991-92 og Örn Davíðsson, æfingafélagi Guðmundar hafa kastað lengra en Örn á best 75,96 m. Örn varð 7. með 68m.

Einar Daði Lárusson stökk í morgun 4.60m í stangarstökki og hafnaði í 5. sæti, hann á best 4.90 m sem hefði dugað í 2. sætið. Ívar Kristinn Jasonarson hljóp 200m í morgun á 21.89 sek og bætti sig en hann átti best 21,96 sek. tíminn dugði honum í 13. sæti.